Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
16. mars 2026

Tjald­svæð­ið í Grinda­vík opið á ný

Tjaldsvæðið í Grindavík opnaði á ný í dag, mánudaginn 16. mars. Stefnt er að því að það verði opið fram í nóvember

Tjaldsvæðið var vel sótt á síðasta ári og var mikil ánægja með þá góðu nýtingu sem var á svæðinu. Vonast er til að áframhald verði á þeirri jákvæðu þróun í sumar og haust.

Gert er ráð fyrir að tjaldsvæðið verði opið fram í nóvember, eða eins lengi og veður og aðstæður leyfa.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk tjaldsvæðisins gegnum netfangið campsite@grindavik.is.

Öll eru hjartanlega velkomin á tjaldsvæðið í Grindavík!