Bæjarstjórn
Bæjarstjórn Grindavíkur er kjörin af íbúum til fjögurra ára í senn. Hún fer með æðsta ákvörðunarvald sveitarfélagsins og mótar stefnu um þjónustu, rekstur og framtíð bæjarins. Næstu sveitastjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026.
Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Á meðal verkefna er kosning í ráð og nefndir á vegum bæjarstjórnar, yfirstjórn á fjárreiðum bæjarins, gerð samþykkta og ákvörðun gjalda.
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar fundar síðasta þriðjudag hvers mánaðar kl. 14:00. Fundirnir fara fram í fundarsal bæjarstjórnar að Víkurbraut 62 og eru opnir almenningi.
Fundargerðir bæjarstjórnar eru birtar á vef Grindavíkurbæjar að loknum fundum.
Netfang bæjarstjórnar er baejarstjorn@grindavik.is.
Bæjarstjórn Grindavíkur 2022-2026
- Ásrún Helga Kristinsdóttir (B) - asrun@grindavik.is
- Birgitta H. Ramsey Káradóttir (D) - birgittah@grindavik.is
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttir (M) - birgittaran@grindavik.is
- Gunnar Már Gunnarssson (M) - gunnarm@grindavik.is
- Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir (M) - hallfridur@grindavik.is
- Inga Fanney Rúnarsdóttir (U) - ingafanney91@gmail.com
- Hjálmar Hallgrímsson (D) - hjalmar2@grindavik.is
Varabæjarfulltrúar:
- Sverrir Auðunsson (B)
- Irmý Rós Þrosteinsdóttir (D)
- Eva Lind Matthíasdóttir (D)
- Ragnheiður Eiríksdóttir (U)
- Unnar Á magnússon (M)
- Hulda Kristín Smáradóttir (M)
- Páll Gíslason (M)
Bæjarstjórnarkosningar 2022
Kosið var til bæjarstjórnar 14. maí 2022. Á kjörskrá voru 2.527 einstaklingar, atkvæði greiddu 1.623, auðir seðlar voru 20 og 2 seðlar voru ógildir. Kjörsókn var 64,23%.
Niðurstöður kosninganna voru eftirfarandi:
- B-listi 324 atkvæði, eða 20,24% og 1 mann kjörinn
- D-listi 397 atkvæði, eða 24,80% og 2 menn kjörna
- M-listi 519 atkvæði, eða 32,42% og 3 menn kjörna
- S-listi 149 atkvæði, eða 09,31% og engan mann kjörinn
- U-listi 212 atkvæði, eða 13,24% og 1 mann kjörinn
Meirihlutasamstarf er með B, D og U lista.