15. mars 2026
Foreldrum boðið til samtals um skólastarf í Grindavík
Foreldrum barna sem hafa áhuga á að skrá börn sín í samrekinn leik- og grunnskóla í Grindavík næsta haust er boðið til samtals við bæjaryfirvöld.

Fundurinn fer fram þriðjudaginn 17. mars kl. 17:00 í Kvikunni.
Markmið fundarins er að eiga opið samtal við foreldra og gefa kost á að koma sjónarmiðum, spurningum og áhuga á framfæri.
Allir foreldrar barna á leik- og grunnskólaaldri velkomnir!

