Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
16. mars 2026

Ný heima­síða Grinda­vík­ur­bæj­ar kom­in í loft­ið

Ný heimasíða Grindavíkurbæjar er nú komin í loftið. Markmiðið með nýjum vef er að auðvelda íbúum og öðrum notendum að finna upplýsingar, nálgast þjónustu og fylgjast með því sem er að gerast í samfélaginu.

Vinna hófst árið 2023

Vinna við nýja heimasíðu hófst árið 2023. Við rýmingu Grindavíkur var gert hlé á verkefninu, en á síðustu mánuðum hefur verið unnið markvisst að því að ljúka uppsetningu og þróun vefsins.

Breytingar á uppbyggingu og framsetningu

Notendur munu verða varir við töluverðar breytingar á uppbyggingu og framsetningu efnis. Meðal annars hefur verið lögð sérstök áhersla á skýrara skipulag þar sem fréttir og viðburðir eru nú aðskildir efnisflokkar. Það á að gera notendum auðveldara að átta sig á því hvað er að gerast hverju sinni og finna upplýsingar hraðar.

Grindavik.is var fyrst opnaður árið 2009 og hefur tekið töluverðum breytingum frá því þá

Þakkir fyrir gott samstarf

Hugsmiðjan hannaði og þróaði nýja vefinn í samstarfi við núverandi og fyrrverandi starfsfólk Grindavíkurbæjar og viljum við færa öllum sem að vefnum komu kærar þakkir fyrir gott samstarf.

Jafnframt viljum við færa Sigurpáli Jóhannssyni sérstakar og innilegar þakkir fyrir hans framlag til vefsins í gegnum árin. Hann hefur sinnt umsjón og þróun grindavik.is af mikilli fagmennsku og lagt mikilvægan grunn að þeirri þróun sem nú hefur átt sér stað.

Vefurinn heldur áfram að þróast

Enn á eftir að setja töluvert efni inn á vefinn og má búast við að ýmislegt komi upp á næstu vikum á meðan unnið er áfram að þróun hans. Við hvetjum notendur því til að senda ábendingar eða benda á það sem betur má fara á netfangið grindavik@grindavik.is.