Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Tjald­svæð­ið í Grinda­vík

Tjaldsvæðið í Grindavík er rólegt og fjölskylduvænt svæði við Austurveg með góðri aðstöðu fyrir húsbíla, fellihýsi og tjaldvagna. Hér má finna upplýsingar um aðstöðu, reglur og gjaldskrá.

Opnunartími

Tjaldsvæðið er opið frá miðjum mars og fram í nóvember. Opnun getur tekið breytingum eftir veðri og aðstæðum hverju sinni.

Aðstaða á tjaldsvæðinu

  • Rafmagnstenglar fyrir húsbíla og tjaldvagna
  • Salerni og sturtur
  • Eldunaraðstaða
  • Leiksvæði fyrir börn
  • Sorpgámar og flokkun
  • Stutt í íþrótta- og útivistarsvæði

Umgengnisreglur

Tjaldsvæðið er ætlað fjölskyldum og mikilvægt er að gestir gangi vel um og virði reglur svæðisins.

  • Næturfriður er frá kl. 00:00 til 07:00
  • Hámarkshraði ökutækja er 10 km/klst.
  • Opinn eldur og einnota grill á jörð eru ekki leyfð
  • Hundar skulu vera í taumi
  • Börn og ungmenni eru á ábyrgð forráðamanna
  • Flokka skal sorp og ganga frá svæði við brottför

Ef rýming verður vegna náttúruhamfara skulu gestir fylgja leiðbeiningum almannavarna og yfirgefa svæðið tafarlaust.

Hafa samband

Starfsfólk á tjaldsvæðinu veitir frekari upplýsingar í síma 660 7310 eða á milli kl. 8:00 og 22:00 eða netfangið campsite@grindavik.is.