Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
12. mars 2026

Pist­ill bæj­ar­stjórn­ar 12. mars 2026 - Líf í bæn­um, upp­bygg­ing og vor í lofti

Við viljum deila með ykkur stuttu yfirliti yfir það helsta sem hefur verið að gerast í Grindavík og stjórnsýslunni síðustu daga, en það er margt í gangi sem miðar að því að koma lífinu og örygginu aftur í fastar skorður.

Ný matvöruverslun opnaði í vikunni

Við byrjum á virkilega gleðilegum tíðindum! Ný matvöruverslun, Víkurval, opnaði dyr sínar í vikunni. Þetta er stór og kærkominn áfangi fyrir samfélagið okkar og gríðarlega mikilvægt skref í að auka grunnþjónustu við þá sem dvelja og starfa í bænum. Við óskum þeim Bjarneyju og Aljosha, eigendum  Víkurvals innilega til hamingju og hvetjum Grindvíkinga til að versla i heimabyggð.

Unnið að sprunguviðgerðum þar sem áður stóð Sólarvé

Markviss skref í niðurrifi og sprunguviðgerðum

Eins og mörg ykkar hafa eflaust tekið eftir, þá hófst niðurrif á altjónuðum íbúðarhúsum í vikunni. Þótt það sé alltaf tilfinningaþrungið að sjá á eftir húsum, þá er þetta algjörlega óhjákvæmilegt og mikilvægt skref í endurreisn bæjarins. Húsin sem um ræðir standa ofan á sprungum og eina leiðin til að komast að þeim til að gera tryggja öryggi til frambúðar er að fjarlægja húsin fyrst. Þetta er því mikilvægur liður í því stóra verkefni að fækka afgirtum hættusvæðum og gera bæinn okkar öruggan á ný.

Á næstunni hefst niðurrif á nokkrum fasteignum við Austurveg, Staðarsund og Vörðusund. Þá er niðurrif fasteigna við Víkurbraut og Víkurhóp í útboðsferli. Eigendur altjónaðra fasteigna eru hvattir til að hafa samband við sveitarfélagið hafi þeir áhuga á að taka þátt í niðurrifsverkefninu.

Í vikunni hófust sprunguviðgerðir í Hlíðahverfi. Alls eru fimm verkefni farin af stað og það sjötta er í útboðsferli. Af þeim verkefnum sem farin eru af stað er viðgerð á svæðinu við Hópsskóla lengst komið. Sýnilegastar eru þó líklega viðgerðir á sprungum milli íþróttahússins og Salthússins og í Hreystigarðinum. Þannig var Sólarvé tekið niður í byrjun vikunnar. Ljóst er að sprunguviðgerðir munu taka talsverðan tíma.

Samstarf við Alþjóðabankann um framhaldið

Á dögunum áttu bæjarráð, bæjarstjóri og sviðsstjórar Grindavíkurbæjar mjög gagnlegan fund með fulltrúum Alþjóðabankans ásamt fleiri hagaðilum. Þar fórum við yfir víðan völl varðandi endurreisn Grindavíkur, ræddum heiðarlega bæði það sem hefur gengið vel og það sem betur hefði mátt fara á liðnum misserum. Við fengum einnig kynningu á drögum að skýrslu sem bankinn mun skila af sér til okkar á næstu vikum. Sérfræðingar Alþjóðabankans sem við funduðum með hafa mikla alþjóðlega reynslu af uppbyggingu samfélaga eftir hamfarir.

Fulltrúar Grindavíkurbæjar og hagaðila sem funduðu með Alþjóðabankanum á dögunum

Skólastarf – Umsóknarfrestur rennur út á mánudaginn

Sá ábyrgi undirbúningur sem farið var í til að halda valmöguleikum opnum fyrir skólahald næsta haust heldur áfram. Við viljum minna á að umsóknarfrestur um nýja stöðu skólastjóra við sameinaðan leik- og grunnskóla Grindavíkur rennur út núna á mánudaginn. Foreldrum barna sem áhuga hafa á að skrá börn sín í samrekinn leik- og grunnskóla í Grindavík næsta haust er boðið til samtals við bæjaryfirvöld þriðjudaginn 17. mars kl. 17:00 í Kvikunni.

Vor í lofti og tjaldstæðið opnar

Að lokum er dásamlegt til þess að hugsa að það er farið að birta rækilega til og stutt í vorjafndægur. Birtan og hækkandi sól hafa ekki bara jákvæð áhrif á andann í okkur öllum, heldur auka þau einnig beinlínis öryggið í bænum okkar. Sem enn eitt skrefið í átt að eðlilegra lífi mun tjaldstæði bæjarins opna næstkomandi mánudag, 16. mars. Það verður vonandi til þess að glæða bæinn enn meira lífi þegar líður á vorið.

Með kveðju,
Bæjarstjórn Grindavíkur