Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
2. mars 2026

Mark­visst unn­ið að sprungu­við­gerð­um og nið­ur­rifi húsa

Nú stendur yfir mikilvægur áfangi í endurreisn Grindavíkur þar sem unnið er markvisst að því að tryggja öryggi og endurbyggja innviði bæjarins. Undanfari þess að hægt sé að draga úr lokunum og fækka afgirtum hættusvæðum er að ljúka viðgerðum á sprungum og tryggja yfirborð í bæjarlandinu.

Þetta umfangsmikla verkefni er unnið í nánu samstarfi Grindavíkurbæjar, Vegagerðarinnar og Grindavíkurnefndar. Öryggismál og eftirlit eru í hávegum höfð og framkvæmdum fylgt eftir með ítarlegu áhættumati, reglulegri vöktun og skýrum verkferlum til að tryggja öryggi íbúa og þeirra sem starfa á svæðinu.

Samgönguæðar tryggðar og lokahnykkur hafinn innanbæjar

Viðgerðir hófust haustið 2024 með fyrstu aðgerðaáætlun þar sem brýnustu samgönguæðar og lagnainnviðir voru í forgangi. Þeim áfanga er nú lokið. Eftir áramót tók við önnur aðgerðaáætlun sem hefur það markmið að ljúka öllum sprunguviðgerðum innan þéttbýlisins.

Til að tryggja góðan frágang og gæði var gerður rammasamningur við 11 verktaka eftir útboð og er hverju svæði fyrir sig úthlutað í gegnum svokölluð örútboð. Í janúar hóf verktakafyrirtækið G.G. Sig viðgerðir á Hópssprungu við Hópsskóla. Á dögunum var síðan skrifað undir samning við Jón og Margeir um viðgerðir á Stamphólsgjá á lóð íþróttahússins, auk viðgerða á Víðihlíðarsprungu við Efrahóp.

Góður gangur er í því að koma verkefnum til verktaka og binda stjórnvöld vonir við að eftir því sem líður á sumarið muni afgirtum hættusvæðum í bænum fækka verulega, íbúum og atvinnulífi til heilla.

Niðurrif altjónaðra húsa forsenda frekari viðgerða

Stór hluti þeirra húsa sem urðu fyrir altjóni í hamförunum stendur ofan á sprungum. Til að hægt sé að gera við þær sprungur er óhjákvæmilegt að rífa húsin fyrst. Grindavíkurbær leiðir þetta niðurrifsverkefni og hefur boðið eigendum þessara eigna að taka þátt í því.

Líkt og með sprunguviðgerðirnar var gerður rammasamningur við 9 verktaka haustið 2025 um niðurrifið. Fyrsta örútboðinu er nú þegar lokið, en þar var samið um niðurrif á þremur húsum: Mánagerði 2, og Mánagötu 19 og 21. Næstu útboð eru í vinnslu og er stefnt að því að niðurrif húsa verði komið vel á veg þegar líður á sumarið.

Kallað eftir upplýsingum frá húseigendum

Grindavíkurbær vill nýta tækifærið og hvetja eigendur altjónaðra húsa, sem ekki hafa nú þegar óskað eftir frekari upplýsingum um niðurrifsverkefnið, til að kynna sér málið og vera í sambandi.

Nánari upplýsingar um verkefnið veita Sigurður Rúnar Karlsson, forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar Grindavíkur og Guðjón Bragason, lögfræðilegur ráðgjafi.