Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkir að auglýsa eftir skólastjóra
Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 26. febrúar að ráðinn verði skólastjóri sem muni stýra samreknum leik- og grunnskóla í Grindavík.

Markmiðið með ráðningunni er að tryggja að hægt verði að bjóða upp á skólastarf í bænum haustið 2026, að því gefnu að aðstæður og eftirspurn leyfi.
Niðurstöður úr nýlegri forskráningu foreldra sýna að vilji er fyrir hendi meðal hluta barnafjölskyldna til að snúa aftur heim. Bæjarstjórn telur mikilvægt að mæta því ákalli með markvissum undirbúningi og auka þannig fyrirsjáanleika fyrir fjölskyldur sem þurfa að skipuleggja næsta vetur.
Ábyrgur undirbúningur fyrir næsta kjörtímabil
Sveitarstjórnarkosningar fara fram í vor og mun þá ný bæjarstjórn taka við keflinu, auk þess sem Grindavíkurnefndin lýkur störfum. Með því að auglýsa eftir skólastjóra núna er núverandi bæjarstjórn að tryggja að næsta stjórn hafi raunverulegt val um skólahald í Grindavík.
„Okkur ber skylda til að halda dyrunum opnum fyrir framtíðina,“ segir Ásrún Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar. „Það er vilji til þess innan bæjarstjórnar að skólahald hefjist í Grindavík í haust. Ef við hefjum ekki þennan undirbúning strax í dag, erum við í raun að taka þá ákvörðun fyrir næstu bæjarstjórn að ekki verði hægt að opna skóla í haust. Ráðning skólastjóra er lykilskref í að skipuleggja hvernig skólastarfi verður háttað, hvort sem er í leik- eða grunnskóla.“
Öryggið verður áfram í fyrirrúmi
Bæjaryfirvöld leggja áherslu á að þótt undirbúningur fari nú á fullt skrið, verði engar tilslakanir gerðar á öryggiskröfum. Endanleg ákvörðun um form og umfang skólahaldsins mun taka mið af þeirri stöðu sem bærinn er í á þeim tíma í samstarfi við foreldra og íbúa.
Nánari upplýsingar um starfið og umsóknarferlið verða birtar á vef Grindavíkur á næstu dögum.


