Náttúruvá
Í Grindavík er unnið eftir skýrum viðbragðsáætlunum þegar náttúruvá eða neyðarástand skapast. Hér má finna upplýsingar um viðbúnað, rýmingaráætlanir, hættumat og mikilvæga tengla um jarðskjálfta, eldgos og aðgerðir almannavarna.

Í neyðartilvikum eða ef hætta skapast skal hringja strax í neyðarnúmerið 112. Þar færð þú aðstoð allan sólarhringinn.
Fjöldahjálparstöð
Fjöldahjálparstöð fyrir Grindavík er í íþróttamannvirkjunum við Austurveg.
Þar er tekið á móti fólki ef rýming eða annað neyðarástand krefst þess.
Nánari upplýsingar um fjöldahjálparstöðvar er að finna í viðbragðsáætlun Almannavarna.
Almannavarnir og viðbragðsaðilar í Grindavík
Almannavarnir snúast um að vernda líf, heilsu, umhverfi og eignir þegar hætta skapast, til dæmis vegna náttúruhamfara, slysa eða annarra neyðarástanda. Markmiðið er að undirbúa samfélagið fyrir áföll, samhæfa viðbrögð þegar á reynir og styðja við enduruppbyggingu eftir áfall.
Í Grindavík skipta almannavarnir sérstaklega miklu máli vegna náttúruvár á svæðinu. Sveitarfélagið vinnur því náið með lögreglu, slökkviliði, heilbrigðisþjónustu, björgunarsveit og öðrum viðbragðsaðilum að skýrum viðbragðsáætlunum og reglulegum æfingum.
Í Grindavík er einnig starfandi almannavarnanefnd sem vinnur að undirbúningi og samræmingu almannavarnamála í sveitarfélaginu. Nefndin stuðlar að góðu samstarfi við viðbragðsaðila, fylgir eftir viðbragðsáætlunum og leggur áherslu á skýra upplýsingagjöf til íbúa.
Þegar neyðarástand skapast eru viðbragðsaðilar fyrstir á vettvang og vinna saman að því að tryggja öryggi íbúa og koma samfélaginu sem fyrst aftur í eðlilegt horf.
Hættumat og vöktun
Veðurstofa Íslands fylgist með jarðhræringum á Reykjanesskaga og gefur út hættumatskort fyrir svæðið.
Kortin sýna mat á hættu vegna jarðskjálfta, eldgosa og annarra náttúruváa og eru mikilvæg við skipulag viðbragða.
Jarðskjálftar – varnir og viðbúnaður
Upplýsingar um hvernig bregðast skuli við jarðskjálftum eru aðgengilegar á fleiri tungumálum.
Tenglar:
- Jarðskjálftar - varnir og viðbúnaður (íslenska)
- Earthquakes – preparedness and response (English)
- Trzęsienia ziemi – przygotowanie i reagowanie (Polski)
Eldgos – upplýsingar og viðbúnaður
Upplýsingar um eldgos, viðbrögð og stöðu má finna á eftirfarandi síðum:
Viðbragðsáætlanir og rýming
Helstu áætlanir sem gilda fyrir Grindavík:
Rýmingaráætlanir stofnana Grindavíkurbæjar
Hver stofnun Grindavíkurbæjar hefur eigin rýmingaráætlun.
- Bókasafn
- Bæjarskrifstofur
- Dagdvöl – Víðihlíð
- Grindavíkurhöfn
- Grunnskóli Grindavíkur
- Túngata 15-17
- Íþróttamiðstöð Grindavíkur
- Kvikan menningarhús
- Leikskólinn Krókur
- Leikskólinn Laut
- Þjónustumiðstöð Grindavíkur
- Þruman félagsmiðstöð
- Vinnuskóli Grindavíkur
- Tónlistarskóli Grindavíkur
Einnig er hægt að nálgast heildarskjal með rýmingaráætlunum stofnana.