Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Ung­menna­þing í Grinda­vík

  • Grindavík
  • 21. mars 2026, kl. 11:00

Ungmennaráð Grindavíkur stendur fyrir ungmennaþingi í Grindavík. Öll ungmenni 13 ára og eldri eru hvött til að taka þátt!

11:00 Húsið opnar

11:30 Ávarp

Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar

11:40 - 13:00 Borðumræður

Rætt verður um skólamál, íþróttir og tómstundir, öryggi í bænum, framtíð Grindavíkur og önnur málefni sem brenna á ungu fólki.

13:00 - 13:30 Veitingar

Frá Hérastubbi bakara og annað góðgæti.

Nice guys munu stíga á svið!

13:30-14:30 Framhald umræðna og samantekt

Helstu atriði dregin saman og opnað fyrir frekari umræður um önnur málefni.

Sundlaugapartý að loknu ungmennaþingi og opið í gamla salnum í íþróttahúsinu.

Frítt inn!

Öll ungmenni 13 ára og eldri velkomin!

Málstjóri Bryndís Gunnlaugsdóttir

Snarteiknari Elín Elísabet Einarsdóttir