Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni

Leik­hús­ferð Fé­lags eldri borg­ara í Grinda­vík

  • Íþróttahúsið í Grindavík
  • 09. okt. 2026, kl. 20:00

Félag eldri borgara í Grindavík stendur fyrir leikhúsferð í Borgarleikhúsið föstudaginn 9. október þar sem farið verður á sýninguna Svikasögur. Sýningin hefst kl. 20:00.

Rúta fer frá Nesvöllum kl. 18:00 fyrir félaga sem búsettir eru á Suðurnesjum, að því gefnu að næg þátttaka fáist. Félagar sem búa á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi koma sér sjálfir í Borgarleikhúsið og heim að sýningu lokinni.

Miðaverð er 7.000 kr. og þarf að panta og greiða miða í síðasta lagi 20. september.

Greiða skal inn á reikning FEB Grindavík:
Kt.: 570409-1660
Reikningsnúmer: 0146-05-660063

Skráning og nánari upplýsingar:
Ágústa – 897 4750
Maddý – 896 3173

Leikhúsferð Félags eldri borgara í Grindavík - Grindavíkurbær