Skipulagsnefnd - 95. fundur
- 31.01.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 95
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar: Gossvæði og sæstrengur
Umsagnir við aðalskipulagsbreytinguna lagðar fram til upplýsinga og umræðu.
Umsagnir og athugasemdir við aðalskipulagsbreytinguna lagðar fram.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.2. Breytingar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar - golfvöllur, stígur og hreinsivirki
Umsagnir við aðalskipulagsbreytinguna lagðar fram til upplýsinga og umræðu.
Umsagnir og athugasemdir við aðalskipulagsbreytinguna lagðar fram.
Breyta þarf afmörkun á íþróttasvæðinu þannig að gamla æfingasvæðið og brautir 13 og 14 verði innan svæðisins.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.3. Hverfisskipulag Stíga- og Vallahverfis í Grindavík
Uppfærð greinargerð og uppdráttur lögð fram. Breytingar á greinargerð frá síðasta fundi eru merktar sérstaklega.
Uppfærð vinnslutillaga hverfisskipulags fyrir Stíga- og Vallarhverfi, greinargerð og uppdráttur, lögð fram.
Sviðsstjóra falið að setja vinnslutillöguna í kynningu fyrir umsagnaraðilum og íbúum hverfisins.4. Deiliskipulagsbreyting - Svartsengi
HS orka óskar eftir að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulag Svartsengis, iðnaðarsvæði og svæði undir verslun og þjónustu.
HS orka óskar eftir að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi Svartsengis, iðnaðarsvæði og svæði undir verslun og þjónustu.
Efni breytingartillögu er eftirfarandi:
- Byggingarreitur fyrir kæliturn við austurhlið kæliturns OV6 er felldur út. Byggingarreitur fyrir kæliturn Orkuvers 7 (OV7), við vesturhlið núverandi kæliturn OV6, er stækkaður og verður hann 4.590 m2. Innan byggingarreits er nú gert ráð fyrir kæliturni ásamt þró og dælustöð. Skilmálar um hámarkshæð er 17m er óbreytt og leyfilegt byggingarmagn kæliturna verður óbreytt, sbr. skilmálatöflu.
- Nýr byggingarreitur 20x20m er afmarkaður fyrir nýtt tengivirki þar sem kælasamstæða OV4 stendur nú en gert er ráð fyrir að víki samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Grunnflötur tengivirkis er um 8x19m. Þakhæð tengivirkis er allt að 6 m. Byggingin samanstendur af steyptum kjarna og rofasal sem er stálgrindarhús, einangrað og klætt með málmklæðningu. Stærð byggingarreits miðar við að mögulegt verði að snúa tengivirkinu á þann veg sem hentar best.
Skipulagnefnd heimilar umsækjenda að fara í umbeðna deiliskipulagsbreytingu og að það verði gert í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sviðsstjóra falið að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum aðliggjandi lóða þ.e. Northern Light Inn, Bláa Lóninu og CRI.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi:
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.5. Deiliskipulagsbreyting - Arnarhlíð 8
Óskað er eftir að deiliskipulagi við Arnarhlíð 8 verði breytt, þ.e. byggingarreitur stækkaður og formi hans breytt.
Albert L. Albertsson óskar eftir að deiliskipulagi við Arnarhlíð 8 verði breytt, þ.e. byggingarreitur stækkaður um 3 m2 og formi hans breytt.
Skipulagnefnd heimilar umsækjenda að fara umbeðna deiliskipulagsbreytingu og að það verði gert í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sviðsstjóra falið að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhafa við Arnarhlíð 7.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi:
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.6. Umsókn um byggingarleyfi - Staðarhraun 1
Árni Páll Jónsson og Karítas Viðarsdóttir sækja um leyfi til að byggja eina hæð ofan á núverandi hús við Staðarhraun 1.
Árni Páll Jónsson og Karítas Viðarsdóttir sækja um leyfi til að byggja eina hæð ofan á núverandi hús við Staðarhraun 1.
Lóðin er á ódeiliskipulögðu svæði. Samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gr. 5.9.12 skipulagsreglugerðar skal fara fram grenndarkynning á byggingaráformunum á ódeiliskipulögðum svæðum.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að grenndarkynna byggingaráformin fyrir lóðarhöfum að Staðarhrauni 2-10 og Víkurbraut 29, 50, 52 og 54.7. Umsókn um gististað - Víkurbraut 22
Sótt er um leyfi til að hafa gistingu í flokki II, tegund C við Víkurbraut 22.
Sótt er um leyfi til að hafa gistingu í flokki II, tegund C við Víkurbraut 22.
Í greinagerð aðalskipulags Grindavíkur segir m.a í kafla 2.1.1:
„...Umsóknir um nýja gististaði í flokki II, tegund c innan íbúðarbyggðar skal skipulagsnefnd sérstaklega fjalla um og skal leyfi til reksturs vera háð ákvörðun nefndarinnar. Við mat á umsókn skal skipulagsnefnd líta til þess að kröfur um bílastæði séu uppfylltar, horfa skal til staðsetningar innan íbúðarbyggðar og aðkomu. Umsóknir sem þessar skulu ávallt grenndarkynntar fyrir nágrönnum....“.
Sviðsstjóra falið að grennarkynnina áformin fyrir lóðarhöfum við Víkurbraut 15,17,18, 19 og 20.8. Umsókn um byggingarleyfi - Mánagata 19
Ágústa Gísladóttir sækir um leyfi til að byggja 5,2 m2 sólskála framan við bílskúrshurð.
Ágústa Gísladóttir sækir um leyfi til að byggja 5,2 m2 sólskála framan við bílskúrshurð við Mánagötu 19.
Lóðin er á ódeiliskipulögðu svæði. Samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gr. 5.9.12 skipulagsreglugerðar skal fara fram grenndarkynning á byggingaráformunum á ódeiliskipulögðum svæðum.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að grenndarkynna byggingaráformin fyrir lóðarhöfum við Mánagötu 17 og 21.9. Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna rannsóknarholu
Matorka sækir um framkvæmdaleyfi vegna rannsóknarholu vestan við eldisstöðvar í Húsatóftum.
Matorka sækir um framkvæmdaleyfi vegna rannsóknarholu vestan við eldisstöðvar í Húsatóftum.
Framkvæmdaraðili hefur leitað umsagna frá Orkustofnun og landeiganda (Ríkiseignum). Viðbrögð þeirra liggja fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkir að heimila borun á rannsóknarholu á norðaustur hluta þessa svæðis sem óskað er eftir.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að umsækjandi vinni framkvæmdina í samráði við Golfklúbb Grindavíkur. Þá þarf að óska heimildar hjá Vegagerðinni lendi holan innan vegahelgunarsvæðis Nesvegar.
Fullnaðarafgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.