Skipulagsnefnd - 125. fundur
- 18.09.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 125
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
- Elísabet Bjarnadóttirsérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 3 mál: Deiliskipulagsbreytinga á hafnargötu og nágrenni, nr. 2309097
1. Deiliskipulag íþróttasvæðis (ÍÞ1)
Deiliskipulagsbreyting fyrir íþróttasvæðið (ÍÞ1) lögð fram til umræðu. Á fundi 124 samþykkti skipulagnefnd að gera eftirf. breytingar á skipulagstillögunni:
- Íbúðarsvæði meðfram Stamphólsvegi verði fært 10-12 metra frá íþróttamiðstöð.
- Skilmálar um hvenær lóð v. fjölbýlishúsa verði úthlutað verði settir inn á deiliskipulagstillögu íþróttasvæðisins.
Teknar verða fyrir tillögur að breytingum á skipulaginu út af fyrrnefndu.Jón Stefán Einarsson, frá JEES Arkitektum sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir kynntar tillögur og samþykktu tilfærslu íbúðarsvæðis um 12 metra til norðurs frá íþróttamiðstöðinni. Nefndin samþykkti einnig að framsetning skilmála um úthlutun lóða væri fullnægjandi í tillögu deiliskipulagsbreytingarinnar. Þar segir að úthlutun fjölbýlishúsalóðar skuli ekki verða útfærð fyrr en eftir að gervigrasvöllur æfingarsvæðis við lóðina er orðin klár. Þá samþykkir nefndin að lengja byggingarreit fyrir varamannabekki við aðalvöll bæði til norðurs og suðurs um 5 metra (B1b). Möstrin að norðanverðu á æfingasvæði verða við norðurenda vallarins.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu með áorðnum breytingum og samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa skipulagstillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagstillagana verður auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu fyrir svæðið, sbr. mál nr. 2 á þessum fundi.
Bókun skipulagsnefndar er send til bæjarstjórnar til afgreiðslu.2. Aðalskipulagsbreyting íþróttasvæði (ÍÞ1) og íbúðarbyggð (ÍB7)
Á fundi nr.124 samþykkti skipulagnefnd að gera eftirfarandi breytingar á aðalskipulagstillögunni:
- Íbúðarsvæði með fram Stamphólsvegi verði fært 10-12 metra frá íþróttamiðstöð.
Teknar verða fyrir tillögur að breytingum á skipulaginu út af fyrrnefndu.Jón Stefán Einarsson, frá JEES Arkitektum sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að aðalskipulagsbreytingu sem er í samræmi við samþykkta deiliskipulagstillögu. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagstillagan verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði falið að senda Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar fyrir auglýsingu. Verði engar athugasemdir að hálfu Skipulagsstofnunar þá er skipulagsfulltrúa fallið að auglýsa skipulagstillöguna í framhaldinu samhliða breyttu deiliskipulagið fyrir íþróttasvæðið, sbr. mál nr 1 á þessum fundi.3. Deiliskipulagsbreytinga á hafnargötu og nágrenni
Deiliskipulagsbreyting Hafnargötu tekið til umfjöllunar.
Jón Stefán Einarsson, frá JEES Arkitektum sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Deiliskipulagsbreyting Hafnargötu tekin til umfjöllunar. Tillögur ræddar ásamt næstu skrefum.4. Deiliskipulag við Víðihlíð-aldursskilyrði
Skipulagsfulltrúi leggur til að aldursskilyrði í deiliskipulagi við Víðihlíð verði breytt úr 55 ára í 50 ára.
Skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi við Víðihlíð. Breytingin snertir aðeins textabreytingu á einni tölu, þar sem aldursskilyrði er breytt úr 55 ára í 50 ára.
Skipulagsnefnd samþykkir að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða og fara skuli með breytinguna skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins. Íbúar hverfisins eru nú þegar 50 ára og eldri.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagsbreyinguna. Í samræmi við viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagsfulltrúa er falið að uppfæra textabreytingu deiliskipulagsuppdrátt og afgreiða skipulagsbreytinguna til Skipulagsstofnunar í samræmi við skipulagslög.5. Umsókn um deiliskipulagsbreytingu - Víkurbraut 66 og 68
Grindin ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi fyrir Víkurbraut 66 og 68.
Lögð er fram breyting á deiliskipulagi fyrir Víkurbraut 66 og 68. Áætlað er að sameina lóðirnar svo verði úr Víkurbraut 66. Þá biður umsækjandi um heimild fyrir íbúðarbyggingar á tveimur hæðum með aðkomu frá Suðurhópi. Áætlað er að íbúðir verði um 40 stk., 50-80m2 að stærð með inngarð á milli íbúða og sérgeymsla.
Skipulagsnefnd samþykkir að málsmeðferð á deiliskipulagsbreytingunni verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðahöfum við Stamphólsveg 3 og 5 ásamt því að kynna hana fyrir bæjarráði.6. Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Vallartún
Send er inn fyrirspurn vegna Vallartúns í gamla bænum. Óskað er eftir að fá að hefja skipulagsvinnu fyrir frístundahús.
Send er inn fyrirspurn vegna Vallartúns í gamla bænum. Óskað er eftir að fá að hefja skipulagsvinnu fyrir frístundahús.
Málinu frestað til næsta fundar. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.7. Víkurbraut 36 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
Sótt er um leyfi til að breyta notkun á bílsskúr í íbúðarhúsnæði að Víkurbraut 36 MHL02, F2092539, jafnframt er sótt um að vera með atvinnurekstur fyrir sjúkraþjálfara í hluta af íbúðarhúsnæðinu.
Sótt er um leyfi til að breyta notkun á bílsskúr í íbúðarhúsnæði að Víkurbraut 36 jafnframt er sótt um að vera með atvinnurekstur fyrir sjúkraþjálfara í hluta af íbúðarhúsnæðinu.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna umsóknina fyrir lóðarhöfum við Víkurbraut 34 og 38 ásamt Túngötu 7 og 9.8. Umsókn um gistiheimili- Vík
Spurt er fyrir um gistiheimili á Vík. Neðri hæð skiptist í tvær íbúðir með svefnplás 8 mans 3 svefnherbergi og svefnsófa í stofu. Bílastæði er fyrir 4 bíla er fyrir framan
Fyrirspurn vegna gistiheimilis í Vík tekin til umfjöllunar. Neðri hæð skiptist í tvær íbúðir með svefnplás átta manns þrjú svefnherbergi og svefnsófa í stofu. Bílastæði fyrir 4 bíla verða fyrir framan.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi Grindavíkurbæjar fyrir íbúðarbyggð segir meðal annars eftirfarandi:
"Umsóknir um nýja gististaði í flokki II, tegund c innan íbúðarbyggðar skal
skipulagsnefnd sérstaklega fjalla um og skal leyfi til reksturs vera háð ákvörðun nefndarinnar. Við mat á umsókn skal skipulagsnefnd líta til þess að kröfur um bílastæði séu uppfylltar, horfa skal til staðsetningar innan íbúðarbyggðar og aðkomu. Umsóknir sem þessar skulu ávallt grenndarkynntar fyrir nágrönnum ....."
Skipulagsnefnd leggur það til við umsækjanda að hann sæki um byggingarleyfi vegna breyttrar notkunar á húsnæðinu við Vík. Erindinu skulu fylgja teiknignar sem sýna breytingar innan hús og skipulag lóðar.9. Fyrirspurn vegna hæðarkóta við Spóahlíð 12-20
Beiðni um breytingu á hæðarkóta fyrir Spóahlíð 12-20 lögð fram. Teikningar og samskipti lögð fram með erindinu.
Lóðarhafi við Spóahlíð 12 -20 óskar eftir breytingu á hæðarkótum botnplötu raðhússins. Samkvæmt framlögðum gögnum er hæð húss innan þeirra marka sem deiliskipulagið heimilar m.v. núverandi hæðarkóta á botnplötu. Skipulagsnefnd telur því ekki þörf á að grenndarkynna umbeðnar breytingar á hæðarkótum.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að uppfæra útgefið lóðarblað fyrir lóðirnir til samræmi við beiðnina.10. Keflavíkurflugvöllur - umsögn á lýsingu nýs aðalskipulags
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar hefur óskað eftir umsögn við skipulags- og matslýsingu á endurskoðun aðalskipulags Keflavíkurflugvallar 2023-2040.
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar hefur óskað eftir umsögn við skipulags- og matslýsingu á endurskoðun aðalskipulags Keflavíkurflugvallar 2023-2040.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.11. Hafnarfjarðarkaupstaður - umsögn á auglýstri tillögu aðalskipulagsbreytingar
Hafnarfjarðarkaupstaður hefur óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar við eftirfarandi mál í skipulagsgáttinni:
Færsla á Hamraneslínu 1 og 2, breyting á aðalskipulagi, nr. 0576/2023: Auglýsing tillögu (Breyting á aðalskipulagi)Hafnarfjarðarkaupstaður hefur óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar við eftirfarandi mál í skipulagsgáttinni:
Færsla á Hamraneslínu 1 og 2, breyting á aðalskipulagi, nr. 0576/2023: Auglýsing tillögu (Breyting á aðalskipulagi)
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.12. Aðalskipulagsbreyting vegna Móa - Miðbæjar í Þorlákshöfn
Sveitarfélagið Ölfus hefur óskað eftir umsögn við eftirfarandi mál:
Aðalskipulagsbreyting vegna Móa - Miðbæjar í Þorlákshöfn, nr. 0374/2023: Auglýsing tillögu (Breyting á aðalskipulagi). Kynningartími er til 28.9.2023.Sveitarfélagið Ölfus hefur óskað eftir umsögn við eftirfarandi mál:
Aðalskipulagsbreyting vegna Móa - Miðbæjar í Þorlákshöfn, nr. 0374/2023: Auglýsing tillögu (Breyting á aðalskipulagi). Kynningartími er til 28.9.2023.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.13. Fundargerðir 2023 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja nr. 39 og 40 lagðar fram.
Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja nr. 39 og 40 lagðar fram til upplýsinga.