Skipulagsnefnd - 126. fundur
- 02.10.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:35
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 126
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Laufið - kynning
Bæjarfulltrúum hefur verið boðið að sitja fundinn undir dagskrárliðnum.
Fulltrúar frá Laufinu mæta til fundarins og kynna Laufið og mögulega innleiðingu þess. Laufið er að leggja af stað með innleiðingu hjá Hafnarfirði, Árborg og Reykjanesbæ svo eitthvað sé nefnt. Upplýsingar um Laufið má finna á heimasíðu þeirra https://www.laufid.is/Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Ramsay Káradóttir, Hjálmar Hallgrímsson og Helga Dís Jakobsdóttir ásamt Fannari Jónassyni, bæjarstjóra, sátu fundinn undir dagskrárliðnum. Magnús Jónatansson frá Laufinu ehf. mæti til fundarins til að kynna Laufið.
Laufið býður upp á stafrænan vettvang sem stuðlar að sjálfbærri þróun íslensks atvinnulífs.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.2. Svansvottun - kynning
Bæjarfulltrúum hefur verið boðið að sitja fundinn undir dagskrárliðnum.
Fulltrúar frá Svaninum mæta til fundarins og kynna ferli Svansvottunar. Upplýsingar um svansvottun má finna á heimasíðu þeirra https://www.svanurinn.isBæjarfulltrúarnir Birgitta H. Ramsay Káradóttir, Hjálmar Hallgrímsson og Helga Dís Jakobsdóttir ásamt Fannari Jónassyni, bæjarstjóra, sátu fundinn undir dagskrárliðnum. Berþóra Kvaran frá Svaninum mæti til fundarins til að kynna
Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem var komið á fót af Norrænu ráðherranefndinni árið 1989. Meginmarkmið Svansins er að draga úr umhverfisáhrifum af vörum eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni kosti.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.3. Innviðir fyrir orkuskipti
Borist hefur erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem sveitarfélögum er bent á að byggja þurfi hratt upp hleðsluinnviði og dreifi- og flutningskerfi raforku vegna orkuskipta í samgöngum á landi.
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Ramsay Káradóttir, Hjálmar Hallgrímsson og Helga Dís Jakobsdóttir ásamt Fannari Jónassyni, bæjarstjóra, sátu fundinn undir dagskrárliðnum.
Bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu lagt fram þar sem sveitarfélögum er bent á að byggja þurfi hratt upp hleðsluinnviði og dreifi- og flutningskerfi raforku vegna orkuskipta í samgöngum á landi.4. Hraðhleðslustöðvar í Grindavík - beiðni frá HS orku
HS orka og InstaVolt hafa mikinn áhuga á að setja niður 4 hleðslustöðvar á bílastæðið við Íþróttahúsið ( HS orku höllina). Tillagan að staðsetningu lögð fram til umræðu og ákvörðunartöku.
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Ramsay Káradóttir, Hjálmar Hallgrímsson og Helga Dís Jakobsdóttir ásamt Fannari Jónassyni, bæjarstjóra, sátu fundinn undir dagskrárliðnum.
HS orka og InstaVolt hafa mikinn áhuga á að setja niður 4 hleðslustöðvar á bílastæðið við Íþróttahúsið (HS orku höllina).
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram með HS orku og InstaVolt og afgreiða málið með bæjarráði.5. Túngata 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Grenndarkynningu er lokið á athugasemda.
Umsókn um byggingarleyfi vegna Túngötu 1 lögð fram í kjölfar grenndarkynningar, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar. Sviðsstjóra falið að afla frekari gagna.6. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 77
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála nr. 77 lögð fram.
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála nr. 77 lögð fram.