Skipulagsnefnd - 111. fundur
- 19.12.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 111
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 4. mál: Glæsivellir 21A - breyting á hverfisskipulag - 2210068.
Samþykkt samhljóða.
1. Víkurbraut 25 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Fulltrúar Milu mæta til fundarins til að ræða byggingarleyfisumsóknina. Bæjarráði hefur verið að boðið að sitja fundinn undir dagskrárliðnum.
Fulltrúar Mílu komust ekki á fundinn vegna veðurs. Erindi frestað til fundar skipulagsnefndar í janúar.
2. Breyting á deiliskipulagi - Spóahlíð 3
Grenndarkynningu vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi við Spóahlíð 3 er lokið án athugasemda.
Tekin er fyrir tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóahlíð 3. Grenndarkynningu er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna. Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagfulltrúa er falið að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.3. Fyrirspurn til skipulagsnefnd vegna Spóahlíðar 22-30
Smiðshöggið ehf. óskar eftir að fá að fjölga húsum í raðhúsalengju við Spóahlíð 22-30 um eitt. Í stað 5 húsa 9m breitt hvert þá er óskað eftir að fá að reisa 6 hús, 7,5m hvert.
Smiðshöggið ehf. óskar eftir að fá að fjölga húsum í raðhúsalengju við Spóahlíð 22-30 um eitt. Í stað 5 húsa 9m breitt hvert þá er óskað eftir að fá að reisa 6 hús, 7,5m hvert.
Skipulagsnefnd vill ekki breyta því skipulagi sem er á raðhúsalóðunum við Spóahlíð. Erindinu er því hafnað.4. Glæsivellir 21a - breyting á hverfisskipulag
Grenndarkynningu er lokið og bárust þrjár athugasemdir.
Skipulagsnefnd....Grenndarkynningu er lokið og bárust þrjár athugasemdir frá aðliggjandi lóðarhöfum.
Skipulagsnefnd hafnar því að breyta hverfisskipulaginu á þann hátt sem óskað er eftir að teknu tilliti til þeirra athugasemda sem bárust.5. Staður laxeldisstöð - Umsókn um byggingarleyfi
Samherji sækir um byggingarleyfi fyrir Seiðahúsi við bleikjueldið á Stað vestan Grindavíkur. Byggingin er staðsteypt með yleiningar á þaki. Stærð er 2.743,1 m2.
Samherji fiskeldi ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir seiðahúsi við bleikjueldið á Stað. Skipulagsnefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag.
Þar sem byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu þá er um fullnaðarafgreiðslu skipulagsnefndar að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.6. Hafnargata 20-22 20R - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
Þorbjörn hf. óskar sækir um byggingarleyfi/heimild til að byggja geymslu við núverandi húsnæði fyrirtækisins við Hafnargötu 22.
Hrannar Jón Emilsson vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Þorbjörn hf. sækir um byggingarleyfi fyrir geymslu við núverandi húsnæði fyrirtækisins við Hafnargötu 22. Skipulagsnefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag.
Þar sem byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu þá er um fullnaðarafgreiðslu skipulagsnefndar að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.7. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 68
Fundargerð byggingar- og skipulagsmála nr. 68 lögð fram.
Fundargerð byggingar- og skipulagsmála nr. 68 lögð fram.