Skipulagsnefnd - 99. fundur
- 04.04.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 99
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknarholu HAL 3 við Reykjanesvirkjun
HS orka sækir um framkvæmdarleyfi fyrir rannsóknarholu HAL3 við Reykjanesvirkjun.
HS Orka óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknarholu HAL 3 og gerð aðkomuvegar að borteig. Allar framkvæmdir eru í samræmi við skipulagsáætlanir og ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu.
Framkvæmdasvæðið er innan skilgreinds iðnaðarsvæðis I9, sbr. Aðalskipulag Grindavíkur 2018-2032. Gert er ráð fyrir framkvæmdinni í deiliskipulagi svæðisins, sbr. deiliskipulag orkuvinnslu og iðnaðar á Reykjanesi í Grindavík sem var samþykkt í bæjarstjórn 22. febrúar 2022.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdarleyfið og felur sviðsstjóra að gefa út framkvæmdaleyfið.2. Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir framkvæmdir í tengslum við Orkuver 7 í Svartsengi
HS orka sækir um framkvæmdarleyfi vegna framkvæmda í tengslum við Orkuver 7 í Svartsengi.
HS Orka óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir kaldavatnslögnum, gufustofnum, bunustokk og tengdri jarðvinnu. Allar framkvæmdir eru í samræmi við skipulagsáætlanir og ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu. Jafnframt eru allar framkvæmdir utan verndarsvæða.
HS Orka vinnur að undirbúningi hönnunar fyrir mannvirki, sem falla undir byggingarleyfi. Innan skamms mun fyrirtækið sækja um byggingarleyfi fyrir nýjar byggingar og mannvirki, ásamt heimild fyrir niðurrifi.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdarleyfið og felur sviðsstjóra að gefa út framkvæmdaleyfið.3. Umsókn um byggingarleyfi - Ásabraut 2 (Grunnskóli Grindavíkur)
Grindavíkurbær sækir um byggingarleyfir vegna klæðningar utanhúss á Grunnskólann við Ásabraut 2.
Grindavíkurbær sækir um byggingarleyfi vegna klæðningar utanhúss á Grunnskólann við Ásabraut 2. Framkvæmdinni er skipt í þrjá áfanga.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.4. Samþykkt um gatnagerðargjöld - tillaga að breytingu
Tillag að breytingum á samþykkt Grindavíkurbæjar um gatnagerðargjöld lögð fram.
Tillaga að breytingum á samþykkt Grindavíkurbæjar um gatnagerðargjöld lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með áorðnum breytingum og vísar henni til umræðu í bæjarráði og í framhaldinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.5. Reglur um lóðaúthlutannir - tillaga að breytingu
Tillaga að breytingum á reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutannir lögð fram.
Tillaga að breytingum á reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutannir lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með áorðnum breytingum og vísar henni til umræðu í bæjarráði og í framhaldinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.6. Bæjarmálasamþykkt Grindavíkur
Bæjarmálasamþykkt Grindavíkur sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 29. mars 2022 lögð fram.
Bæjarmálasamþykkt Grindavíkur sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 29. mars 2022 lögð fram til kynningar.