Skipulagsnefnd - 59. fundur
- 19.06.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:15 -
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 59
- Ritari: Atli Geir Juliusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. BESA ehf - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi í fullu umboði lóðarhafa, til breytinga innandyra og uppsetningu gáma og tanka á lóð mannvirkisins sbr. meðfylgjandi umsókn og teikningar.
Sótt er um leyfi í fullu umboði lóðarhafa, til breytinga innandyra og uppsetningu gáma og tanka á lóð mannvirkisins sbr. meðfylgjandi umsókn og teikningar.
Skipulagsnefnd heimilar BESA ehf. stöðuleyfi fyrir gáma á lóðinni. Skipulagsnefnd getur ekki heimilað uppsetningu tanka á lóð utan byggingarreits, ósk um byggingarleyfi því hafnað.
Skipulagsnefnd heimilar BESA ehf. að fara í deiliskipulagsbreytingu á Bakkalág 17 til stækkunar byggingarreits sem leggja þarf fram til samþykktar í skipulagsnefnd. Kostnaður vegna deiliskipulagsbreytingarnar greiðist af umsækjanda. Sviðstjóra falið að grenndarkynna breytinguna fyrir eigendum Bakkalág 15.2. Umsókn um framkvæmdaleyfi - 43 Grindavíkurvegur 2+1, 2019
Umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni vegna áframhaldandi framkvæmdir við Grindavíkurveg (43).
Umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni vegna áframhaldandi framkvæmda við Grindavíkurveg (43).
Skipulagsnefnd samþykktir framkvæmdaleyfið.3. Vegagerðin - Undirgöng undir Víkurbraut
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna ganga undir Víkurbraut við gatnamótin að Suðurhópi.
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna ganga undir Víkurbraut við gatnamótin að Suðurhópi.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdarleyfið.4. HS Veitur - Fyrirspurn um staðsetningu á nýrri dreyfistöð
Fyrirspurn fyrir hönd HS Veitur, vegna lóðar fyrir DRE-131 við Bakkalág 17, Grindavík. Einnig minnkuð lóð Bakkalág 17 vegna DRE-131, sjá tillögu að nýjum lóðarblöðum.
Fyrirspurn fyrir hönd HS Veitur, vegna lóðar fyrir DRE-131 við Bakkalág 17, Grindavík. Einnig minnkuð lóð Bakkalág 17 vegna DRE-131, sjá tillögu að nýjum lóðarblöðum.
Skipulagsnefnd felur sviðstjóra að afla frekari gagna. Staðsetning dreifistöðvar er innan lóðar Bakkalág 17, tryggja þarf aðgengi að mannvirkinu.5. Fyrirspurn um land fyrir verksmiðjuframleiðslu á koltvísýring (CO2)
Fyrirspurn Ísaga vegna lands við Orkubraut undir nýja verksmiðju með framleiðslu á koltvísýring í huga (CO2)og mögulegt samstarf við HS Orku.
Fyrirspurn Ísaga vegna lands við Orkubraut undir nýja verksmiðju með framleiðslu á koltvísýring í huga (CO2)og mögulegt samstarf við HS Orku.
Skipulagsnefnd felur sviðstjóra að afla frekari gagna. Athuga þarf umfang verkefnisins ásamt stærð og hæð mannvirkja.6. Ljósaskillti fyrir HS Orku hf við Grindavíkurveg
HS Orka er að undirbúa að setja upp ljósaskilti við afleggjarann inn í Eldborg og spyr hvort Grindavíkurbær sjái einhverja meinbugi á þessari framkvæmd.
HS Orka er að undirbúa að setja upp ljósaskilti við afleggjarann inn í Eldborg og spyr hvort Grindavíkurbær sjái einhverja meinbugi á þessari framkvæmd.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd en bendir á að sækja þarf um byggingarleyfi samkvæmt gr. 2.5.1 í byggingarreglugerð.7. Auðsholt - Umsókn um byggingarleyfi
Fyrirspurn um byggingu timburhúss á lóðinni að Auðsholti. Húsið yrði að grunnfleti 70 m2 með 58,3 m2 geymslurými á efri hæð með 45° þakhalla. Sjá meðfylgjandi fyrirspurn og teikningar að sambærilegu húsi.

Skipulagsnefnd líst vel á nýjar teikningar af fyrirhuguðu húsi. Skipulagsnefnd bendir á að hnitsetja þarf lóðina Auðsholt (L129129). Einnig þarf samþykki lóðareiganda á fyrirhugaðri framkvæmd.8. Efstahraun 19 - Umsókn um byggingarleyfi
Óskað er eftir leyfi til að reisa steypta veggi á lóðarmörkum til vesturs og að hluta til suðurs. Veggir þessir verða jafnháir og bílskúr á sömu lóð eða 2,8 metrar að hæð.
Óskað er eftir leyfi til að reisa steypta veggi á lóðarmörkum til vesturs og að hluta til suðurs. Veggir þessir verða jafnháir og bílskúr á sömu lóð eða 2,8 metrar að hæð.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið að uppfylltu því skilyrði að framkvæmdin verði grendarkynnt fyrir eigandum að Efstahrauni 21.9. Leynisbrún 10 - Garðhús
Húseigandi óskar eftir að fá að setja garðhús - vinnustofu við suðvesturhorn hússins.
Sjá stærð og staðsetningu á meðfylgjandi skissu.Húseigandi óskar eftir að fá að setja garðhús - vinnustofu við suðvesturhorn hússins.
Sjá stærð og staðsetningu á meðfylgjandi skissu.
Umsókninni er hafnað. Framkvæmdin fellur ekki undir gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð þar sem svæðið er ekki deiliskipulagt, sækja þarf um byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni.10. Hópsheiði 2 - Fyrirspurn um byggingu hesthúss
Fyrirspurn um hvort hægt sé að fá leyfi til að byggja hesthús á lóðinni Hópsheiði 2 í Grindavík. Send var fyrirspurn um sama erindi á síðasta ári og er bent á að stuðst hafi verið við rangt deiliskipulag við afgreiðslu málsins.

Samkvæmt núgildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja hesthús á lóðinni Hópsheiði 2.11. Víkurhóp 16 - 22 - Breyting á deiliskipulagi
Mótmæli íbúa við Víkurhóp 24 vegna grenndarkynningar á deiliskipulagsbreytingu vegna Víkurhóps 16 til 22.
Mótmæli íbúa nærliggjandi lóða vegna grenndarkynningar á deiliskipulagsbreytingu vegna Víkurhóps 16 til 22.
Skipulagsnefnd hafnar deiliskipulagsbreytingunni að teknu tilliti til athugasemda nærliggjandi íbúa samkvæmt grenndarkynningu. Guðmundur greiðir atkvæði með breytingunni aðrir eru á móti.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til bæjarráðs til afgreiðslu.12. ÍAV - Umsókn um framkvæmdaleyfi
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna viðhaldsverkefnis á brunni og lögnum að honum við gatnamótin Staðarhraun - Leynisbraut.
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna viðhaldsverkefnis á brunni og lögnum að honum við gatnamótin Staðarhraun - Leynisbraut.
Framkvæmdin er ekki framkvæmdarleyfisskyld.13. Víkurbraut 15 - Fyrirspurn varðandi fyrirhugaða stækkun
Fyrirspurn varðandi fyrirhugaða viðbyggingu við Víkurbraut 15 (Brimnes), ætlunin er að byggja ca. 26 m2 geymsluherbergi við vesturhlið hússins.
Fyrirspurn varðandi fyrirhugaða viðbyggingu við Víkurbraut 15 (Brimnes), ætlunin er að byggja ca. 26 m2 geymsluherbergi við vesturhlið hússins.
Framkvæmdin fellur undir gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð og er þar af leiðandi ekki byggingarleyfisskyld. Tilkynna skal framkvæmdina til byggingarfulltrúa.14. Rafholt - Umsókn um framkvæmdaleyfi
Umsókn um framkvæmdaleyfi. Míla er að fara í ljósleiðaravæðingu í Hópshverfi í Grindavík. Rafholt ehf mun sjá um þá framkvæmd fyrir Mílu.
Umsókn um framkvæmdaleyfi. Míla er að fara í ljósleiðaravæðingu í Hópshverfi í Grindavík. Rafholt ehf mun sjá um þá framkvæmd fyrir Mílu.
Framkvæmdin er ekki framkvæmdarleyfisskyld.15. Verndarsvæði í byggð: Þórkötlustaðahverfi
Lögð er fram greinargerð um að Þórkötlustaðahverfi verði gert að verndarsvæði í byggð samkvæmt lögum nr. 87/2015 og reglugerð nr. 575/2016.
Lögð er fram greinargerð um að Þórkötlustaðahverfi verði gert að verndarsvæði í byggð samkvæmt lögum nr. 87/2015 og reglugerð nr. 575/2016.
Lagt fram. Breytingar á skilmálum ræddar.16. Suðurnesjalína 2: beiðni um umsögn
Óskað er eftir umsögn Grindavíkurbæjar á frummatsskýrslu Landsnets vegna Suðurnesjalínu 2 milli Hamraness í Hafnarfirði og Rauðamels í Grindavík.
Óskað er eftir umsögn Grindavíkurbæjar á frummatsskýrslu Landsnets vegna Suðurnesjalínu 2 milli Hamraness í Hafnarfirði og Rauðamels í Grindavík.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við frummatsskýrslu Suðurnesjalínu 2 en bendir á að umrædd framkvæmd sé háð framkvæmdarleyfi Grindavíkurbæjar.
Erindingu er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.