Skipulagsnefnd - 70. fundur
- 23.03.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:15 -
- í Gjánni
- Fundur nr. 70
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Hverfisskipulag í Grindavík
Leitað var til þriggja ráðgjafa varðandi ráðgjöf og vinnu við hverfisskipulag í þegar byggðum hverfum í Grindavík. Ákveða þarf hver verður valin sem ráðgjafi Grindavíkurbæjar við þessa vinnu.
Leitað var til þriggja ráðgjafa varðandi ráðgjöf og vinnu við hverfisskipulag í þegar byggðum hverfum í Grindavík.
Sviðsstjóra falið að semja við Verkís á grundvelli verðkönnunar.2. Deiliskipulagsbreyting vegna Suðurhóps 2
Vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við Hópskóla var farið í grenndarkynningu vegna deiliskipulagsbreytingar. Grennarkynning fór fram á tímabilinu 21.janúar til 19.febrúar. Athugasemdir bárust sameiginlega frá íbúum Suðurhóps 10, Suðurhóps 12 og 14, Austurhóps 33, 35 og 29.
Vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við Hópskóla var farið í grenndarkynningu vegna deiliskipulagsbreytingar. Grennarkynning fór fram á tímabilinu 21.janúar til 19.febrúar. Athugasemdir bárust sameiginlega frá íbúum Suðurhóps 10, Suðurhóps 12 og 14, Austurhóps 33, 35 og 29.
Afgreiðslu málsins frestað. Sviðsstjóra falið að koma ítarlegri gögnum til íbúa sem gerðu athugasemdir.3. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Farið yfir tillögur ráðgjafa að breytingu á deiliskipulagi við Víðihlið. Gögn undir mál hafa ekki borist.
Gögn vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsbreytingar við Víðihlið lögð fram. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
4. Eyjabakki Deiliskipulag
Sviðsstjóri óskar eftir að fara yfir áherslur skipulagsnefndar í breytingu á deiliskipulagi við Eyjabakka.
Málið lagt fram. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
5. Víkurhóp 59 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Þann 29.janúar sl. var Verkbær gefin heimild til að fara í deiliskipulagsbreytingu vegna lóðarinnar Víkurhóp 59. Nú er óskað eftir viðbót við þær breytingar sem fyrirhugaðar voru og því aftur óskað eftir heimild til að fara í deiliskipulagsbreytingu.
Þann 29.janúar sl. var lóðarhafa gefin heimild til að fara í deiliskipulagsbreytingu vegna lóðarinnar Víkurhóp 59. Nú er óskað eftir viðbót við þær breytingar sem fyrirhugaðar voru og því aftur óskað eftir heimild til að fara í deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að grenndarkynna fyrirhugaða deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðarhöfum Víkurhóps 30 og 47-55.6. Skipulagsnefnd - umferðar og öryggismál
Farið þarf yfir hverjir koma til greina sem ráðgjafar í umferðar- og öryggismálum með skipulagsnefnd.
Farið yfir hverjir koma til greina sem ráðgjafar í umferðar- og öryggismálum með skipulagsnefnd.
Skipulagsnefnd velur Eydísi Ármannsdóttur, Bergstein Ólafsson og Vilhjálm Árnason til ráðgjafar við skipulagsnefnd í umferðar- og öryggismálum.7. Þórkötlustaðir - umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun á Þórkötlustöðum í Þórkötlustaðarhverfi. Grenndarkynning hefur þegar farið fram athugasemdalaust. Óskað er eftir samþykki skipulagsnefndar á byggingaráformum og að erindinu verði vísað til byggingarfulltrúa til afgreiðslu.
Umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun á Þórkötlustöðum í Þórkötlustaðarhverfi. Grenndarkynning hefur þegar farið fram athugasemdalaust.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.8. Leynisbrún 15 - umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynning vegna framkvæmda við Leynisbrún 15 hefur farið fram án athugasemda. Óskað er eftir samþykki skipulagsnefndar á byggingaráformum og að erindinu verði vísað til byggingarfulltrúa til afgreiðslu.
Umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Leynisbrún 15.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.9. Leynisbrún 4 - umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynning vegna byggingaráforma við Leynisbrún 4 hefur farið fram. Ein athugasemd barst. Óskað er eftir samþykki skipulagsnefndar á byggingaráformum og að erindinu verði vísað til byggingarfulltrúa til afgreiðslu.
Guðmundur Pálsson vék af fundi við afgreiðslu og umfjöllun málsins.
Grenndarkynning vegna byggingaráforma við Leynisbrún 4 hefur farið fram. Ein athugasemd barst sem var tekin fyrir en ekki tekin til greina.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.