Skipulagsnefnd - 115. fundur
- 20.02.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 115
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Grindavík Frumathugun nýir garðar
Hafnarstjóri situr þennan fund undir málinu. Skoða þarf staðarval, nálægt fyrirhuguðum brimvarnagarði, fyrir stórgrýti sem til falla vegna jarðvegsverkefna í öllu sveitarfélaginu.
Sigurður A. Kristmundsson, hafnarstjóri, sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Hugmyndir hafnstjóra varðandi staðarval fyrir stórgrýti sem falla til vegna jarðvinnuverkefna til umræðu. Stórgrýtið mun notast við brimvarnargarða við Grindavíkurhöfn.2. Seljabót 2a - óveruleg deiliskipulagsbreyting
Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar leggur fram óveruleg breyting á deiliskipulagi við Seljabót 2a.
Sigurður A. Kristmundsson, hafnarstjóri, sat fundinn undir dagskrárliðnum. Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu við Seljabót 2a.
Skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í deiliskipulagsbreytinguna og að málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til að skoðað verði að fjölga bílastæðum norðan dælustöðvar.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að leggja skipulagstillöguna fyrir hafnarstjórn ásamt því að hún verði grenndarkynnt í gegnum heimasíðu Grindavíkubæjar.3. Deiliskipulag íþróttasvæðis
Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar leggur fram deiliskipulagstillögu fyrir íþróttasvæðið í kjölfar á íbúafundi þann 14. febrúar. Lagt er til að vinnslutillaga verði kynnt umsagnaraðilum og íbúum sveitarfélagsins gefin kostur á að segja sína skoðun á tillögunni.
Skipulagsfulltrúi leggur fram deiliskipulagstillögu fyrir íþróttasvæðið í kjölfar íbúafundar þann 14. febrúar.
Íbúum hefur verið gefinn kostur á að senda inn ábendingar vegna tillögunar á heimasíðu sveitarfélagsins og rennur frestur til þess út þann 26. febrúar nk.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að senda vinnslutillöguna á umsagnaraðila.4. Deiliskipulag miðbæjar í Grindavík
Málið lagt fram til umræðu.
Málið lagt fram til umræðu.
5. Hverfisskipulag í Grindavík - 2. áfangi
Drög að viðbrögðum við umsögnum við skipulagslýsingu hverfisskipulagsins lögð fram.
Skipulagsfulltrúi lagði fram tillögu að viðbrögðum við skipulagslýsingu hverfisskipulagsins.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að viðbrögðum og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.6. Deiliskipulag við Þorbjörn
Tillaga að viðbrögðum við umsögnum við skipulagstillöguna lögð fram ásamt uppfærðum gögnum í samræmi við viðbrögð sveitarfélagsins.
Tillaga að viðbrögðum við umsögnum við skipulagstillöguna lögð fram ásamt uppfærðum gögnum í samræmi við viðbrögð sveitarfélagsins.
Skipulagsnefnd samþykkir viðbrögð við umsögnina og leggur til eftirfarandi breytingar á skipulagstillögunni eins og hún er lögð fram á fundinum eftir breytingar í samræmi við viðbrögð við umsögnum.
- Gert verði ráð fyrir stærri áningarstað sunnan Þorbjarnar.
- Gert verði ráð fyrir 1-2 minni áningarstað vestan Lágafells.
Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þá er viðbrögðum við umsögnum og uppfærð skipulagstillaga send til bæjarstjórnar til samþykktar, með ofangreindum breytingum.
Skipulagsnefnd leggur það til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagstillöguna og að skipulagsfulltrúa verði falið að senda hana til Skipulagsstofnunar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.7. Deiliskipulagsbreyting, fyrsti hluti iðnaðarsvæðis i5.
Matorka óskar eftir að gerð verði deiliskipulagsbreyting á svæði nr. 1 á iðnaðarsvæði i5.
Matorka óskar eftir að gerð verði deiliskipulagsbreyting á svæði nr. 1 á iðnaðarsvæði i5.
Málinu er frestað og er skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram með Matorku.8. Kirkjustígur 3 - Umsókn um skipulagsbreytingu
Lóðarhafi við Kirkjstíg 3 óskar eftir heimild til að sólstofa fari út fyrir byggingarreit að Kirkjustíg 3. Sólstofa mun skv. framlögðum teikningum fara rétt tæplega 50 cm út fyrir byggingarreit.
Óskað er eftir heimild til að breyta deiliskipulagi við Kirkjustíg 3. Breytingin varðar stækkun á sólstofu sem fer 50 cm út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd samþykkir að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða og að málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna áformin fyrir lóðarhöfum við Kirkjustíg 1 og 5.9. Hafnargata 26 - umsókn um skipulagsbreytingu
Lóðarhafi við Hafnargötu 26 leggur fram tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Hafnargötu 26. Breytingin varðar stækkun á byggingarreit um 5 metra til austur.
Óskað er eftir heimild til að breyta deiliskipulagi við Hafnargötu 26. Breytingin varða stækkun á byggingarreit um 5 metra til austur.
Skipulagsnefnd samþykkir að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða og að málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna áformin fyrir lóðarhöfum við Hafnargötu 24 og 28 og Seljabót 710. Breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032, íbúðarsvæði við ÍB3 (Laut).
Skipulagstillagan hefur verið kynnt í samræmi við 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Næsta skref er að vísa tillögunni til bæjarstjórnar sem vísar henni til athugunar hjá Skipulagsstofnun.
Skipulagstillagan hefur verið kynnt í samræmi við 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd vísar skipulagstillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að senda Skipulagsstofnun tillöguna til samþykktar fyrir auglýsingu á tillögunni í samræmi við 3. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða auglýsingu á aðalskipulagsbreytingunni verður auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir Laut.11. Hafnargata 9A - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
Grindin efh. sækir um byggingaleyfi á stækkun á hafanargötu 9a, þar sem Grindin er með sýna inréttingarframleiðslu.
Grindin ehf. sækir um byggingaleyfi á stækkun á Hafnargötu 9a, þar sem Grindin er með innréttingarframleiðslu.
Skipulagsnefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag.
Þar sem byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu þá er um fullnaðarafgreiðslu skipulagsnefndar að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.12. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 70
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála nr. 70 lögð fram til upplýsinga.
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála nr. 70 lögð fram.
13. Fundargerðir 2023 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 35. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja þann 9.02.2023 lögð fram til kynningar
Fundargerð 35. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja þann 9.02.2023 lögð fram.