Skipulagsnefnd - 71. fundur
- 20.04.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:15
- Gjáin
- Fundur nr. 71
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
- Alma Dögg Einarsdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Deiliskipulagsbreyting í Svartsengi
Grenndarkynning vegna deiliskipulagsbreytingar í Svartsengi lauk 6.apríl. Ein athugasemd barst.
Grenndarkynning á deiliskipulagsbreytingu í Svartsengi hefur farið fram. Ein athugasemd barst.
Áður en deiliskipulagstillagan var auglýst fór hún í gegnum matskyldufyrirspurn hjá Skipulagsstofnun. Niðurstaða Skipulagsstofnunar var að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum, grundvallast sú ákvörðun á fyrirliggjandi gögnum. Ekki er talið líklegt að framkvæmdin hafi í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. 2 viðauki laga um mat á umhverfisáhrifum.
Athugasemd gefur ekki tilefni til breytinga á deiliskipulagstillögunni. Sviðsstjóra falið að svara athugasemd sem barst.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna og vísar henni til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.2. Deiliskipulagsbreyting vegna Suðurhóps 2
Frekari upplýsingum um deiliskipulagsbreytingu við Suðurhóp 2 ( vegna viðbyggingar við Hópsskóla) var komið á þá íbúa sem gerðu athugasemdir við fyrirhugaða deiliskipulagsbreytingu fyrir síðasta fund skipulagsnefndar.
Grenndarkynningu á deiliskipulagsbreytingu við Suðurhóp 2 er lokið. Frekari gögnum um deiliskipulagsbreytinguna ásamt skuggavarpi var sent á þá íbúa sem gerðu athugasemdir við deiliskipulagið fyrir fund nefndarinnar í mars. Ein athugasemd barst við þeim gögnum.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á gildandi deiliskipulagi í auglýstri deiliskipulagsbreytingu:
Lóðin stækkar úr 23.381 m2 í 29.701 m2.
Byggingareitur er að minnka úr 8.430 m2 í 5.269 m2.
Byggingareitur fer um 10 metrar fjær byggð að norðanverðu en gildandi deiliskipulag segir til um. Fjarlægð milli byggingarreita Hópsskóla og Suðurhóps 12 er 66 m.
Byggingareitur fer um 22 metrar nær byggð að austanverðu en gildandi deiliskipulag segir til um. Fjarlægð milli byggingarreita Hópsskóla og Austurhóps 22 er 54 m.
Byggingarreitur fer um 12 m út fyrir núverandi byggingarreit til suðurs.
Þegar hafist var handa við að reisa áfanga 1 í Hópsskóla, núverandi bygging, þá var mannvirkið fullhannað eins og deiliskipulagstillagan segir til um það er stækkun til austurs og þaðan til norðurs og suðurs. Skipulag skólans tekur mið af framangreindu og því stendur sú ákvörðun að stækka mannvirkið eins og áætlað var í upphafi.
Sviðsstjóra falið að svara athugasemd sem barst.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.3. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Fundur með byggingaraðilum verður haldinn mánudaginn 20.apríl kl. 10:00. Farið verður yfir athugasemdir þeirra og stöðuna almennt á deiliskipulaginu.
Fundur með byggingaraðilum var haldinn mánudaginn 20.apríl kl. 10:00. Farið var yfir athugasemdir þeirra og stöðuna almennt á deiliskipulaginu.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundi skipulagsnefndar.4. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Gögn vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsbreytingar við Víðihlið lögð fram.
Gögn vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsbreytingar við Víðihlið lögð fram.
Nefndinni líst best á tillögu 2. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundinum.5. Rafhleðslustöðvar: Mögulegar staðsetningar og kostnaðargreining
Farið yfir hugsmyndir að mögulegum staðsetningum hraðhleðslustöðva.
Farið yfir hugmyndir að mögulegum staðsetningum hraðhleðslustöðva, bæði minni stöðvum við stofnanir bæjarins og svo stærri stöð sem myndi þjóna umferð meðal annars í gegnum bæinn.
Skipulagsnefnd leggur til að hraðhleðslustöð verði staðsett á bílastæðum vestan til á lóð Víkurbrautar 58. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram og ræða við líklega samstarfsaðila til verksins.6. Hafnargata 22 - fyrirspurn um stækkun
Þorbjörn hf. vill kanna hug skipulagsnefndar fyrir stækkun á byggingarreit við Hafnargötu 22 í átt að götu. Gögn koma í gáttina seint á föstudaginn 17.apríl.
Lögð er fram fyrirspurn vegna stækkunar á byggingarreit við Hafnargötu 22.
Skipulagsnefnd heimilar að farið verði í deiliskipulagsbreytingu vegna stækkunar. Sviðsstjóra falið að grenndarkynna stækkunina fyrir Hafnargötu 17, 19, 20, 21 og 24.7. Ósk um afnot af landi frá skotdeild Grindavíkur
Upplýsingar frá lögreglunni liggja fyrir. Taka þarf afstöðu til fyrirspurnar skotdeildar UMFG.
Skotdeild Grindavíkur óskar eftir leyfi fyrir afnotum af landi fyrir útisvæði félagsins þar sem hægt væri að iðka skotæfingar. Svar lögreglunnar við óformlegri fyrirspurn sviðsstjóra lagt fram.
Viðbrögð lögreglunnar eru ekki jákvæð við skotsvæði á þessum stað. Skipulagsnefnd hafnar erindinu.8. Miðgarður 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi við Miðgarð 2 vegna stækkunar á lyftuhúsi á þegar samþykktri viðbyggingu.
Sótt er um byggingarleyfi við Miðgarð 2 vegna stækkunar á lyftuhúsi á áður samþykktri viðbyggingu.
Þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast að engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn (3.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010) frá áður samþykktu byggingarleyfi þá samþykkir skipulagsnefndin stækkunina.
Fullnaðarafgreiðslu máls vísað til bæjarstjórnar.9. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 44
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingarmála nr. 44 er lögð fram til kynningar.
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingarmála nr. 44 lögð fram til kynningar.