Skipulagsnefnd - 92. fundur
- 22.11.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 17:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 92
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Björgvin Björgvinssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar: Gossvæði og sæstrengur
Athugun Skipulagsstofnunar við aðalskipulagsbreytingu vegna aðgengis að gosstöðvum og athafnasvæðis í Hraunsvík lögð fram ásamt uppfærðum gögnum m.t.t. athugasemda Skipulagsstofnunar. Veitt er heimild til að auglýsa tillögu að aðalskipulagsbreytingunni þegar brugðist hefur verið við atriðum í athugun Skipulagsstofnunar.
Í kjölfar athugunar Skipulagsstofnunar eru lögð fram uppfærð gögn fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna aðgengis að gosstöðvum og athafnarsvæðis í Hraunsvík.
Sviðsstjóra er falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.2. Aðalskipulagsbreyting - Suðurstrandarvegur og leiðigarður norðan þéttbýlis
Ræða þarf aðalskipulagsbreytingu vegna Suðurstrandarvegar og leiðnigarðs norðan þéttbýlis í Grindavík. Engin gögn eru undir dagskrárliðnum.
Sviðsstjóra falið að hefja vinnu við breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 vegna nýrrar veglínu Suðurstrandarvegar og uppbyggingu á leiðnigörðum norðan þéttbýlis.
3. Deiliskipulagsbreyting í Laut
Þær tillögur sem gerðar hafa verið fyrir skipulag lóða á óbyggðu svæði við Laut lagðar fram. Taka þarf ákvörðun um lóðaskipulag og hefja vinnu við tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Tillögur að skipulagi lóðar í Laut lagðar fram. Skipulagsnefnd samþykkir tillögur 5-01 með breytingum.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.4. Deiliskipulag Húsatóftir eldisstöð (I6)
Tillaga að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæðið i6 lagt fram.
Tekið er fyrir deiliskipulag fiskeldis á Húsatóftum sem sett er fram á uppdrætti með greinagerð dagsett 11.11.2021. Lóðin er á skilgreindu iðnaðarsvæði, i6, á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 og er þar gert ráð fyrir starfsemi fiskeldis. Á lóðinni hefur verið starfrækt fiskeldisstöð um árabil. Fiskeldið á Húsatóftum er í eigu Matorku en landeigandi er Ríkissjóður Íslands. Langtímaleigusamningur er um lóðina á milli Ríkissjóðs og Matorku. Í næsta nágrenni, norðan við Nesveg, er Matorka með fiskeldi.
Á uppdrætti eru byggingareitir skilgreindir og eru núverandi byggingar innan byggingarreita. Nýjir byggingareitir eru skilgreindir fyrir bættum húsakosti og fiskeldiskerjum.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skipulagsfulltrúa falið að auglýsa tillöguna og leita umsagna.5. Deiliskipulag íþróttasvæðis
Frumdrög að breyttu deiliskipulagi við íþróttasvæði lögð fram til umfjöllunar. Deiliskipulagsvinnan er unnin að beiðni bæjarráðs sem fjallað um málið á fundi þann 22.júní sl.
Tekið er fyrir frumdrög að breyttu deiliskipulagi við íþróttasvæði. Frumdrögin eru unnin að beiðni bæjarráðs sem fjallaði um málið á fundi þann 22.júní sl.
Skipulagsnefnd samþykkir að sviðsstjóri fara í deiliskipulagsvinnuna.6. Deiliskipulag við Þorbjörn
Umsagnarfrestur við skipulaglýsingu vegna deiliskipulags við Þorbjörn er liðinn. Umsagnir lagðar fram.
Teknar eru fyrir umsagnir við skipulagslýsingu vegna deiliskipulags við Þorbjörn.
Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram.7. Umsókn um byggingarleyfi - Staðarhraun 19
Kristján Þór Ásmundsson sækir um byggingarleyfi vegna stækkunar á bílskúr við Staðarhraun 19.
Tekin er fyrir byggingarleyfisumsókn frá Kristjáni Þór Ásmundssyni vegna stækkunar á bílskúr við Staðarhraun 19. Lóðin er á ódeiliskipulögðu svæði. Samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gr. 5.9.12 skipulagsreglugerðar skal fara fram grenndarkynning á byggingaráformunum á ódeiliskipulögðum svæðum.
Þau gögn sem fylgja byggingarleyfisumsókninni eru:
- Umsókn um byggingarleyfi
- Afstöðumynd og grunnmynd, dagsett 20. október 2021.
- Útlitsmyndir, dagsett 20.október 2021
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að grenndarkynna byggingaráformin fyrir lóðarhöfum við Staðarhraun 17,18,20,21 og 22 og Borgarhrauni 18,20 og 22.8. Hraunsvík - umsókn um byggingarleyfi
Matorka ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir stálgrindarhúsi fyrir fiskeldisker við Hraunsvík.
Tekin er fyrir byggingarleyfisumsókn frá Matorku vegna byggingar á stálgrindarhúsi yfir fiskeldisker á iðnaðarsvæðinu i6. Um er ræða nýtt hús fyrir fiskeldisker sem þegar eru komin niður. Byggingaráformin eru í samræmi við deiliskipulag fyrir i6.
Þau gögn sem fylgja byggingarleyfisumsókninni eru:
- Umsókn um byggingarleyfi
- Afstöðumynd og skráningartafla, dagsett 15. nóvember 2021.
- Grunnmynd, snið og útlit, dagsett 15. nóvember 2021
- Greinagerð hönnunar, dagsett í nóvember 2021.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Erindinu er vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.9. Verbraut 1 - Umsókn um byggingarleyfi
HP Fasteignir sækir um um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu við núverandi hús á lóðinni Verbraut 1B (áður Verbraut 3). Sótt var um byggingarleyfi fyrir þessari stækkun þann 16.4.2019 og byggingaráform samþykkt í skipulagsnefnd þann 20.5.2019 en þau áform náðu ekki fram að ganga.
Lilja Sigmarsdóttir vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Tekin er fyrir byggingarleyfisumsókn frá HP fasteignum fyrir nýbygginu við núverandi hús á lóðinni Verbraut 1B. Sótt var um byggingarleyfi fyrir þessari stækkun þann 16. apríl 2019 og byggingaráform samþykkt í skipulagsnefnd þann 20. maí 2019 en þau áform náðu ekki fram að ganga. Byggingaráformin eru í samræmi við deiliskipulag svæðisins.
Um er að ræða stækkun á iðnaðar- og geymslusvæði við Verbraut 3. Byggt verður við austurenda núverandi byggingar sem liggur að lóðarmörkum Verbraut 1 og Verbraut 3. Byggingin verður á einni hæð, samtals 600,3 m2.
Þau gögn sem fylgja byggingarleyfisumsókninni eru:
- Umsókn um byggingarleyfi
- Aðaluppdrættir ( afstöðumynd, grunnmynd, byggingarlýsing, skráningartafla, útlit og snið), dagsett 18. nóvember 2021.
- Burðarrvirkisteikingar, dagsett 18. nóvember 2021.
- Lagnateikningar, dagsett 18.nóvember 2021.
- Greinagerð hönnunar, dagsett í nóvember 2021.
Skipulagsnefnd bendir umsækjanda á sérskilmála fyrir lóðina í gildandi deiliskipulagi. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Erindinu er vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
10. Fæðilögn- umsókn um framkvæmdaleyfi
Matorka óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir fæðislögn úr gjá vestan við aðstöðu fyrirtækisins við Nesveg. Viðbrögð frá Skipulagsstofnun liggja fyrir varðandi hvort framkvæmdin krefjist málsmeðferð skv. lögum um umhverfismat.
Tekin er fyrir framkvæmdarleyfisumsókn frá Matorku fyrir fæðilögn úr Baðstofugjá norð-vestan við fiskeldi á iðnaðarsvæðinu i6 vestan Grindavíkur. Fyrirliggur niðurstaða Skipulagsstofnunar um að framkvæmdin sé ekki þess eðlis hún falli undir lög um mat á umhverfisáhrifum. Þá er Matorka með lóðarleigusamning við landeiganda sem felur í sér heimild til vatnstöku út Baðstofugjá.
Skipulagsnefnd heimilar sviðsstjóra í samræmi við 55. gr. bæjarmálasamþykktar, að gefa út framkvæmdaleyfi að uppfylltum öllum skilyrðum laga og reglna.
11. Fjárhagsáætlun 2022-2025 - skipulagsnefnd
Drög að fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar fyrir aðra umræðu í bæjarstjórn lögð fram til upplýsinga. Farið verður yfir þær deildir sem heyra undir skipulags- og umhverfissvið.
Drög að fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2022-2025 lögð fram.