Skipulagsnefnd - 110. fundur
- 05.12.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 17:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 110
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Umferðaröryggismál í Grindavík
Drög að stefnu Grindavíkurbæjar í umferðaröryggismálum lögð fram eftir umsagnir frá Lögreglunni á Suðurnesjum, Samgöngustofu og Vegagerðinni.
Undir dagskrárliðnum sátu þau Bergsteinn Ólafsson og Eydís Ármannsdóttir umferðaröryggisfulltrúar skipulagsnefnar.
Drög að stefnu Grindavíkurbæjar í umferðaröryggismálum lögð fram eftir umsagnir frá Lögreglunni á Suðurnesjum, Samgöngustofu og Vegagerðinni.
Eftirfarandi bætt við drögin:
- Hraði á Ránargötu neðan Mánagötu verður 50 km/klst
- Þungatakmarkanir verði settar á Víkurbraut neðan Sunnubrautar.
Skipulagsnefnd leggur til að stefnan verði kynnt íbúum í upphafi árs 2023. Stefnt er að því að hún taki gildi vorið/sumarið 2023.
Skipulagsnefnd vísar erindu til bæjarráðs til umfjöllunar.2. Breyting á deiliskipulagi á Stað
Samherji fiskeldi sækir um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Stað vestan Grindavíkur. Sótt er um stækkun á byggingarreit um 263 m2. Leyfi landeiganda liggur fyrir.
Samherji fiskeldi sækir um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Stað vestan Grindavíkur. Sótt er um stækkun á byggingarreit um 263 m2. Samþykki landeiganda fyrir deiliskipulagsbreytingunni liggur fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkir að um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Stað sé að ræða. Í ljósi þess að samþykki landeiganda liggur fyrir fellur skipulagsnefnd frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki aðra en sveitarfélagið og umsækjanda ( sbr. 3 mgr. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010).
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna. Í samræmi við viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagsfulltrúa er falið að afgreiða skipulagsbreytinguna til Skipulagsstofnunar í samræmi við skipulagslög.3. Breyting á deiliskipulagi - Spóahlíð 3
Smiðshöggið ehf. óskar eftir breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóahlíð 3. Sótt er um að fá að breyta byggingareit fyrir 12 íbúðir. Jafnframt breytingar á innkeyrslu og tilfærslu á lóðarmörkum án breytinga á lóðarstærð.
Smiðshöggið ehf. óskar eftir breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóahlíð 3. Sótt er um að fá að breytta byggingareit fyrir 12 íbúðir. Jafnframt breytingar á innkeyrslu og tilfærslu á lóðarmörkum án breytinga á lóðarstærð.
Skipulagsnefnd samþykkir að farið verði með framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóahlíð 3 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna skipulagstillöguna fyrir lóðarhöfum við Spóahlíð 1, 5 og 9.
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna breytingu á grunngögnum deiliskipulags og lóðarblöðum, kostnað sem verður til við færslu á innviðum á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar o.s.frv.4. Seljabót 2a - óveruleg deiliskipulagsbreyting
Skipulagsfulltrúi óskar eftir að gerð verði breyting á deiliskipulagi lóðarinnar við Seljabót 2a. Óskað eftir að útbúin verði byggingarreitur undir dælustöð fyrir fráveitukerfi. Tillaga lögð fram til umfjöllunar. Óska þarf umsagnar hafnarstjórnar.
Skipulagsfulltrúi óskar eftir að gerð verði breyting á deiliskipulagi lóðarinnar við Seljabót 2a. Óskað eftir að útbúin verði byggingarreitur undir dælustöð fyrir fráveitukerfi.
Skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í deiliskipulagsbreytinguna og óskar umsagnar frá hafnarstjórn um tillöguna áður en áfram er haldið.5. Gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjöld
Drög að breyttri gjaldskrá byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjalda Grindavíkurbæjar lögð fram.
Drög að breyttri gjaldskrá byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjalda Grindavíkurbæjar lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir drögin og vísar þeim til umfjöllunar í bæjarráði og afgreiðslu í bæjarstjórn.6. Reglur um lóðarúthlutanir - tillaga að breytingu des 2022
Drög að breytingum á reglum um lóðarúthlutanir Grindavíkurbæjar lögð fram.
Drög að breytingum á reglum um lóðarúthlutanir Grindavíkurbæjar lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir drögin og vísar þeim til umfjöllunar í bæjarráði og afgreiðslu í bæjarstjórn.7. Aðalskipulagsbreyting í Reykjanesbæ Vinnslutillaga ósk um umsögn
Reykjanesbær óskar umsagnar við aðalskipulagsbreytingu á Reykjanesi. Breytingin varða stækkun á iðnaðarsvæði i5 fyrir fiskeldi.
Reykjanesbær óskar umsagnar við vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar á Reykjanesi. Breytingin varða stækkun á iðnaðarsvæði i5 og aukning á byggingarmagni. Gert er ráð fyrir uppbyggingu fiskeldis á svæðinu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við skipulagstillöguna og vísar afgreiðslu málsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.