Skipulagsnefnd - 78. fundur
- 19.10.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 78
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Víkurbraut 60 - fyrirspurn um stækkun
Teikning vegna fyrirspurnar um stækkun á lóð og byggingu við Víkurbraut 60 hefur verið uppfærð. Stjórn húsfélagsins við Víkurbraut 62 verður boðið að sitja fundinn en hluti hennar gerði athugasemdir við grenndarkynningu þessara breytinga.
Hluti stjórnar húsfélagsins við Víkurbraut 62 sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Lögð eru fram breytt gögn vegna athugasemda á grenndarkynningartíma fyrirspurnar.
Skipulagnefnd samþykkir stækkun og breytingu á lóðarmörkum ásamt því að taka vel í byggingaráformin. Bent er á að sækja þarf formlega um byggingarleyfi til skipulagsnefndar fyrir framkvæmdinni.
Sviðsstjóra er falið að svara athugasemdum á grenndarkynningartíma frá hluta stjórnar húsfélagsins við Víkurbraut 62 í samræmi við umræður á fundinum.
Samþykki á stækkun lóðar er vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.2. Deiliskipulag - Hlíðarhverfi
Auglýsingartími fyrir deiliskipulagstillögu Hlíðarhverfis er lokið. Umsagnir bárust frá UST, Vegagerðinni og HES. Umsögn Minjastofnunar kemur mánudaginn 21.sept fyrir fund. Þá barst ein athugasemd frá íbúa. Næsta skref er að senda deiliskipulagstillöguna til afgreiðslu bæjarstjórnar og þaðan til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun. Þetta er í samræmi við 1.mgr.42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Þær viðbætur/breytingar sem voru gerðar við greinagerð og deiliskipulagsuppdráttinn eru eftirfarandi.
- Skilmálar settir inn í greinargerð um frágang lóðar.
- Skilmálar settir inn í greinargerð um að hluti stígakerfis verði allt að 3 m breiður ásamt því að uppdráttur var uppfærður.
- Viðbætur vegna umsagna opinberra aðila.Auglýsingartími fyrir deiliskipulagstillögu Hlíðarhverfis er lokið. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Vegagerðinni og Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Þá barst athugasemd frá einum íbúa.
Þær viðbætur/breytingar sem voru gerðar við greinagerð og deiliskipulagsuppdráttinn efti auglýsingartíma deiliskipulagstillögunar lauk eru eftirfarandi.
- Skilmálar settir inn í greinargerð um frágang lóðar.
- Skilmálar settir inn í greinargerð um að hluti stígakerfis verði allt að 3 m breiður ásamt því að uppdráttur var uppfærður.
- Viðbætur vegna umsagna opinberra aðila.
Sviðsstjóra er falið að svara umsagnaraðilum og þeim er gerðu athugasemdir.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna fyrir Hlíðarhverfi með þeim breytingum sem hafa orðið á henni eftir auglýsingu, með fyrirvara um umsögn Minjastofnunar. Tillöguni er vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.3. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Farið yfir hugmyndir að deiliskipulagsbreytingu við Víðihlíð. Þarfagreining liggur fyrir, byggingareitur þarf að vera um 500 m2. Von er á uppfærðri tillögu frá ráðgjafa á mánudaginn 19.okt, fyrir fund.
Greinagerð liggur fyrir en eftir á að setja inn skilmála um aldur íbúa.Þarfagreining fyrir félagsaðstöðu eldriborgara við Víðihlíð liggur fyrir, byggingarreitur þarf að vera um 500 m2.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.4. Víkurhóp 41-55 - breyting á deiliskipulagi
Eignarhaldsfélagið Normi óskar eftir að fá að gera deiliskipulagsbreytingu á lóðum sem fyrirtækið hefur fengið úthlutað við Víkurhóp 41-55. Óskað er eftir að breyta lóðamörkum þannig að lóðirnar Víkurhóp 41-47 og 49-55 verði gerðar jafnstórar, þ.e. 45 m að breidd og að heimilt verði að hafa 5 lóðir hvoru megin. Heildarfjöldi lóða yrði því 10 og byggingareitur fyrir hverja lóð 7m x 13 m.
Eignarhaldsfélagið Normi ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar, vesturhluti.Óskað er eftir að breyta lóðamörkum þannig að lóðirnar Víkurhóp 41-47 og 49-55 verði gerðar jafnstórar, þ.e. 45 m að breidd og að heimilt verði að hafa 5 lóðir hvoru megin. Heildarfjöldi lóða yrði því 10 og byggingareitur fyrir hverja lóð 7m x 13 m.
Skipulagnefnd heimilar umsækjenda að fara umbeðna deiliskipulagsbreytingu og að það verði gert í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sviðsstjóra falið að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum aðliggjandi lóða að sunnanverðu og tveimur lóðum að norðanverðu. Grenndarkynningartími er amk. 4 vikur í samræmi við 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi:
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.5. Hverfisskipulag í Grindavík
Vegna Covid-19 var ekki hægt að setja á íbúafund vegna hverfisskipulagsins. Ráðgjafi hefur ákveðnar hugmyndir um hvernig við höfum samráð við íbúa í gegnum samráðsgátt á netinu.
Engin gögn eru undir þessum lið fyrir fundinn. Tökum aðeins umræður um tillögur að tilhögun samráðs við íbúa.Vegna Covid-19 var ekki hægt að setja á íbúafund vegna hverfisskipulagsins.
Ráðgjafi hefur ákveðnar hugmyndir um hvernig við höfum samráð við íbúa í gegnum samráðsgátt á netinu. Skipulagsnefnd samþykkir tillögu ráðgjafa. Skoðað verður hvort þörf sé á íbúafundi þegar aðstæður leyfa.6. Stamphólsvegur 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um breytingu á þegar útgefnu byggingarleyfi við Stamphólsveg 4 vegna óska um breytta notkun. Óskað er eftir leyfi til að nota efri hæð hússins sem íbúð fyrir skammtímaleigu/gistingu ferðamanna. Sviðsstjóri hefur grenndarkynnt beiðnina fyrir lóðarhafa að Stamphólsvegi 2.
Umsókn um byggingarleyfi við Stampholsveg 4. Sótt er um breytingu á þegar útgefnu byggingarleyfi við Stamphólsveg 4 vegna óska um breytta notkun. Óskað er eftir leyfi til að nota efri hæð hússins sem íbúð fyrir skammtímaleigu/gistingu ferðamanna. Sviðsstjóri hefur grenndarkynnt beiðnina fyrir lóðarhafa að Stamphólsvegi 2.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.7. Víkurbraut 27 - umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir Víkurbraut 27 vegna breytinga á innra skipulagi. Lýsing á byggingarleyfisumsókn er "Reyndarteikning og breyting á matshlutum".
Anton Guðmundsson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa máls.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir Víkurbraut 27 vegna breytinga á innra skipulagi. Lýsing á byggingarleyfisumsókn er "Reyndarteikning og breyting á matshlutum.
Ekki er þörf á að grenndarkynna byggingarleyfisumsóknina þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Er þetta í samræmi við 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.8. Sólbakki - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir því að byggja kalda geymslu við Sólbakka í Þórkötlustaðarhverfi. Geymslan verður bárujárnsklætt timburhús með sama útliti og sömu litum og íbúðarhúsið.
Í skilmálum verndaráætlun Þórkötlustaðarhverfis segir m.a. að áður en sveitarstjórn tekur ákvörðun um hvort veita skuli leyfi til framkvæmda skal leita álits Minjastofnunar. Byggingaráform verða síðan grenndarkynnt hagsmunaaðilum og þeim gefin tækifæri til að koma sjónarmiðum og athugasemdum á framfæri. Hagsmunaaðilar teljast vera íbúar innan Þórkötlustaða.Sótt er um byggingarleyfi fyrir því að byggja kalda geymslu við Sólbakka í Þórkötlustaðarhverfi. Geymslan verður bárujárnsklætt timburhús með sama útliti og sömu litum og íbúðarhúsið.
Í skilmálum verndaráætlunar Þórkötlustaðarhverfis segir m.a. að áður en sveitarstjórn tekur ákvörðun um hvort veita skuli leyfi til framkvæmda skal leita álits Minjastofnunar. Byggingaráform verða síðan grenndarkynnt hagsmunaaðilum og þeim gefin tækifæri til að koma sjónarmiðum og athugasemdum á framfæri. Hagsmunaaðilar teljast vera lóðarhafar innan Þórkötlustaða.
Skipulagsnefnd samþykkir að sviðsstjóri leiti álita Minjastofnunar og grenndarkynni áformin fyrir íbúum Þórkötlustaða.9. Víkurhóp 57 - umsókn um byggingarleyfi
Bjarg íbúðarfélag sækir um byggingarleyfi fyrir 12 íbúða fjölbýlishúsi við Víkurhóp 57.
Bjarg íbúðarfélag sækir um byggingarleyfi fyrir 12 íbúða fjölbýlishúsi við Víkurhóp 57.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.10. Umsókn um framkvæmdarleyfi - efnistaka í Húsafelli og Fiskidalsfjalli
Óskað er eftir framkvæmdarleyfi vegna efnistöku í Húsafelli og Fiskidalsfjalli.
G.G. Sigurðsson óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Húsafelli og Fiskidalsfjalli.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.11. Umsókn um framkvæmdarleyfi - geymslusvæði við Nesveg
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna stækkunar á púða fyrir geymslusvæði við Nesveg, norðan Eyjabakka. Stækkun púðans er í samræmi við skilgeinda landnotkun fyrir svæðið í aðalskipulagi Grindvíkurbæjar sem verður staðfest af Skipulagsstofnun í kringum næstu mánaðarmót. Verkefnið er fjármagnað í fjárfestingaráætlun Grindavíkurbæjar þetta árið.
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna stækkunar á púða fyrir geymslusvæði við Nesveg, norðan Eyjabakka.
Máli frestað.12. Fjárhagsáætlun skipulags- og umhverfissviðs 2021
Vinna vegna fjárhagsáætlunar Grindavíkurbæjar fyrir árið 2021 er í gangi. Fara þarf yfir verkefni næsta árs á sviði skipulagsmála.
Vinna vegna fjárhagsáætlunar Grindavíkurbæjar fyrir árið 2021.
Máli frestað.13. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 48
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingarmála lögð fram til upplýsinga.
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingarmála lögð fram til upplýsinga.