Skipulagsnefnd - 94. fundur
- 10.01.2022
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 94
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Björgvin Björgvinssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem síðasta mál.
Áform um stækkun og endurbætur á Miðgarði 3 - 2201018
Samþykkt samhljóða.
1. Hverfisskipulag Stíga- og Vallahverfis í Grindavík
Vinnslutillaga fyrir Hverfisskipulag Stíga- og Vallahverfis lögð fram. Leitað verður umsagnar um tillöguna fáist heimild skipulagsnefndar.
Frá því að erindið var tekið fyrir síðast hjá Skipulagsnefnd hefur greinagerð verði uppfærði í samræmi við ábendingar nefndarinnar og vinna verið lögð í að koma lóðarstærðum á sem flestum lóðum í samræmi við skráða stærð í landeignaskrá ásamt því að sett var fram skilyrði um hámarks byggingarheimild.Erla Bryndís Kristjánsdóttir frá Verkís sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Farið yfir greinargerð og deiliskipulagsuppdrátt og gerðar smávægilegar breytingar.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.2. Deiliskipulagsbreyting - Orkuvinnslusvæði á Reykjanesi
Auglýsingartíma á tillögu að breyttu deiliskipulag á iðnaðar- og orkuvinnslusvæði er lokið. Engar athugasemdir bárust í kjölfar auglýsingar. Farið yfir umsagnir sem bárust frá umsagnaraðilum.
Máli frestað þar sem umsagnir bárust ekki frá Umhverfisstofnun og Minjastofnun Íslands.
3. Umsókn um byggingarleyfi - Félagsaðstaða eldri borgara við Víðihlíð
Sótt er um byggingarleyfi fyrir byggingu félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð. Teikningar arkitekts lagðar fram.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir byggingu félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð. Teikningar arkitekts lagðar fram.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin fyrir félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.4. Eldvörp Aðgengi
Óskað er framkvæmdaleyfis fyrir framkvæmdum við Eldvörp. Beiðni um umsögn var send á Umhverfisstofnun og Minjastofnun Íslands. Umsögn barst frá Umhverfisstofnun.
Verkefnið er unnið í samvinnu við Geopark.Óskað er framkvæmdaleyfis fyrir framkvæmdum við Eldvörp. Verkefnið er unnið í samvinnu við Geopark. Umsögn Umhverfisstofnunar og samþykki Ríkiseigna og HS orku liggur fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfið fyrir sitt leyti og vísar erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.5. Sjóvarnargarður við golfvöll
Í sjávarflóði þann 6.janúar sl. varð golfvöllurinn við Húsatóftir, vestan Grindavíkur, fyrir tjóni af völdum grjóts dreifðist viða um völlinn niður við sjó. Sambærilegur atburður átti sér stað í febrúar 2020.
Skipulagsnefnd hvetur Vegagerðina til þess að gera úttekt á sjóvarnargörðunum við golvöllinn og gera þær úrbætur sem þarf til að lámarka tjón komi tilÍ sjávarflóði þann 6.janúar sl. varð golfvöllurinn við Húsatóftir, vestan Grindavíkur, fyrir tjóni af völdum grjóts sem dreifðist viða um völlinn niður við sjó. Sambærilegur atburður átti sér stað í febrúar 2020.
Bókun:
Skipulagsnefnd hvetur Vegagerðina til þess að gera úttekt á sjóvarnargörðunum m.a. við golfvöllinn og gera þær úrbætur sem þarf til að lágmarka tjón komi til sambærilegs atburðar aftur.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að ræða við Vegagerðina.6. Áform um stækkun og endurbætur á Miðgarði 3
Vísir hf. óskar eftir heimild til að hefja vinnu við að breyta deiliskipulagi við Miðgarð 3 vegna stækkunar á fiskvinnsluhúsnæði.
Vísir hf. óskar eftir heimild til að hefja vinnu við að breyta deiliskipulagi við Miðgarð 3 vegna stækkunar á fiskvinnsluhúsnæði.
Skipulagsnefnd heimilar Vísi hf. að hefja vinnu við deiliskipulagsbreytingu við Miðgarð 3. Vinnan skal unnin í samráði við Hafnarstjórn.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.7. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 56
Fundargerð afgreiðslunefndar nr. 56 lögð fram.
Fundargerð afgreiðslunefndar nr. 56 lögð fram.