Skipulagsnefnd - 129. fundur
- 21.02.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 129
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Sverrir Auðunssonvaramaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
- Hjörtur Már Gestssonbyggingarfulltrúi
- Elísabet Bjarnadóttirsérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem síðasta mál: Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar - Ósk um umsögn á lýsingu fyrir miðsvæði Vatnsnes, nr. 2402041
1. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Staðan í Grindavík vegna náttúrurhamfara í Grindavík meðal annars m.t.t. byggingar- og skipulagsmála rædd.
Guðjón Bragason sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Staðan í Grindavík vegna náttúruhamfara í Grindavík meðal annars m.t.t. byggingar- og skipulagsmála rædd.2. Uppbygging varnargarða til varnar Grindavíkur
Staðan á uppbyggingu varnargarða um Grindavík til umræðu.
Staðan á uppbyggingu varnargarða um Grindavík til umræðu.
Skipulagsnefnd lýsir yfir ánægju sinni með þær framkvæmdir sem þegar hafa átt sér stað við varnargarða. Nefndin hvetur til þess að lokið verði við gerð varnargarðanna sem fyrst.3. Tjón á mannvirkjum vegna náttúruhamfara í Grindavik
Þær ákvarðanir sem bæjarstjórn hefur tekið varðandi altjónshús lagðar fram.
Rætt um þær ákvarðanir sem bæjarstjórn hefur tekið varðandi endurbyggingar- og viðgerðarskyldu á altjónshúsum, sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 55/1992 um NTÍ. Einnig var rætt um það með hvaða hætti skipulagsnefnd sér fyrir sér að standa eigið að niðurrifi altjónshúsa.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.4. Niðurrif húsa undir hrauni
Niðurrif húsa sem liggja undir hrauni að hluta til umræðu.
Guðjón Bragason sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Hrannar Jón Emilsson vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Minnisblað frá byggingarfulltrúa lagt fram, skipulagsnefnd er samþykk þeirri útfærslu sem þar er lýst.
Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.5. Óleyfisframkvæmdir í Grindavík
Til umræðu eru skráningamál fasteigna hjá byggingarfulltrúa þ.á.m óleyfisframkvæmdir.
Guðjón Bragason sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Rætt um stöðu skráninga á fasteignum og óleyfisframkvæmdir þeim tengdum.
Byggingarfulltrúa og skiplagsfulltrúa falið að vinna málið áfram meðal annars með því að leita álits hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Skipulagsstofnun.6. Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar - Ósk um umsögn á lýsingu fyrir frístundabyggð í landi Hvamms og íbúðarbyggð í landi Seljavogar 2a
Óskað er umsagnar Grindavíkurbæjar um lýsingu á aðalskipulagsbreytingu fyrir tvö mál í Höfnum. Annars vegar að taka 0,34 ha af skilgreindu opnu svæði og 0,06 ha af svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Hvamms, samtals 0,4 ha, og breyta í frístundabyggð. Hins vegar að 0,8 ha af opnu svæði í landi Seljavogs 2a verði breytt í íbúðarbyggð. Sjá mál í gátt https://skipulagsgatt.is/issues/2024/141
Lögð var fram skipulagslýsing á aðalskipulagsbreytingu fyrir tvö mál í Höfnum. Annars vegar að taka 0,34 ha af skilgreindu opnu svæði og 0,06 ha af svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Hvamms (samtals 0,4 ha) og breyta í frístundabyggð. Hins vegar að 0,8 ha af opnu svæði í landi Seljavogs 2a verði breytt í íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna.
Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.7. Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar - Ósk um umsögn á lýsingu fyrir Keflavíkurborgir
Reykjanesbær óskar umsagnar á lýsingu dags. 10.11.2023 fyrir aðalskipulagsbreytingu og nýs deiliskipulags fyrir íbúðarbyggð í Keflavíkurborgum í Reykjanesbæ. Fyrirhugað er að stækka núverandi íbúðarsvæði um 24 ha og verði það alls 29 ha. Sjá mál í gátt https://skipulagsgatt.is/issues/2024/74
Lögð var fram skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar og nýs deiliskipulags fyrir íbúðarbyggð í Keflavíkurborgum í Reykjanesbæ, dags. 10.11.2023.
Fyrirhugað er að stækka núverandi íbúðarsvæði um 24 ha og verði það alls 29 ha.
Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna.
Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.8. Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar - Ósk um umsögn á lýsingu fyrir miðsvæði Vatnsnes
Óskað er umsagnar á skipulagslýsingu á aðalskipulagsbreytingu á miðsvæði Vatnsness í Reykjanesbæ. Núgildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir 600 íbúðum á svæðinu sem er um 18,5 ha. Breyting kom upp vegna tillögu að þéttingu byggðar á miðsvæðinu við deiliskipulagsvinnu svæðisins. Við breytinguna fjölgar íbúðum í 1250 og heildar byggingarmagn eykst í það sem nemur fjölda íbúða ásamt annarri þjónustu á svæðinu. Mál á gátt https://skipulagsgatt.is/issues/2024/175
Lögð var fram lýsing á aðalskipulagsbreytingu á miðsvæði Vatnsness í Reykjanesbæ. Núgildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir 600 íbúðum á svæðinu sem er um 18,5 ha. Við breytinguna fjölgar íbúðum í 1250 og heildar byggingarmagn eykst í það sem nemur fjölda íbúða ásamt annarri þjónustu á svæðinu.
Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna
Málinu er vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.