Skipulagsnefnd - 67. fundur
- 20.01.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:35
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 67
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Tillag að nýju deiliskipulag norðan Hópsbrautar til umræðu.
Fulltrúar Eflu verkfræðistofu, þær Jóhanna Helgadóttir og María Björk Gunnarsdóttir, sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Farið yfir stöðuna á deiliskipulagi á nýju hverfi norðan Hópsbrautar.
Skipulagsnefnd samþykkir að fá verktaka á svæðinu til að rýna í tillögu nefndarinnar. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.2. Deiliskipulagsbreyting vegna Suðurhóps 2
Í gildandi deiliskipulag þar sem Hópskóli stendur við Suðurhóp 2 hefur ekki verið gert ráð fyrir stækkun á Hópskóla, áföngum 2 og 3. Þar af leiðandi er byggingareitur á lóð ekki nægjanlega stór. Þá þarf að breyta lóðarmörkum m.v. þá hönnun sem liggur fyrir vegna lóðarinnar frá hönnun á áfang 1. Óskað er eftir heimild til að grenndarkynna deiliskipulagsbreytingu í samræmi við drög að breytingaruppdrætti.
Í gildandi deiliskipulag þar sem Hópskóli stendur við Suðurhóp 2 er byggingarreitur ekki nógu stór fyrir fullbyggðan Hópskóla. Þá þarf að breyta lóðarmörkum m.v. fyrirliggjandi hönnun.
Skipulagsnefndin samþykkir að fara í óverulega breytingu á deiliskipulagi við Suðuhóp í samræmi við breytingaruppdrátt dagsettan í janúar 2020. Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að grenndarkynna deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 2.mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal fyrir íbúum við Suðurhóp 1, 4, 6, 8, 10, 12 og 14 og íbúm við Austurhóp 29, 31, 33 og 35.
Skipulagsnefnd samþykktir3. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Farið yfir svör ráðgjafa við athugasemdum Skipulagsstofnunar. Stefnt á aukafund Skipulagsnefndar í byrjun febrúar til að afgreiða endurskoðun aðalskipulagsins til auglýsingar.
Athugasemdir bárust frá Skipulagsstofnun við endurskoðun á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018 - 2032. Formaður skipulagsnefndar, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs ásamt fulltrúm ráðgjafa hafa fundað með Skipulagsstofnun vegna umræddrar athugasemda. Samantekt viðbragða ráðgjafa lagt fram.
Skipulagsnefnd samþykkir að boða til aukafundar um málið mánudaginn 3.febrúar 2020 þar sem uppfærð greinagerð, umhverfisskýrsla og uppdrættir yrðu lagðir fyrir nefndina til samþykktar áður en endurskoðunin fer í auglýsingu samkvæmt VII kafla skipulagslaga nr. 123/2010.4. Suðurstrandarvegur - Vegstæði og þróun byggðar
Til umræðu eru tillögur Vegagerðarinnar að nýrri legu vegstæðis Suðurstrandarvegar norðan við Grindavíkurbæ.
Tillögur Vegagerðarinna um nýja legu vegstæðis Suðurstrandarvegar norðan Grindavíkurbæjar lagðar fram.
Skipulagsnefnd líst best á tillögu Vegagerðarinnar nr. 4. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.5. Skipulagsnefnd: Samþykkt 2020
Lögð er fram tillaga að samþykkt fyrir skipulagsnefnd Grindavikurbæjar.
Lögð er fram tillaga að samþykkt fyrir skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar.
Málinu vísað til næsta fundar.6. Breyting á gjaldskrá - byggingarleyfis og þjónustugjalda
Tillögur að breytingum á gjaldskrá fyrir byggingarleyfis- og þjónustugjöld lagðar fram nr. 467/2019.
Lögð er fram til samþykktar breyting á gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjöld í Grindavík. Gjaldtakan byggir m.a. á heimild í lögum um mannvirki nr. 160/2010 og skipulagslög nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að breyttri gjaldskrá með þeirri breytingu að taka orðið hjólhýsi út úr grein 3.1.
Vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.7. Baðsvellir 13 - Umsókn um breytingu á byggingarleyfi
Vegna framkvæmda við Baðsvelli 13 er óskað eftir breytingu á útgefnu byggingarleyfi. Áður hefur verið veitt byggingarleyfir fyrir sólstofu en nú er óskað eftir breytingu á útgefnu byggingarleyfi þar sem útliti og uppbyggingu er breytt.
Óskað er eftir að að nefndin taki erindið til skoðunar og vísi til byggingarfulltrúa, taki hún jákvætt í byggingaráformin.Vegna framkvæmda við Baðsvelli 13 er óskað eftir breytingu á útgefnu byggingarleyfi. Áður hefur verið veitt byggingarleyfir fyrir sólstofu en nú er óskað eftir breytingu á útgefnu byggingarleyfi þar sem útliti og uppbyggingu er breytt.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin með fyrirvara um að engin athugasemd berist við grenndarkynningu. Sviðstjóra falið að grenndarkynna fyrir íbúum Baðsvalla 11.8. Borgarhraun 6 - umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi vegna viðbyggingu við bílgeymslu við Borgarhraun 6. Lögð er fram umsókn ásamt teikningum. Óskað er eftir að að nefndin taki erindið til skoðunar og vísi til byggingarfulltrúa, taki hún jákvætt í byggingaráformin.
Sótt er um byggingarleyfi vegna viðbyggingu við bílgeymslu við Borgarhraun 6. Lögð er fram umsókn ásamt teikningum.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin með fyrirvara um að engin athugasemd berist við grenndarkynningu. Sviðstjóra falið að grenndarkynna fyrir íbúum Borgarhrauns 3,4,5 og 8.9. Ægisgata 3 - fyrirspurn um framkvæmd við Ægisgötu 3
Fyrirspurn vegna framkvæmda við þjálfunaraðstöðu við Ægisgötu 3. Óskað er eftir að að nefndin taki erindið til skoðunar og vísi til byggingarfulltrúa, taki hún jákvætt í byggingaráformin.
Guðmundur Pálsson vék af fundi við afgreiðslu og umfjöllun málsins.
Umsókn um byggingarleyfi vegna framkvæmda við þjálfunaraðstöðu við Ægisgötu 3 (2.hæð).
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin með fyrirvara um samþykki húseiganda.10. Skipulagsnefnd - umferðar og öryggismál
Auglýst var eftir áhugasömum aðilum til að funda með skipulagsnefnd varðandi bætt umferðaröryggi innan sveitarfélagsins. Fundað verður 1-2 á ári. Farið yfir þá þá sem settu sig í samband við sviðsstjóra vegna málsins lagður fram.
Auglýst var eftir áhugasömum aðilum til að funda með skipulagsnefnd varðandi bætt umferðaröryggi innan sveitarfélagsins. Farið yfir þá þá sem settu sig í samband við sviðsstjóra vegna málsins.
Málinu vísað til umræðu um samþykkt skipulagsnefndar.