Skipulagsnefnd - 130. fundur
- 25.03.2024
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:15
- Tollhúsið, Tryggvagötu 19, Reykjavík
- Fundur nr. 130
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
- Hjörtur Már Gestssonbyggingarfulltrúi
- Elísabet Bjarnadóttirsérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 5. og 6. mál:
Vík 129161 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2, nr. 2310087
Niðurrif húsa undir hrauni, nr. 2402032.
Samþykkt samhljóða.
1. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Staðan í Grindavík vegna náttúrurhamfara í Grindavík meðal annars m.t.t. byggingar- og skipulagsmála rædd.
Staðan í Grindavík vegna náttúruhamfara í Grindavík meðal annars m.t.t. byggingar- og skipulagsmála rædd.
2. Óleyfisframkvæmdir í Grindavík
Til umræðu eru skráningamál fasteigna hjá byggingarfulltrúa þ.á.m óleyfisframkvæmdir.
Rætt um skráningamál fasteigna hjá byggingarfulltrúa þ.á.m óleyfisframkvæmdir.
Byggingarfulltrúi og skipulagsfulltrúi hafa fundað með Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Skipulagsstofnun vegna óleyfisframkvæmda.
Starfsmönnum skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram.3. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Bláa lónsins
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Bláa lónsins. Breyting er gerð á lóð 9a sem hýsir þjónustuhús. Almannavarnir hafa vegna eldsumbrota reist varnargarð sem þverar lóðina. Því þarf að stækka lóðina ásamt byggingarreit til að svigrúm fáist fyrir staðsetningu nýrrar þjónustubyggingar og hægt verði að loka garðinum sem hefur verið opinn vegna starfssemi lónsins.
Á svæðinu er einnig unnið að nýjum flóttavegi, bílastæði og göngum sem liggja frá bílastæði í gegnum garðinn og að þjónustuhúsi. Þær framkvæmdir eru í beinum tengslum við gerð
varnargarðsins og falla því ekki undir skipulagslög nr.123/2010 heldur lög nr. 543/154 um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga og eru ekki hluti af þessari breytingu að öðru leyti en að þær eru sýndar á
uppdrættinum og eru leiðbeinandi. Grenndarhagsmunir eru taldir engir eða minniháttar.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum metur skipulagsnefnd svo að óverulega deiliskipulagsbreytingu þurfi fyrir framkvæmdina og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna hana lóðareiganda og eiganda nærliggjandi lóðar. Skipulagsnefnd telur ekki nauðsyn að taka málið fyrir aftur og veitir skipulagsfulltrúa heimild, svo framarlega sem samþykki allra fæst úr grenndarkynningu, til að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna í B-deild Stjórnartíðinda og senda á Skipulagsstofnun.
Samkvæmt 2. gr. viðauka 1.1 í bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Bláa lónsins. Breyting er gerð á lóð 9a sem hýsir þjónustuhús. Almannavarnir hafa vegna eldsumbrota reist varnargarð sem þverar lóðina. Því þarf að stækka lóðina ásamt byggingarreit til að svigrúm fáist fyrir staðsetningu nýrrar þjónustubyggingar og hægt verði að loka garðinum sem hefur verið opinn vegna starfsemi lónsins.
Á svæðinu er einnig unnið að nýjum flóttavegi, bílastæði og göngum sem liggja frá bílastæði í gegnum garðinn og að þjónustuhúsi. Þær framkvæmdir eru í beinum tengslum við gerð
varnargarðsins og falla því ekki undir skipulagslög nr.123/2010 heldur lög nr. 543/154 um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga og eru ekki hluti af þessari breytingu að öðru leyti en að þær eru sýndar á uppdrættinum og eru leiðbeinandi. Grenndarhagsmunir eru taldir engir eða minniháttar.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum metur skipulagsnefnd svo að um óverulega deiliskipulagsbreytingu sá að ræða. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna deiliskipulagsbreytinguna fyrir landeigenda. Skipulagsnefnd telur ekki nauðsyn að taka málið fyrir aftur og veitir skipulagsfulltrúa heimild til að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna í B-deild Stjórnartíðinda og senda á Skipulagsstofnun með fyrirvara um samþykki landeigenda.
Samkvæmt 2. gr. viðauka 1.1 í bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.4. Umsókn um framkvæmdaleyfi - viðhaldsborun og stækkun á borteig RN-12
HS Orka sækir um framkvæmdarleyfi fyrir viðhaldsborun á borteig RN-12 við Reykjavnesvirkjun.
Matsskylda framkvæmdarinnar er nú þegar til staðar en viðhaldsborun á RN-12 er hluti framkvæmda sem byggja á áliti Skipulagsstofnunar frá 23.7.2009, um stækkun Reykjanesvirkjunar og úrskurði Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Reykjanesvirkjunar frá 2002.
Fyrirhuguð framkvæmd er bæði í samræmi við gildandi deiliskipulag og aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2018-2032. Er því fallið frá grenndarkynningu í samræmi við 5. mgr. 13. skipulagslaga.
Samkvæmt 4.mgr.2. gr. í viðauka 1.1 í bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.HS Orka sækir um framkvæmdarleyfi fyrir viðhaldsborun á borteig RN-12 við Reykjanesvirkjun.
HS Orka hf. áformar viðhaldsborun á borholu RN-12 á núverandi borsvæði BG-7. Stækka þarf svæðið lítillega, um 800 m2 , til að koma fyrir nauðsynlegum borbúnaði. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru innan sveitarfélagsmarka Grindavíkurbæjar og eru í samræmi við skipulagsáætlanir og umhverfismat. Framkvæmdasvæðið er staðsett á skilgreindu iðnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi og utan við svæði sem eru hverfisvernduð vegna jarðmyndanna.
Fyrirhuguð framkvæmd er bæði í samræmi við gildandi deiliskipulag og aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2018-2032. Er því fallið frá grenndarkynningu í samræmi við 5. mgr. 13. skipulagslaga.
Samkvæmt 4.mgr.2. gr. í viðauka 1.1 í bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.
Skipulagsnefnd samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi vegna framkvæmdarinnar.5. Vík 129161 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Heiðar Guðmundsson sækir um byggingarleyfi vegna breytrar notkunar á húsinu Vík við Verbraut.
Grenndarkynningu vegna byggingaráforma við Vík sem stendur við Verbraut er lokið án athugasemda. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við áformin.
Með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða af hálfu skipulagsnefndar. Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.6. Niðurrif húsa undir hrauni
Niðurrif húsa sem liggja undir hrauni að hluta til umræðu.
Hrannar Jón Emilsson vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Niðurrif húsa sem liggja undir hrauni að hluta til umræðu. Skipulagsnefnd vísar málinu til umræðu og ákvörðunar í bæjarstjórn.