Skipulagsnefnd - 131. fundur
- 10.04.2024
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:20
- í gegnum fjarfundarbúnaðinn TEAMS
- Fundur nr. 131
- Ritari: Elísabet Bjarnadóttir
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
- Hjörtur Már Gestssonbyggingarfulltrúi
- Elísabet Bjarnadóttirsérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs
1. Staðarhraun 8 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Guðbjörg Rós Guðnadóttir sækir um skráningu á óleyfisframkvæmdum við Staðarhraun 8. skv. meðfylgjandi uppdráttum frá Braga Magnússyni dagsettum 8.02.2024.
Helstu breytingar frá samþykktum teikningum er að búið er að lengja bílgeymslu og innrétta hana sem íbúðarrými, Einnig er búið að byggja yfir pall sem var milli þvottarhús og herbergis í suðurhlið hússins.Guðbjörg Rós Guðnadóttir sækir um skráningu á óleyfisframkvæmdum við Staðarhraun 8. skv. meðfylgjandi uppdráttum frá Braga Magnússyni dagsettum 8.02.2024.
Helstu breytingar frá samþykktum teikningum er að búið er að lengja bílgeymslu og innrétta hana sem íbúðarrými. Einnig er búið að byggja yfir pall sem var milli þvottarhús og herbergis í norðurhlið hússins.
Samkvæmt kortasjá sveitarfélagsins má sjá að framkvæmdir við lengingu á bílskúr til norðurs (inn í lóð) var unnin í kringum árið 2002 og yfirbygging á palli var unnin á milli áranna 2010 til 2012.
Grenndaráhrif stækkunar yfir pall á norðurhlið hús eru engin að mati skipulagsnefndar. Vegna tómlætis nágranna og byggingaryfirvalda metur skipulagsnefnd það sem svo að ekki þurfi að grenndarkynna stækkun á bílskúr, enda hafi viðbyggingin staðið óáreitt í 22 ár.
Vegna framangreinds þá gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við stækkun fasteignarinnar. Umsókn um breytta notkun á húsnæðinu þarf að berast skipulagsnefnd sérstaklega. Erindinu er vísað til byggingarfulltrúa til afgreiðslu.2. Selsvellir 17 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Hjörtur Pálsson sækir um fyrir hönd Hávarðar um byggingarleyfi vegna skráningar á óleyfisframkvæmd við Selsvelli 17
Hjörtur Pálsson sækir um fyrir hönd Hávarðar Gunnarssonar um byggingarleyfi vegna skráningar á óleyfisframkvæmd við Selsvelli 17. Um er að ræða framkvæmd við 11.8 m2 stækkun húss undir þakskyggni að aftan.
Framkvæmdin er í samræmi við gildandi hverfisskipulag og er því vísað beint til afgreiðslu byggingarfulltrúa.3. Borgarhraun 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bogi Rafn Einarsson óskar eftir breytingu á byggingarleyfi við Borgarhraun 3.
Breytingin er sú að eldri skúr yrði ekki rifinn samhliða stækkun á húsi.Bogi Rafn Einarsson óskar eftir breytingu á byggingarleyfi við Borgarhraun 3. Breytingin snýr að því að eldri bílskúr verður ekki rifinn samhliða stækkun á húsi.
Grenndaráhrif breytingar á byggingarleyfi fyrir Borgarahraun 3 eru engin enda hefur bílskúrinn staðið þarna síðan árið 1959.
Vegna framangreinds þá gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við umsóknina og vísar henni til afgreiðslu byggingarfulltrúa.