Skipulagsnefnd - 52. fundur
- 18.02.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 52
- Ritari: Sigurður Ólafsson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Alma Dögg Einarsdóttirvaramaður
1. Umferðaröryggisáætlun: Aðkoma um Grindavíkurveg
Lögð fram gögn um forhönnun á undirgöngum undir Grindavíkurveg við Suðurhóp.
Skipulagsnefnd er ánægð með að Vegagerðin vill fara í framkvæmd á undirgöngum við Grindavíkurveg rétt norðan Suðurhóps. Nefndin felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna fjárhagsáætlun við stígagerð að göngunum. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði að fara í framkvæmdina.
Skipulagsnefnd skorar á bæjarstjórn að skipa nýja umferðaröryggisnefnd.2. Umferðaröryggi er okkar mál! - Niðurstöður málþings og þakkir
Niðurstöður málþingsins Umferðaröryggi er okkar mál! sem Ungmennaráð Grindavíkurbæjar stóð fyrir 8.-9. nóvember sl. lagðar fram ásamt þökkum fyrir stuðning og þátttöku.
Skipulagsnefnd lýsir yfir ánægju sinni með þetta flotta framtak hjá ungmennaráði.
3. Sjóvarnir í Grindavík 2019 - Umsókn um framkvæmdaleyfi
Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi vegna sjóvarna við Arfadalsvík við golfvöll og Gerðistanga.
Framkvæmdin er á núverandi aðalskipulagi og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að gefa út framkvæmdaleyfi.
4. Baðsvellir 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um byggingarleyfi á sólstofu við Baðsvelli 13.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Framkvæmdin hefur verið grenndarkynnt. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar öll hönnunargögn hafa verið samþykkt.
5. Umsókn um framkvæmdaleyfi
Samherji Fiskeldi ehf sækir um framkvæmdaleyfi til að bora 3 holur á sömu forsendum og áður, við lóð þeirra á Stað.
Skipulagsnefnd samþykkir áformin um boranir m.t.t. samþykki Orkustofnunar og gildandi deiliskipulags. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs gefur út framkvæmdaleyfi.