Skipulagsnefnd - 74. fundur
- 22.06.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 17:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 74
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Farið yfir þær athugasemdir sem bárust á auglýsingartíma tillögu að breyttu aðalskipulagi Grindavíkur. Tillögur að svörum við athugasemdum yfirfarnar.
Endurskoðað aðalskipulag tekið fyrir eftir auglýsingu skv. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga. Skipulagsnefnd fjallaði um innkomnar athugasemdir og umsagnir opinbera aðila og viðbrögð sveitarfélagsins við þeim.
Skipulagsnefnd samþykkir endurskoðað aðalskipulag með áorðnum breytingum eftir auglýsingu og vísar afgreiðslu þess til bæjarstjórnar í samræmi við 2.mgr. 32.gr. skipulagslaga.2. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Tillag að deiliskipulagi, greinagerð og uppdráttur, á nýju hverfi norðan Hópsbrautar lögð fram til samþykktar.
Tillaga að deiliskipulag norðan Hópsbrautar lögð fram. Farið yfir deiliskipulagsuppdrátt ásamt greinagerð.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.3. Norðurhóp 66 Umsókn um byggingarleyfi
Endurnýjun á umsókn um byggingarleyfi á þegar samþykktum teikningum við Norðurhóp 66.
Endurnýjun á umsókn um byggingarleyfi á þegar samþykktum teikningum við Norðurhóp 66. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 3.hæða fjölbýlishúsi.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.4. Suðurhóp 2 (Áfangi 2 við Hópskóla)- umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um byggingarleyfi við Suðurhóp 2, viðbygging við Hópskóla, lögð fram.
Umsókn um byggingarleyfi við Suðurhóp 2. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir stækkun á Hópskóla.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.5. Arnarhraun 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Óskað er eftir byggingarleyfi við Arnarhraun 5. Lóðarhafi vill reisa opið skýli á lóðarmörkum.
Umsókn um byggingarleyfi á Arnarhrauni 5. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir opnu skýli á lóð.
Málinu frestað. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.6. Framlenging lóðarleigusamnings- austurvegur 45
Lóðarhafar lóðarinnar Austurvegur 45 óska eftir framlengingu á lóðarleigusamning í óbreyttri mynd. Núgildandi samningur fellur úr gildi 1. desember 2020.
Lóðarhafar lóðarinnar Austurvegur 45 óska eftir framlengingu á lóðarleigusamning í óbreyttri mynd. Núgildandi samningur fellur úr gildi 1. desember 2020.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að lóðin nái ekki vestur fyrir Hópsheiði (5-7 metrar að veginum). Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.7. Fyrirspurn um breytingar á löndunaraðstöðu fyrir frystitogar
Óskað var afstöðu hafnarstjórnr á því að löndunaraðstaða Þorbjarnar á Suðurgarði verði breytt og hún stækkuð. Hafnarstjórn tók vel í erindið á fundi sínum þann 8.júní sl. en leggur á það áherslu að skerða ekki plássið á bryggjunni enn frekar. Erindinu var vísað til skipulagsnefndar.
Óskað var afstöðu hafnarstjórnr á því að löndunaraðstaða Þorbjarnar á Suðurgarði verði breytt og hún stækkuð. Hafnarstjórn tók vel í erindið á fundi sínum þann 8.júní sl. en leggur á það áherslu að skerða ekki plássið á bryggjunni enn frekar. Erindinu var vísað til skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd heimilar Þorbirni að færa núverandi tjald og reisa nýtt ásamt því að fá stöðuleyfi fyrir gáma á lóð fyrir sunnan þá á nýrri uppfyllingu. Stöðuleyfi fyrir gáma er veitt til 12 mánaða. Framkvæmdin skal gerð í fullu samráði við Hafnarstjóra og Hafnarstjórn. Leyfi fyrir framkvæmdum er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.8. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 45
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingarmála nr. 45 lögð fram.