Skipulagsnefnd - 72. fundur
- 18.05.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:35
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 72
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Sigurður Guðjón Gíslasonvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Tillag að nýju deiliskipulagi norðan Hópsbrautar lögð fram. Skýringarmyndir í greinagerð koma inn á mánudag.
Tillaga að nýju deiliskipulagi norðan Hópsbrautar lögð fram.
Fulltrúar verkfræðistofunar Eflu sátu fundinn. Efla vinnur úr athugasemdum nefndarinnar.2. Hverfisskipulag í Grindavík
Tillaga að skipulagslýsingu á hverfisskipulagi í valla og stígahverfi Grindavíkur.
Skipulagslýsing á hverfiskipulagi valla- og stígahverfi lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagslýsinguna með þeirri breytingu að raðhúsin við Efstahraun 2-20 verði utan þessa hverfisskipulags. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að leitað verði umsagnar Skipulagsstofnunar og umsagnaraðilum ásamt því að hún verði kynnt almenningi í samræmi við 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Erindi vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.3. Víkurhóp 16-22 - breyting á deiliskipulagi
Grindin ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi norðan hópsbrautar. Óskað er eftir að fækka húsum úr 4 í 3.
Grindin ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Óskað er eftir að fækka íbúðum úr 4 í 3.
Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi engin áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp né nýtingarmöguleika. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við færslu á innviðum á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.
Erindinu vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.4. Hafnargata 22 - breyting á deiliskipulagi
Grenndarkynning hefur farið fram. Staðfesting nágranna að Hafnargötu 21 liggur fyrir. Aðrir lóðarhafar sem grenndarkynna átti fyrir eru í umráði umsækjanda.
Grenndarkynning á tillögu á breyttu deiliskipulagi við Hafnargötu 22 hefur farið fram. Engar athugasemdir bárust við grenndarkynningunni á deiliskipulagsbreytingunni.
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við færslu á innviðum á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.5. Víkurhóp 10-14 - breyting á deiliskipulagi
Grindin ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi norðan hópsbrautar. Óskað er eftir að fækka húsum úr 3 í 2.
Grindin ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Óskað er eftir að fækka íbúðum úr 3 í 2.
Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi engin áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp né nýtingarmöguleika. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við færslu á innviðum á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.
Erindinu vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.6. Suðurnesjalína 2: Álit Skipulagsstofnunar
Álit Skipulagsstofunar á Suðurnesjalínu 2 lagt fram til upplýsinga.
Álit Skipulagsstofnunar á Suðurnesjalínu 2 lagt fram til upplýsinga.
7. Túngata 1 - umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Túngötu 1. Um er að ræða að eigandi húsnæðisins óskar eftir því að stækka íbúð á 1. hæð á kostnað bílskúrs, þ.e.a.s. bílskúrnum er breytt í íbúð og byggt á milli húsa, einnig ætlar húseigandi að byggja bíslag við 2. hæð, sjá teikningar
Umsókn um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Túngötu 1. Um er að ræða að eigandi húsnæðisins óskar eftir því að stækka íbúð á 1. hæð á kostnað bílskúrs, þ.e.a.s. bílskúrnum er breytt í íbúð og byggt á milli húsa, einnig ætlar húseigandi að byggja bíslag við 2. hæð.
Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi óveruleg áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp og nýtingarmöguleika. Skipulagsnefnd samþykkir erindið.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
8. Víkurhóp 57 - umsókn um lóð
Bjarg íbúðarfélag sækir um lóðina Víkurhóp 57.
Bjarg íbúðarfélag sækir um lóðina Víkurhóp 57. Skipulagsnefnd samþykkir umsóknina.
Erindi vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.9. Göngu- og vegslóði upp á Þorbjörn
Til umræðu er ástand á göngu og vegslóða upp á Þorbjörn.
Til umræðu er ástand á göngu og vegslóða upp á Þorbjörn.
Sviðsstjóra falið að ræða við veghaldara á vegslóða upp á Þorbjörn til að lagfæra slóðann.