Skipulagsnefnd - 66. fundur
- 11.12.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:15 -
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 66
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Björgvin Björgvinssonvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Farið yfir stöðuna á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Uppfærð tillaga hefur borist frá hönnuðum.
Farið yfir uppfærðar tillögu að nýju deiliskipulagi norðan Hópsbrautar.
Sviðsstjóra falið að koma á framfæri athugasemdum nefndarinnar.2. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Athugaemdir Skipulagsstofnunar hafa borist sviðsstjóra. Til upplýsinga þá eru þær lagðar fyrir nefndina. Sviðsstjóri mun vinna með ráðgjafa að yfirferð gagna m.t.t. athugasemdanna.
Gert er ráð fyrir að setja endurskoðað aðalskipulag í almenna auglýsingu í byrjun janúar. Í kjölfarið yrði haldinn íbúafundur.Vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 eru lagðar fram til upplýsinga athugasemdir Skipulagsstofnunar við skipulagstillöguna og umhverfismat hennar.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram með ráðgjafa. Stefnt er að því að leggja uppfærða tillögu fyrir næsta fund skipulagsnefndar.3. Efrahóp 6 og 8 - deiliskipulagsbreyting
Grenndarkynning á óverulegri deiliskipulagsbreytingu við Efrahóp 6 og 8 er lokið. Engin athugasemd barst.
Tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi við Efrahóp 6 og 8. Athugasemdafrestur grenndarkynningar vegna tillögu rann út þann 5.desember sl. Engin athugasemd barst.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkti deiliskipulagsbreytinguna og vísar henni til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.4. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Farið yfir fyrirhugaða deiliskipulagsbreytingu við Víðihlíð og tilboð frá ráðgjafa.
Farið yfir fyrirhugaða deiliskipulagsbreytingu við Víðihlíð.
Skipulagsnefnd samþykkir að fara í deiliskipulagsbreytinguna og felur sviðstjóra að vinna málið áfram.5. Skipulagsmál árið 2020
Farið yfir hvað liggur fyrir í skipulagsmálum í Grindavík á næsta ári.
Lagt fram yfirlit yfir fyrirhugaða vinnu í skipulagsmálum á næsta ári.