Skipulagsnefnd - 113. fundur
- 30.01.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 113
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Sverrir Auðunssonvaramaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Deiliskipulag við Þorbjörn
Skipulagstillaga fyrir Þorbjörn lögð fram í kjölfar þess að auglýsingartími tillögu er liðinn. Umsagnir og athugasemdir lagðar fram.
Skipulagstillaga fyrir Þorbjörn lögð fram í kjölfar þess að auglýsingartími tillögu er liðinn. Umsagnir og athugasemdir lagðar fram.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að ljúka við drög að viðbrögðum við umsögnum um skipulagtillöguna í samræmi við umræður á fundinum. Skipulagsnefnd vill gera ráð fyrir stærri áningastað sunnan við Þorbjörn.2. Orkubraut 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
HS orka sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Orkuver 6. Orkuverið stækkar með nýrri vél. Vélarsalur lengdur, nýtt hús fyrir stjórnbúnað, nýr kæliturn og dælustöð. Umsókn og teikningar lagðar fram.
HS orka sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Orkuver 6. Orkuverið stækkar með nýrri vél. Vélarsalur lengdur, nýtt hús fyrir stjórnbúnað, nýr kæliturn og dælustöð. Skipulagsnefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag.
Þar sem byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu þá er um fullnaðarafgreiðslu skipulagsnefndar að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.3. Ufsasund 8 - Umsókn um lóð
Ufsasund ehf. sækir um lóðina Ufsasund 8.
Ufsasund ehf. sækir um lóðina Ufsasund 8.
Samþykkt.4. Ufsasund 6 - Umsókn um lóð
Ufsasund ehf. sækir um lóðina Ufsasund 6
Ufsasund ehf. sækir um lóðina Ufsasund 6.
Samþykkt.5. Bílastæði við leikskólann Krók
Bæjarráð fól sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að skoða hvaða möguleikar eru í stöðunni til að bæta aðgengi og bílastæði við Krók. Sviðsstjóri óskar eftir umræðu um verkefnið í skipulagsnefnd. Engin gögn fylgja dagskrárliðnum.
Bæjarráð fól sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að skoða hvaða möguleikar eru í stöðunni til að bæta aðgengi og bílastæði við Krók.
Skipulagsnefnd leggur til að komið verður fyrir bílastæðum við vestari enda leikskólans og að aðgengi að þeim verði meðfram leikssvæði Króks og inn á Gerðavelli til móts við inngang að bílastæðum við Víkurbraut 62. Þá þarf að huga að gangandi umferð og lýsingu.6. Deiliskipulag miðbæjar í Grindavík
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 17. janúar sl. viðaukabeiðni að upphæð 15 milljóna króna vegna vinnu við miðbæjarskipulag í Grindavík. Setja þarf vinnuna í gang og er óskað umræðu um hvaða svæði skuli vera undir og hver næstu skref eru.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 17. janúar sl. viðaukabeiðni að upphæð 15 milljóna króna vegna vinnu við miðbæjarskipulag í Grindavík.
Skipulagsnefnd leggur til að það svæði sem verður undir í miðbæjarskipulaginu nái frá Víkurbraut við Nesveg alveg niður að Seljabót.7. Rafmagnsleysi á Suðurnesjum vegna bilunar
Málið er sett á dagskrá að beiðni formanns skipulagsnefndar. Bókun bæjarráðs vegna málsins verður lögð fram.
Farið yfir þær aðstæður sem sköpuðust við rafmagnsleysi á Suðurnesjum vegna bilunar í Suðurnesjalínu 1.
Skipulagsnefnd leggur til að við bæjarráð að skoðað verði að fá úttekt á stöðu innviða (heit vatn, kalt vatn og rafmagn) til Grindavíkurbæjar.8. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 69
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála lögð fram.
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála lögð fram.