Skipulagsnefnd - 55. fundur
- 24.04.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 55
- Ritari: Sigurður Ólafsson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
- Sigurður Halldórssonvaramaður
Formaður óskaði eftir að taka á dagskrá "Bjarmaland: Umsókn um byggingarleyfi - 1904057" sem afbrigði.
Samþykkt með öllum atkvæðum nefndarmanna.
1. Verndarsvæði í byggð: Þórkötlustaðahverfi
Samráðsfundur með skipulagsfræðingum EFLU vegna fundarpunkta frá íbúafundi.
Málið verður unnið áfram.
2. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Tillaga að verkáætlun EFLU vegna endurskoðunar Aðalskipulags.
Skipulagsnefnd ásamt Brynju Dögg skipulagsfræðingi frá verkfræðistofunni EFLU hafa skipulagt samráðsfundi með hagsmunaaðilum vegna stíga- og slóðamála.
3. Lambhúskot - Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsi á lóð Lambhúskots í Þórkötlustaðahverfi.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar öll hönnunargögn hafa verið samþykkt.
4. Breyting á gjaldskrá- vatnsveita
Breyting á gjaldskrá - vatnsveita Grindavíkurbæjar.
Skipulagsnefnd samþykkir uppfærða gjaldskrá og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
5. Breyting á gjaldskrá - byggingaleyfis og þjónustugjalda
Breyting á gjaldskrá - byggingarleyfis- og þjónustugjöld Grindavíkurbæjar.
Skipulagsnefnd samþykkir uppfærða gjaldskrá og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
6. Breyting á gjaldskrá- fráveita og rotþró
Breyting á gjaldskrá - Fráveita og rotþró í Grindavíkurbæ.
Skipulagsnefnd samþykkir uppfærða gjaldskrá og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
7. Víkurhóp 57- umsókn um lóð
Umsókn um byggingarlóðina að Víkurhópi 57 undir fjölbýlishús.
Skipulagsnefnd samþykkir umsóknina. Umsækjandi skal uppfylla skilyrði nýrra úthlutunarreglna Grindavíkurbæjar. Nýjar úthlutunarreglur voru samþykktar í bæjarstjórn 26. mars 2019.
8. Búðir - Umsókn um byggingarleyfi
Breyting á áður útgefnu byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar öll hönnunargögn hafa verið samþykkt.
9. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Rafvæðing Miðgarðs og hafnarsvæðis
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna vinnu við gröft og rafstrengjalagnir við Miðgarð og hafnarsvæði.
Skipulagsnefnd samþykkir áformin og felur sviðsstjóra að gefa út framkvæmdaleyfi.
10. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Stækkun heimtaugar að Hafnargötu 18
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna stækkunar á rafmagnsheimtaug að Hafnargötu 18.
Skipulagsnefnd samþykkir áformin og felur sviðsstjóra að gefa út framkvæmdaleyfi.
11. Hvassahraun 5 - Færsla á ljósastaur
Fyrirspurn með beiðni um tilfærslu á ljósastaur við Hvassahraun 5.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Framkvæmdin verður framkvæmd af Grindavíkurbæ og allur kostnaður verður greiddur af umsækjanda.
12. Hólmasund 6 - Stækkun á byggingarreit
Deiliskipulagsuppdráttur vegna Hólmasunds 6.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
13. Stjörnublikk ehf - Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta geymslugám við skiljustöð í Svartsengi undir einangrun og klæðningar vegna framkvæmda á svæðinu.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um leyfi frá HS Orku.
14. Krýsuvíkurvegur - endurbætur
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna endurbóta á Krýsuvíkurvegi.
Skipulagsnefnd samþykkir áformin og felur sviðsstjóra að gefa út framkvæmdaleyfi.
15. Auðsholt - Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um byggingarleyfi fyrir 87.5 m2 timburhúsi með 30°þakhalla í Þórkötlustaðahverfi.
Skipulagsnefnd bendir á að útlit hússins samræmist ekki þegar auglýstri Verndaráætlun í byggð í Þórkötlustaðahverfi. Umsækjanda er bent á að endurskoða útlit hússins.
16. Bjarmaland - Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um byggingarleyfi fyrir sólstofu (á einni hæð) við austurgafl íbúðarhússins, sem myndi tengjast bílgeymslu með gangi. Um er að ræða stækkun sem nemur um 32 m2, þ.e. sjálf sólstofan um 23 m2 og gangur um 8 m2.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar öll fullnægjandi hönnunargögn hafa verið samþykkt.
17. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 35
Lagt fram til kynningar.