Skipulagsnefnd - 47. fundur
- 19.11.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 47
- Ritari: Sigurður Ólafsson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
1. Eyjabakki Deiliskipulag
Meðfylgjandi er skipulagslýsing fyrir Eyjabakka, uppfærð eftir fund með hafnarnefnd þar sem m.a. kom fram að unnið væri að breytingu á hafnargörðum og að óraunhæft væri að byggja upp aðstöðu fyrir smábáta nyrst í Hópinu og réttara að stækka og bæta núverandi aðstöðu.
Lögð fram tillaga að skipulags-og matslýsingu fyrir deiliskipulag Eyjabakka II skv. 1.mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða lýsingu fyrir skipulagsgerð á þeim hluta iðnaðar- og hafnarsvæðis sem ekki er deiliskipulagt sunnan og austan við Hópið.
Skipulagsnefnd óskar eftir áliti hafnarstjórnar á skipulags- og matslýsingunni.2. Víkurhóp 16 - 22 - Fyrirspurn um breytingu á byggingarreit
Fyrirspurn um stækkun á byggingarreit um 3 m í götustefnu
Skipulagsnefnd heimilar stækkun á byggingarreit eingöngu til austurs, allt að 4 metrum. Þessi breyting er innan lóðarmarka.
Breyting á deiliskipulagi verður á kostnað lóðarhafa. Leggja þarf breytingu á deiliskipulagi fyrir skipulagsnefnd.3. Gjaldskrá byggingarleyfis og þjónustugjalda byggingarfulltrúa
Fara þarf yfir gjaldskrána og laga tilvísanir í lög, uppfæra grunn vísitölu og fjárhæðir til samræmis. Síðan þarf að hafa í huga að samræma tíðni uppreiknings þeirra gjaldskráa sem eru í gildi hjá embættinu.
Sviðsstjóra er falið að uppfæra gjaldskrá fyrir byggingarleyfis- og þjónustugjöld Grindavíkurbæjar.
4. Benedikt Ólafsson - Kvikmyndatökur í Bjarnargjá
Beiðni um að "Flakið" fái að vera áfram í Bjarnargjá.
Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar heimilar áframhaldandi kvikmyndatökur til 1. mars 2019.
5. Umsókn um lóð
Umsókn um lóðir fyrir 16 hús við Víðigerði
Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar hafnar erindinu varðandi umsókn um 16 lóðir við Víðigerði.
Tillögur umsækjanda samrýmast ekki deiliskipulagi svæðisins. Ekki er farið að úthluta neinum lóðum á umræddu svæði.6. Skotsvæði: fyrirspurn
Skotdeild UMFG óskar hér með eftir leyfi fyrir afnot af landi fyrir útsvæði félagsins þar sem hægt væri að iðka skotæfingar. Það svæði er rétt norðvestan og ofan við veginn þar sem Íslandsbleikja er. Það er raskað svæði og er það á jaðri á vatnsverndarfjær og streymisstefna sem er í orkunýtingaráætlun.
Skipulagsnefnd ítrekar afgreiðslu skipulagsnefndarfundar númer 38, þar sem hluti umrædds svæðis er skipulagt sem iðnaðarsvæði og hafnar erindinu.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram og finna heppilegt svæði undir skotæfingar.