Skipulagsnefnd - 53. fundur
- 18.03.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 19:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 53
- Ritari: Sigurður Ólafsson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
1. Reglur um lóðarúthlutun- breyting
Sviðsstjóri skipulags-og umhverfissviðs leggur fram tillögu að breytingu á 4. gr. reglna um úthlutun lóða.
Skipulagsnefnd leggur til eftirfarandi breytingar á reglum um lóðarúthlutanir:
Núgildandi:
3.2.1. Umsækjandi skal vera 18 ára eða eldri, fjárráða og skuldlaus við sveitarfélagið. Umsækjandi skal ekki vera undir gjaldþrotaskiptum né hafa orðið gjaldþrota á síðustu 5 árum frá lóðarúthlutun. Ef umsækjandi er lögaðili skal hann standa í skilum með opinber gjöld þ.m.t. tryggingargjald, virðisaukaskatt og lífeyrissjóðsgjald. Skila skal inn vottorði þess efnis frá sýslumanni ef þess er sérstaklega óskað.
Tillaga skipulagsnefndar:
3.2.1. Umsækjandi skal vera 18 ára eða eldri, fjárráða og skuldlaus við sveitarfélagið. Umsækjandi skal ekki vera undir gjaldþrotaskiptum né hafa orðið gjaldþrota á síðustu 5 árum frá lóðarúthlutun. Ef umsækjandi er lögaðili skal hann standa í skilum með opinber gjöld þ.m.t. tryggingargjald, virðisaukaskatt,lífeyrissjóðsgjald og skal ekki vera á vanskilaskrá. Skila skal inn vottorði þess efnis frá sýslumanni og Creditinfo ef þess er sérstaklega óskað.
Núgildandi:
3.2.5. Hægt er að sækja um eina lóð og aðra til vara.
Tillaga skipulagsnefndar:
3.2.5. Hægt er að sækja um eina lóð og aðrar til vara í sama notkunarflokki.
Lögaðilar geta sótt um tvær lóðir og aðrar til vara í sama notkunarflokki.
Núgildandi:
4. gr.
Úthlutun
Ef fleiri en ein gild umsókn berst skal dregið. Útdráttur skal fara fram á reglulegum afgreiðslufundum byggingamála á skrifstofum sveitarfélagsins.
Umsækjendur skulu vera viðstaddir eða aðilar með skriflegt umboð frá umsækjanda.
Tillaga skipulagsnefndar:
4. gr.
Úthlutun
Ef fleiri en ein gild umsókn berst um sömu lóð skal að jafnaði fara fram útdráttur.
Við útdrátt skal dregið úr þeim umsóknum sem uppfylla skilyrði 3. gr. þessara reglna. Útdráttur skal fara fram á reglulegum afgreiðslufundum byggingamála á skrifstofum sveitarfélagsins. Umsækjendur hafa heimild til að vera viðstaddir útdráttinn eða aðilar með skriflegt umboð frá umsækjanda.
Til þess að gæta jafnræðis meðal umsækjenda eru þeir umsækjendur sem þegar hafa fengið úthlutað lóð á hverjum fundi ekki þátttakendur í næstu útdráttum á sama fundi fyrir lóðir í sama notkunarflokki, fyrr en allir umsækjendur hafa fengið úthlutað lóð.
Einstaklingar hafa forgang við úthlutun einbýlishúsalóða.2. HS Orka ehf - Eldvarpavirkjun staðarvalsgreining
HS Orka hefur á undanförnum árum unnið að undirbúningi virkjunar jarðvarma í Eldvörpum. Í ár er fyrirhugað að bora þar djúpa rannsóknarholu en áður, árið 1983, var boruð þar grunn rannsóknarhola.
Til að undirbúa sem best virkjun jarðvarmans stendur til að skoða nokkra valkosti fyrir staðsetningu orkumannvirkja. Er ætlunin að setja saman vinnuhóp til að koma að úrvinnslu og gefa valkostum einkunn sem síðar verður nýtt í mati á umhverfisáhrifum framkvæmda og gerð aðalskipulags fyrir uppbygginguna þar sem henni verður valinn staður.
Þátttakendur í vinnuhópi verða fulltrúar frá eftirtöldum aðilum:
? HS Orka
? Grindavíkurbær
? Bláa Lónið
? VSÓ ráðgjöf, sem ráðgjafi verkkaupaLagt fram til kynningar.
3. Útsýnispallur við Grindavíkurhöfn
Fyrstu tillögur að hönnun útsýnispalls og sviðs fyrir neðan Kvikuna liggja fyrir. Tillögurnar hafa verið kynntar í Hafnarstjórn, Frístunda- og menningarnefnd og Umhverfis- og ferðamálanefnd ásamt Sviðsstjórateymi.
Bókun Hafnarstjórnar, fundur 464:
Hafnarstjórn telur að langt sé farið frá þeim hugmyndum sem farið var með af stað í upphafi. Hafnarstjórn hafnar því alfarið að hafnarsjóður fjármagni útsýnispall þar sem hann er ekki á hafnarsvæðinu.
Bókun frístunda- og menningarnefndar, fundur 79:
Fyrstu tillögur að hönnun útsýnispalls og sviðs fyrir neðan Kvikuna lagðar fram. Nefndinni líst vel á hugmyndina og leggur til að þær verði þróaðar áfram. Varanlegt svið og skjólsælt torg á þessum stað munu koma að góðum notum í tengslum við hina ýmsu viðburði í sveitarfélaginu og efla bæjarbraginn.
Bókun Umhverfis- og ferðamálanefndar, fundur 33:
Nefndin fór yfir fyrstu hugmyndir að útsýnispalli og varanlegu sviði við Kvikuna. Nefndinni list vel á frumdrögin en íhugar þann möguleika að færa útsýnispallinn yfir á þak sviðsins og hann yrði á afmörkuðu svæði þar. Gott væri að taka saman hvað er til í eigu bæjarins til að nýta þegar sviðið er í notkun, s.s. ljósabúnað og hljóðkerfi.Skipulagsnefnd telur að miðað við kostnaðaráætlun og mögulega nýtingu á mannvirkinu sé óæskilegt að ráðast í þessa framkvæmd.
4. Víkurhóp 16 - 22 - Breyting á deiliskipulagi
Skipulagsnefnd samþykkti beiðni lóðarhafa um að fara í breytingu á deiliskipulagi við Víkurhóp 16 - 22 á fundi sínum nr. 50 þann 21. janúar 2019. Lóðarhafi leggur eftirfarandi breytingar á deiliskipulagi fyrir skipulagsnefnd til samþykktar.
Drög að bókun:
Tekin er fyrir tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar sem tók gildi þann 13.12.06 og var unnið af Verkfræðistofu Suðurnesja. Breyting er gerð á byggingarreitum og nýtingarhlutfalli við Víkurhópi 16-22. Skipulagsnefnd samþykkir að fara með skipulagsbreytinguna sem óverulega og grenndarkynna skv. 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að grenndarkynna deiliskipulagsbreytinguna.5. Verndarsvæði í byggð: Þórkötlustaðahverfi
Kynningarfundur fyrir tillögu að verndaráætlun fyrir Þórkötlustaðahverfi var haldinn í Kvikunni þann 13.02.19 klukkan 17:30 og lauk fundi upp úr klukkan 19. Um kynninguna sáu þau Eva Dís Þórðardóttir frá Eflu, Elín Ósk Hreiðarsdóttir frá Fornleifastofnun Íslands og Hjörleifur Stefánsson frá Gullinsnið. Alls mættu 29 manns á fundinn og voru góðar umræður í lok fundar.
Í töflu í fylgiskjali hafa helstu punktar sem fram komu á fundinum verið teknir saman og mælst til þess að skipulagsnefnd og bæjarstjórn hafi þessa punkta ásamt innkomnum ábendingum til hliðsjónar við afgreiðslu málsins.Erindinu er frestað.
6. Tralli ehf - umsókn um stöðuleyfi
Tralli ehf Fjörubraut 1228, 262 Reykjanesbær, sækir um stöðuleyfi fyrir veitingavagn við bílastæði að Víkurbraut 58, sem eru í eigu Grindavíkurbæjar.
Samþykkt með fjórum atkvæðum, Guðmundur greiðir atkvæði á móti.
7. Verbraut 1: breyting á skipulagi
Tillaga að breytingu á aðal- og deiliskipulagi gamla bæjarins og hafnarskipulagi vegna Verbrautar 1.
Lilja Ósk Sigmarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Bókun:
Fyrirhuguð er uppbygging á lóðinni Verbraut 1. Teknar eru fyrir tillögur að óverulegum breytingum á skipulagsáætlunum: Aðalskipulag Grindavíkur 2010-2030, deiliskipulag miðbæjar- hafnarsvæði og deiliskipulag gamli bærinn, dags. janúar 2019. Breytingarnar eru gerðar vegna breyttrar landnotkunar og fyrirhugaðrar uppbyggingar á Verbraut 1. Skipulagsnefnd hefur samþykkt að fara með skipulagsbreytingarnar sem óverulegar. Tillögurnar voru grenndarkynntar frá 15. febrúar til 15. mars 2019. Tvær athugasemdir bárust sem fjalla um landnotkun á aðliggjandi lóðum, efni þeirra hefur verið vísað í ferli endurskoðunar aðalskipulags Grindavíkur. Umsögn Minjastofnunar barst einnig með fyrirvara um aldur Valgerðarhúss.
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki óverulegar breytingar á aðal- og deiliskipulagsáætlunum óbreyttar skv. 2. mgr. 36. gr. og 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010. Reynist Valgerðarhús friðað og fyrirhugað að gera það upp, mun skipulagsnefnd leggja til að það verði flutt og gert upp á betri stað í gamla bæ Grindavíkur í samráði við Minjastofnun.