Skipulagsnefnd - 58. fundur
- 20.05.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 58
- Ritari: Sigurður Ólafsson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
1. Verbraut 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu sem verður sambyggð núverandi húsi á lóðinni Verbraut 1B sem áður hét Verbraut 3.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu sem verður sambyggð núverandi húsi á lóðinni Verbraut 1B sem áður hét Verbraut 3.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.2. Hjólreiðafélag Reykjavíkur - óskað eftir leyfi til að halda hjólreiðakeppnina Bluelagoon Challenge
Hjólreiðafélag Reykjavíkur óskar eftir leyfi til að halda hjólreiðakeppnina Bluelagoon Challenge þann 8. júní 2019.
Hjólreiðafélag Reykjavíkur óskar eftir leyfi til að halda hjólreiðakeppnina Bluelagoon Challenge þann 8. júní 2019.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leiti.3. Efrahóp 14 - Leyfi vegna starfsemi í heimahúsi
Óskað er eftir því að fá tímabundið leyfi á Efrahópi 14 fyrir vöruþróun og framleiðslu á handverksbjór. Áform eru um að höfuðstöðvar fyrirtækisins; 22.10, muni standa á Hafnargötu 11, en til þess að geta hafið vöruþróun væri óskandi að byrja starfsemi sem fyrst á meðan verið er að græja endanlegt húsnæði. Heilbrigðis-eftirlit Suðurnesja hafa gefið vilyrði fyrir því að veita starfsleyfi í húsnæðinu svo framalega sem að húsnæðið uppfylli þau skilyrði sem Heilbrigðiseftirlitið setur.
Óskað er eftir því að fá tímabundið leyfi á Efrahópi 14 fyrir vöruþróun og framleiðslu á handverksbjór. Áform eru um að höfuðstöðvar fyrirtækisins; 22.10, muni standa á Hafnargötu 11, en til þess að geta hafið vöruþróun væri óskandi að byrja starfsemi sem fyrst á meðan verið er að græja endanlegt húsnæði. Heilbrigðis-eftirlit Suðurnesja hafa gefið vilyrði fyrir því að veita starfsleyfi í húsnæðinu svo framalega sem að húsnæðið uppfylli þau skilyrði sem Heilbrigðiseftirlitið
Skipulagslög og skipulagsreglugerð heimila ekki framleiðslu matvæla innan íbúðarbyggðar, slík starfsemi fellur undir athafna- og/eða iðnaðarsvæði skv. skipulagsreglugerð nr. 90/2013 nema annað sé tekið fram.
Skipulagsnefnd hafnar því erindinu.4. Melhólabraut 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um byggingarleyfi vegna gestastofu fyrir gróðurhúsakynningu inní Gróðurhúsi að Melhólabraut 4.
Umsókn um byggingarleyfi vegna gestastofu fyrir gróðurhúsakynningu inní Gróðurhúsi að Melhólabraut 4.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
Jafnframt samþykkir skipulagsnefnd stöðuleyfi fyrir gám sem stendur við hús samkvæmt teikningu.5. HS Orka - Óveruleg breyting á deiliskipulagi iðnaðar og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi
HS Orka óskar eftir að skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn Grindavíkurbæjar taki fyrir og
samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi.HS Orka óskar eftir að skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn Grindavíkurbæjar taki fyrir og samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Erindið lagt fram til kynningar.6. Eyjabakki Deiliskipulag
Fyrir skipulagsnefnd er sett fram skipulags- og matslýsing fyrir deiliskipulag á iðnaðar- og hafnarsvæði á Hópsnesi í Grindavík. Lýsinging er unnin í samræmi við 1.mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gr. 5.2.2. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Svæðið sem lýsingin nær til er iðnaðarsvæði i3 og svæði undir hafnsækna starfsemi við Eyjabakka.

Tekin fyrir skipulags- og matslýsing, deiliskipulag fyrir Eyjabakka II í Grindavík. Dags. 7.12.2018. Breytingin gerir ráð fyrir nýju deiliskipulagi á eystri hluta hafnarsvæðisins. Gildandi deiliskipulag fyrir Eyjabakka verður fellt úr gildi við gildistöku nýs skipulags. Talið er heppilegra að hafa eitt skipulag fyrir allt svæðið við Eyjabakka. Skipulagsnefnd samþykkir skipulags- og matslýsinguna og vísar erindinu til bæjarstjórnar.7. Hafnargata 11 - Viðbyggin (stækkun) við byggingu sem stendur á lóðinni Hafnargata 11,
Viðbygging/stækkun við byggingu sem stendur á lóðinni Hafnargata 11, gamla hafnarvigarhúsið. Í húsnæðinu er VIGT með höfuðstöðvar sínar, vinnustofu og verslun. Áform eru um að stækka húsnæðið og bæta við starfsemi fyrir-tækisins; 22.10, framleiðsla á handverksbjór ásamt bjórsmökkun.

Skipulagsnefnd samþykkir áformin. Heimilt er að fyrirhuguð starfsemi rýmist innan verslunar- og þjónustureits.8. Hafnargata 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Óskað er eftir byggingarleyfi vegna breytinga á 2 og 3 hæð hússins, ásamt breytingu glugga á 3. hæð og byggingu létts skyggnis yfir aðalinngangi hússins á suð-vesturhlið hússins.
Óskað er eftir byggingarleyfi vegna breytinga á 2. og 3. hæð hússins, ásamt breytingu glugga á 3. hæð og byggingu létts skyggnis yfir aðalinngangi hússins á suð-vesturhlið hússins.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin að undanskyldu skyggni á suð-vesturhlið hússins sem nær út fyrir lóðarmörk og út á gangstétt. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.9. Borgarhraun 3 - Fyrirspurn um nýbyggingu á bílgeymslu
Fyrirspurn um tilfærslu á innkeyrslu og nýbygging á bílgeymslu austan við íbúðarhúsið. Núverandi bílskúr að vestanverðu yrði rifinn. Breyta þyrfti fyrirkomulagi varðandi bílastæði við götu.
Fyrirspurn um tilfærslu á innkeyrslu og nýbygging á bílgeymslu austan við íbúðarhúsið. Núverandi bílskúr að vestanverðu yrði rifinn. Breyta þyrfti fyrirkomulagi varðandi bílastæði við götu.
Skipulagsnefnd óskar eftir grenndarkynningu fyrir eigendum Borgarhrauns 1, 5, 2 og 4, áður en efnisleg afstaða er tekin til málsins.10. Suðurstrandarvegur - Vegstæði og þróun byggðar
Á 1510. fundi bæjarráðs var lagt fra minnisblað bæjarstjóra um vegstæði Suðurstrandarvegar. Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar til frekari umræðu.
Á 1510. fundi bæjarráðs var lagt fra minnisblað bæjarstjóra um vegstæði Suðurstrandarvegar. Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar til frekari umræðu.
Skipulagsnefnd samþykkir að fela sviðsstjóra skipulagssviðs og bæjarstjóra að ræða við Vegagerðina, vegna mögulegrar færslu á fyrirhuguðum Suðurstrandarvegi norðan við bæinn lengra í norður, svo að stærra landssvæði fáist undir byggð.