Skipulagsnefnd - 64. fundur
- 21.10.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 64
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíusson
1. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Tillögur að götuskipulagi í nýju deiliskipulagi norðan Hópsbrautar lagðar fram.
Tillögur að götuskipulagi í nýju deiliskipulagi norðan Hópsbrautar (ÍB10) lagðar fram til kynningar.
Skipulagsnefnd telur vanta vegtengingu milli ÍB10 og ÍB11 ásamt því að stækka þurfi svæðið sem verið er að deiliskipuleggja nær ÍB9. Gera þarf ráð fyrir bílastæðum við hvert hús.
Sviðstjóra falið að vinna málið áfram.2. Skipulagsbreytingar við Víkurhóp
Skipulagsbreytingar við Víkurhóp sem láðist að auglýsa síðasta sumar settar fram á einum breytingaruppdrætti.
Óverulegar deiliskipulagsbreytingar við Víkurhóp sem láðist að auglýsa sumarið 2018 settar fram á einum breytingaruppdrætti.
Skipulagsnefnd samþykktir deiliskipulagsbreytinguna. Grenndarkynning verður unnin í samræmi við 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sviðstjóra falið að vinna málið áfram.3. Efrahóp 6 og 8 - deiliskipulagsbreyting
Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Efrahóp 6 og 8. Drög að breytingaruppdrætti lagður fram. Bíslag fyrir efrahóp 8 var samþykkt í skipulagsnefnd 21.03.2016.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Efrahóp 6 og 8. Drög að breytingaruppdrætti lögð fram.
Skipulagsnefnd heimilar lóðarhafa að fara í óverulega deiliskipulagsbreytingu á sinn kostnað. Sviðstjóra falið að grenndarkynna deiliskiplagsbreytinguna.4. Stamphólsvegur 1 - breyting á deiliskipulagi
Grenndarkynningu á deiliskipulagsbreytingu við Stamphólsveg 1 er lokið. Engar athugasemdir bárust.
Grenndarkynningu á deiliskipulagsbreytingu við Stamphólsveg 1 er lokið. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.5. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Ölfuss 2010-2022
Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir umsögn á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Ölfuss 2010-2022.
Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir umsögn á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Ölfuss 2010-2022.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna þar sem þessi breyting hefur ekkert með lögsögumörk sveitarfélagana að gera.6. Þórkötlustaðir - fyrirspurn um stækkun
Fyrirspun um stækkun á Þórkötlustöðum. Fyrirspurninni fylgir teikning.
Fyrirspun um stækkun á Þórkötlustöðum. Fyrirspurninni fylgir teikning.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið en bendir á verndaráætlun fyrir Þórkötlustaðahverfi. Sviðstjóra falið að óska eftir frekari gögnum og grenndarkynna fyrir íbúum hverfisins.7. Leynisbrún 15 - umsókn um byggingarleyfi
Sótt erum byggingarleyfi vegna framkvæmda við Leynisbrún 15. Umsækjandi vill fá að breyta bílskúr í studio-íbúð ásamt því að setja hurð á vesturhlið, nýtt baðherbergi og eldhúskrókur.
Sótt erum byggingarleyfi vegna framkvæmda við Leynisbrún 15. Umsækjandi vill fá að breyta bílskúr í studio-íbúð ásamt því að setja hurð á vesturhlið, nýtt baðherbergi og eldhúskrókur.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í áformin. Sviðstjóra falið að grenndarkynna áforminn fyrir íbúum Leynisbrúnar 3, 5, 11,13 og 17.8. Ósk um afnot af landi frá skotdeild Grindavíkur
Skotdeild Grindavíkur óskar eftir leyfi fyrir afnotum af landi fyrir útisvæði félagsins þar sem hægt væri að iðka skotæfingar.
Skotdeild Grindavíkur óskar eftir leyfi fyrir afnotum af landi fyrir útisvæði félagsins þar sem hægt væri að iðka skotæfingar.
Sviðstjóra falið að afla upplýsinga um málið (m.a. frá lögreglu) og hvort staðsetning svæðisins sé í lagi.9. Einarsbúð - endurbygging
Þann 21.janúar sl. var sviðstjóri falið að afla nánari gagna varðandi eignarhald á lóð.
Lóðin er ekki til en samkvæmt deiliskipulagi gamla bæjarins þá er gert ráð fyrir að stofnuð verði lóð þarna merkt Víkurbraut 4. Eignarhald lóðar er hjá Grindavíkurbæ.Þann 21.janúar sl. var sviðstjóri falið að afla nánari gagna varðandi eignarhald á lóð. Lóðin er ekki til en samkvæmt deiliskipulagi gamla bæjarins þá er gert ráð fyrir að stofnuð verði lóð þarna merkt Víkurbraut 4. Eignarhald lóðar er hjá Grindavíkurbæ.
Ekki er tekin afstaða til framkvæmdarleyfisins að svo stöddu. Óskað er frekari gagna m.a. um framkvæmdartíma, hönnun og fjármögnun.10. Hundagerði: Svæði innan Grindavíkurbæjar
Mál vegna hundagerðis rædd. Gert er ráð fyri að fara í framkvæmdir vegna þessa á þessu ári á fjárfestingaráætlun. Finna þarf stað og erindinu.
Mál vegna hundagerðis rædd. Lagt hefur verið til að hundagerðið verði staðsett við spennuvirki norðan við Nesveg.
Sviðstjóra falið að vinna málið áfram, m.a. með því að vinna kostnaðaráætlun og ræða við HS veitur um aðkomu að svæðinu.11. Gönguleið um sjávartengdar minjar
Lögð fram hugmynd að gönguleið um sjávartengdar minjar í Grindavík ásamt tillögu Landmótunar um bætt aðgengi gangandi að hafnarsvæðinu.
Lögð fram hugmynd að gönguleið um sjávartengdar minjar í Grindavík ásamt tillögu Landmótunar um bætt aðgengi gangandi að hafnarsvæðinu.