Skipulagsnefnd - 98. fundur
- 21.03.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 98
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Björgvin Björgvinssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Breytingar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar - golfvöllur, stígur og hreinsivirki
Uppfærð tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar - golfvöllu, stígur og hreinsivirki - lögð fram. Senda þarf tillöguna til bæjarstjórnar til samþykktar í endurauglýsingu.
Breytingar á skipulagstillögu (skipulagsuppdrætti og greinagerð), lagðar fram.
Þar sem tillögunni hefur verið breytt í grundavallaratriðum þá skal tillagan auglýst aftur samkvæmt 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin snýr að stækkun íþróttasvæðis fyrir golfvöll, ÍÞ2, svæðið stækkar um 20 ha, er 52 ha samkvæmt gildandi aðalskipulagi og verður 72 ha eftir breytingu.
Skipulagsnefnd samþykkir að aðalskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.2. Breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins við Eyjabakka
Auglýsingartíma deiliskipulagstillögu fyrir iðnaðar- og hafnarsvæðið er lokið. Umsagnir lagðar fram ásamt tillögu að viðbrögðum.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins við Eyjabakka lögð fram í kjölfar auglýsingar á tillögunni. Skipulagstillagan hefur hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillögur að svörum við umsögnum lagðar fram sem skipulagsnefnd samþykkir. Sviðsstjóra falið að svara umsagnaraðilum.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagstillöguna og vísar henni til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.3. Deiliskipulagsbreyting í Laut
Tillaga að deiliskipulagi á óbyggðu svæði við Laut lögð fram.
Tillaga að deiliskipulagi á óbyggðu íbúðasvæði í Laut lagt fram. Tillagan gerir ráð fyrir 7 íbúðareininingum á skipulagssvæðinu, þremur í raðhúsi og fjórum í tveimur parhúsum. Skipulagsnefnd leggur til að skipulagsmörkin verði stækkuð.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.4. Deiliskipulagsbreyting - Svartsengi
Grenndarkynning á deiliskipulagbreytingu í Svartengi lauk þann 17.mars, án athugasemda.
Grenndarkynningu á tillögu að breyttu deiliskipulagi á iðnaðarsvæði og svæði undir verslun og þjónustu í Svartsengi er lokið án athugsemda. Málsmeðferð skipulagstillögu er samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.5. Deiliskipulag Húsatóftir eldisstöð (I6)
Auglýsingartíma deiliskipulagstillögu fyrir i6 er lokið. Umsagnir lagðar fram.
Umsagnir við tillöga að breyttu deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins við Húsatóftir eldisstöð, i6, lagðar fram í kjölfar auglýsingar á tillögunni. Tillagan var auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Umsagnir eru þess eðlis að þær krefjast viðbragða. Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að senda þær umsagnir sem bárust á framkvæmdaraðila (Matorku) sem vann skipulagsstillöguna.6. Umsókn um byggingarleyfi - Staðarhraun 1
Grenndarkynningu vegna byggingarleyfisumsóknar við Staðarhraun 1 lauk 17.mars án athugasemda.
Grenndarkynningu á byggingarleyfisumsókn frá Árna Páli Jónssyni vegna Staðarhrauns 1 er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.7. Umsókn um byggingarleyfi - Mánagata 19
Grenndarkynningu vegna byggingarleyfisumsóknar við Mánagötu 9 lauk 17.mars 2022, án athugasemda.
Grenndarkynningu á byggingarleyfisumsókn frá Ágústu Halldóru Gísladóttir vegna Mánagötu 19 er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.8. Umsókn um byggingarleyfi - Leynisbrún 4
Grenndarkynningu vegna byggingarleyfisumóknar við Leynisbrún4 lauk 17.mars, án athugasemda.
Guðmundur Pálsson vék af fundi við afgreiðslu og umfjöllun málsins.
Grenndarkynningu á byggingarleyfisumsókn frá Lárusi Guðmundssyni vegna Leynisbrúnar 4 er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.9. Umsókn um gististað - Víkurbraut 22
Grenndarkynningulauk vegna umsóknar um gististað á 1.hæð Víkurbrautar 22 lauk 17.mars. Ein athugasemd barst.
Grenndarkynningu vegna umsóknar um gististað fyrir Víkurbraut 22 er lokið. Ein athugasemd barst og er sviðsstjóra falið að svara athugasemdinni.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti en vegna athugasemdar er farið fram á að umsækjandi hafi bílastæðin tilbúin samkvæmt teikningu áður en að útleigu kemur. Þá er umsækjanda bent á að breyta þarf eignaskiptasamning vegna þessa. Erindinu er vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.10. Umsókn um stækkun lóðar fyrir Hafnargötu 4.
Grenndarkynningu vegna beiðni um stækkun á lóð er lokið, án athugasemda.
Grenndarkynningu vegna umsóknar Kára Guðmundssonar um stækkun á lóðinni fyrir Hafnargötu 4 er lokið án athugasemdar.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagsnefnd bendir umsækjanda á að breyta þarf eignaskiptasamningi vegna þessa.11. Reglur og samþykktir skipulags- og umhverfissviðs
Sviðsstjóri óskar eftir almennri umfjöllun um nokkur atriði í þeim samþykktum og reglum sem sviðið vinnur eftir, t.d.:
- Umsóknarfrestur byggingarleyfis í kjölfar úthlutun lóða.
- Úthlutnari skipulagsnefnar á lóðum fjölbýlishúsa.
- Stefnt er að því að leggja niður umhverfis- og ferðamálanefnd. Umhverfishluti þeirrar nefndar kemur til Skipulagsnefndar.
- Greiðsluskilmála gatnagerðargjalda.
- Ef til vill fleiri atriði sem þaf að ræða.Rætt um reglur um lóðarúthlutanir og samþykkt um gatnagerðargjöld.
12. Ufsasund 2 - Umsókn um lóð
Heimreið ehf. sækir um lóðina Ufsasund 2.
Heimreið ehf. sækir um lóðina Ufsasund 2 til byggingar iðnaðarhúss.
Samþykkt.
Úthlutun vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.13. Ufsasund 4 - Umsókn um lóð
Heimreið ehf. sækir um lóðina Ufsasund 4.
Heimreið ehf. sækir um lóðina Ufsasund 4 til byggingar iðnaðarhúss.
Samþykkt.
Úthlutun vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.14. Ufsasund 6 - Umsókn um lóð
Fasteignafélag Keflavíkur ehf. sækir um lóðina Ufsasund 6.
Fasteignafélag Keflavíkur ehf. sækir um lóðina Ufsasund 6 til byggingar iðnaðarhúss.
Samþykkt.
Úthlutun vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.15. Ufsasund 8 - Umsókn um lóð
Fasteignafélag Keflavíkur ehf. sækir um lóðina Ufsasund 8.
Fasteignafélag Keflavíkur ehf. sækir um lóðina Ufsasund 8 til byggingar iðnaðarhúss.
Samþykkt.
Úthlutun vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.16. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 58
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingarmála nr. 58 lög fram.
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingarmála nr. 58 lög fram.