Skipulagsnefnd - 89. fundur
- 26.08.2021
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 89
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Björgvin Björgvinssonvaramaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Breytingar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar - aðgengi og þjónusta vegna Eldsumbrota við Fagradalfjall
Aðalskipulagsbreyting vegna stíga og gönguleiða vegna eldsumbrota við Fagradalsfjall, landtöku ljósleiðara í Hraunsvík, göngu- og hjólastígs með Nesveg vestan við Grindavík og hreinsvirkis lögð fram. Gögnin eru lögð fram sem þrjár breytingar en verða sameinaðar í eina fyrir auglýsingu á tillögunni.
Anna Bragadóttir og Ásgeir Jónsson frá verkfræðistofunni Eflu sátu fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
Tillaga að aðalskipulagsbreytingu vegna stíga og vega vegna eldsumbrota við Fagradalsfjall, landtöku ljósleiðara í Hraunsvík, göngu- og hjólastígs með Nesveg vestan við Grindavík og hreinsvirkis við Eyjabakka lögð fram til umfjöllunar. Kynning og samráð um skipulagslýsingu aðalskipulagsbreytingarinnar fór fram á tímabilinu 1.júní til 21.júní 2021 í samræmi við 1. mgr.30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir að gera eftirfarandi breytingar á aðalskipulagstillögunni áður en tillagan verður kynnt í samræmi við 2.mgr. 30 gr. skipulagslaga nr.123/2010:
- Sú tillaga sem snýr að aðalskipulagsbreytingu vegna göngu- og hjólastígs við Nesveg og Hreinsivirkis við Eyjabakka verða teknar út úr þessari aðalskipulagsbreytingu og unnar með aðalskipulagsbreytingu við golfvöll.
Skipulagsnefnd samþykkir að aðalskipulagstillagan, með áorðunum breytingum, verði kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.2. Breytingar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar við Golfvöll - lýsing verkefnis
Skipulagslýsing á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar lögð fram, sbr. 1.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin varðar stækkun á íþróttasvæði við golfvöll.
Skipulagslýsing á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar lögð fram, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin varðar stækkun á íþróttasvæði við golfvöll, svæði skilgreint sem ÍÞ2 á aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagslýsinguna og að um hana verði haft samráð og hún kynnt í samræmi við 1. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.3. Deiliskipulagsbreyting - Orkuvinnslusvæði á Reykjanesi
Vinnslutillaga deiliskipulagsbreytingar fyrir orkuvinnslusvæðið á Reykjanesi var kynnt umsagnaraðilum í sumar. Umsagnir þeirra og tillögur að viðbrögðum lögð fram til umræðu og umfjöllunar.
Vinnslutillaga deiliskipulagsbreytingar fyrir orkuvinnslusvæðið á Reykjanesi var kynnt umsagnaraðilum í sumar. Umsagnir þeirra og tillögur að viðbrögðum lögð fram til umræðu og umfjöllunar.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.4. Efahóp 25: Fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu
Fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu við Efrahóp 25 lögð fram.
Fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu við Efrahóp 25 lögð fram. Fyrirspurn varða það að fá að breyta nýtingu lóðarinnar þannig að heimild fáist til að byggja parhús á einni hæð í stað einbýlishús á tveimur hæðum.
Skipulagsnefnd hafnar erindinu.5. Deiliskipulagsbreyting í Laut
Nokkrar tillögur að skipulagi íbúabyggðar á óbyggðu svæði við Laut lögð fram til umræðu.
Nokkrar tillögur að skipulagi íbúabyggðar á óbyggðu svæði við Laut lagðar fram til umræðu.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.6. Hópsvegur 1 - breyting á deiliskipulagi
Tillaga að breytingu deiliskipulags við Hópsveg 1 lögð fram til umfjöllunar.
Tillaga að breytingu deiliskipulags við Hópsveg 1 lögð fram til umfjöllunar.
Málinu er frestað.7. Útivistarstígar í landi Hrauns- krafa um bætur
Kröfubréf sem barst frá Lex lögmannsstofu f.h. landeigendafélagsins við Hraun til Grindavíkurbæjar lagt fram til kynningar ásamt bréfi sem sent var Fjórhjólaævintýri.
Kröfubréf sem barst frá Lex lögmannsstofu f.h. landeigendafélagsins við Hraun til Grindavíkurbæjar lagt fram til kynningar.
8. Brautarholt - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynningu er lokið án athugasemda vegna umsóknar um breytta notkun fyrir Brautarholt í Þórkötlustaðarhverfi. Samþykki landeiganda liggur fyrir.
Grenndarkynningu er lokið án athugasemda vegna umsóknar um breytta notkun fyrir Brautarholt í Þórkötlustaðarhverfi. Samþykki landeiganda liggur fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkir umsókn um breytta notkun fyrir Brautarholt í Þórkötlustaðahverfi. Skráningu verður breytt af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Björgvin Björgvinsson yfirgaf fundinn eftir þennan dagskrárlið.9. Leynisbrún 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi við Leynisbrún 18. Sótt er um að bæta við glugga á vesturhlið og skráning á kjallara leiðrétt.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir Leynisbrún 18. Sótt er um að bæta við glugga á vesturhlið og skráning á kjallara leiðrétt.
Lóðin er á ódeiliskipulögðu svæði. Samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gr. 5.9.12 skipulagsreglugerðar skal fara fram grenndarkynning á byggingaráformunum á ódeiliskipulögðum svæðum.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að grenndarkynna byggingaráformin fyrir lóðarhafa við Leynisbrún 17.10. Ósk um framkvæmdaleyfi vegna reiðvegs
Hestamannafélagið Brimfaxi óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir reiðvegi norðan hesthúsabyggðar. Reiðleiðin er skilgreint á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar. Samþykki landeiganda liggur fyrir.
Hestamannafélagið Brimfaxi óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir 600 metra löngum reiðvegi. Vegurinn liggur frá núverandi reiðvegi á gamla sauðfjárgirðingarstæðinu norðan megin frá austur að landamerkjum Þórkötlustaða og Hrauns.
Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag og telst ekki til meiriháttar framkvæmda í skilningi reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Framkvæmdin fellur í flokk C í 1. viðauka 1. mgr. 6. gr. laga nr. 106/200 um mat á umhverfisáhrifum og er þar af leiðandi ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulagsnefnd heimilar skipulagsfulltrúa í samræmi við 55. gr. bæjarmálasamþykktar, að gefa út framkvæmdaleyfi að uppfylltum öllum skilyrðum laga og reglna.