Skipulagsnefnd - 81. fundur
- 15.12.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 17:35
- Gjánni
- Fundur nr. 81
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Deiliskipulag - Hlíðarhverfi
Uppfærð gögn vegna ábendinga Skipulagsstofnunnar um sérafnotarétt íbúða á jarðhæð í fjölbýli og umfjöllun um áfangaskiptingu uppbyggingar hverfis lögð fram.
Þá hafa eftirfarandi breytingar/viðbætur verið gerðar á gögnum:
- Lóðarnöfn sett á uppdrátt og í skilmálatöflu.
- Skilmálum og lóð fyrir spennistöð HS veitna bætt við á skipulagsuppdrátt og í greinagerð.
- Smávægilegar breytingar gerðar á lóðum á skipulagsuppdrætti og í skilmálatöflu vegna breytinga á miðlínu gatna.
Breytingar og viðbætur eru minniháttar og ekki þörf á að auglýsa tillögu aftur.Uppfærð gögn deilisskipulags við Hlíðarhverfi vegna ábendinga Skipulagsstofnunnar um sérafnotarétt íbúða á jarðhæð í fjölbýli og umfjöllun um áfangaskiptingu uppbyggingar hverfis lögð fram.
Þá hafa eftirfarandi breytingar/viðbætur verið gerðar á gögnum:
- Lóðarnöfn sett á uppdrátt og í skilmálatöflu. Lóðanöfnum breytt á þremur götum frá skipulagsnefndar fundi þann 30.nóvember sl., Brekkuhlíð verður Brattahlíð, Hrafnshlíð verður Hrafnahlíð og Blikahlíð verður Fálkahlíð.
- Skilmálum og lóð fyrir spennistöð HS veitna bætt við á skipulagsuppdrátt og í greinagerð.
- Smávægilegar breytingar gerðar á lóðum á skipulagsuppdrætti og í skilmálatöflu vegna breytinga á miðlínu gatna.
Breytingar og viðbætur eru minniháttar og ekki þörf á að auglýsa tillöguna aftur.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna fyrir Hlíðarhverfi með þeim minniháttar breytingum sem hafa orðið á henni og fjallað er um í bókun þessari. Tillöguni er vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.2. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Tillaga að breytingu að deiliskipulagi við Víðihlíð lögð fram til samþykktar fyrir auglýsingu.
Breytingauppdráttur ásamt greinagerð mun berast inn í gáttina eigi síðar en laugardaginn 12.desember.Tillaga að breytingu á deiliskipulaginu við Víðihlíð lögð fram til samþykktar fyrir auglýsingu. Málsmeðferð á deiliskipulagsbreytingunni verður í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa og kynna framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.3. Deiliskipulagsbreyting - Orkuvinnslusvæði á Reykjanesi
Skipulagslýsing vegna deiliskipulagsbreytingar á orkuvinnslusvæði á Reykjanesi lögð fram til samþykktar til auglýsingar og umsagna.
Skipulagslýsing vegna deiliskipulagsbreytingar á orkuvinnslusvæði á Reykjanesi lögð fram.
Málsmeðferð verður í samræmi við 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagslýsinguna og að um hana verði leitað umsagna hjá umsagnaraðilum og kynnt almenningi. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar.4. Suðurnesjalína 2 - umsókn um framkvæmdaleyfi
Landsnet sækir um framkvæmdaleyfi fyrir 220 kV Suðurnesjalínu 2.
Landsnet sækir um framkvæmdarleyfi fyrir því að byggja 220 kV raflínu, Suðurnesjalínu 2, milli Hamraness í Hafnarfirði og Rauðamels í Grindavík. Sótt er um framkvæmdaleyfi á grundvelli 13. og 14. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdaleyfi, nr. 772/2012. Suðurnesjalína 2, alls um 33,9 km og er hluti hennar innan Grindavíkur 0,79 km. Miðað er við að hefja framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 árið 2021 og að spennusetning línunnar verði í lok árs 2022.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdarleyfið og vísar afgreiðslunni til bæjarstjórnar.5. Tillaga að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 - ósk um umsögn
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn um tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 sem auglýst er til kynningar ásamt umhverfismati í samræmi við lög nr. 123/2010 og 105/2006 og reglugerð nr. 1001/2011. Í tillögunni er sett fram stefna um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu í tengslum við framkvæmd skipulagsmála og tekur hún eftir atvikum til allra viðfangsefna gildandi landsskipulagsstefnu. Auk þess felur tillagan í sér breytingar á gildandi landsskipulagsstefnu varðandi skipulag haf- og strandsvæða m.t.t. laga nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða.

Lagt fram.6. Baðsvellir 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi vegna framkvæmda við Baðsvelli 7 hefur farið fram án athugasemda.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar að stærð 11,4 m2 við Baðsvelli 7 hefur farið fram án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.7. Sólbakki - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynning vegna byggingaráforma, köld geymsla á lóð, við Sólbakka hefur farið fram án athugasemda. Ásamt því að umsögn Minjastofnunar liggur fyrir án athugasemda.
Grenndarkynning vegna byggingaráforma, köld geymsla á lóð, við Sólbakka hefur farið fram án athugasemda. Ásamt því að umsögn Minjastofnunar liggur fyrir án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin með 4 atkvæðum og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Gunnar Már situr hjá.
Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
8. Víkurhóp 59 - Umsókn um lóð
Eignarhaldsfélagið Normi ehf. sækir um lóðina Víkurhóp 59.
Eignarhaldsfélagið Normi ehf. sækir um lóðina Víkurhóp 59.
Skipulagsnefnd samþykkir að úthluta Eignarhaldsfélaginu Norma lóðinni Víkurhóp 59 að uppfylltum skilyrðum í gr. 3.2 í lóðarúthlutunarreglum Grindavíkurbæjar. Úthlutun lóðar er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.