Skipulagsnefnd - 87. fundur
- 31.05.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 19:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 87
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Atli Geir Júlíusson
1. Umferðaröryggismál í Grindavík
Ólafur Kr. Guðmundsson mun mæta á fundinn undir dagskrárliðnum ásamt þremur umferðaröryggisfulltrúum sem tilnefndir voru til verkefnisins í fyrra.
Farið verður yfir umferðaröryggismál í Grindavík. Drög að stefnu lögð fram og farið yfir ábendingar íbúa um aðgeðir til ákvörðunar um hvaða framkvæmdir verða settar í gang á árinu 2021.
Gögn koma undir dagskrárliðinn laugardaginn 29.maí 2021.Ólafur Kr. Guðmundsson kynnti niðurstöðu úttektar á umferðaröryggismálum í Grindavík. Fundinn sátu Bergsteinn Ólafsson, Eydís Ármannsdóttir, Fannar Jónasson og Vilhjálmur Árnason.
Drög að umferðaröryggisáætlun og aðgerðaráætlun lögð fram.
Ólafur Már Guðmundsson vék af fundi kl. 18:30 undir dagskrárliðnum.2. Deiliskipulagsbreyting - Orkuvinnslusvæði á Reykjanesi
Greinagerð og skipulagsuppdráttur deiliskipulagsbreytingar á Reyjanesi lögð fram til samþykktar fyrir auglýsingu í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Greinagerð og skipulagsuppdráttur deiliskipulagsbreytingar á Reyjanesi lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir að deiliskipulagstillagan verði send í auglýsingu í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.