Skipulagsnefnd - 88. fundur
- 21.06.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 19:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 88
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Björgvin Björgvinssonvaramaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem síðasta mál.
-Umsókn um hesthúsalóð - Hópsheiði 11 og 13 - 2106117
Samþykkt samhljóða.
1. Umsókn um stækkun lóðar Hópsvegi 1 Grindavík.
Sótt er um stækkun lóðar við Hópsveg 1. Fulltrúar 240 ehf. munu mæta til fundarins undir dagskrárliðnum til að kynna verkefnið.
Sótt er um stækkun lóðar við Hópsveg 1. Fulltrúar 240 ehf. sátu fundinn undir dagskrárliðnum til að kynna verkefnið.
Áformin eru í samræmi við aðalskipulag Grindvíkurbæjar 2018-2032.
Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að vinna deiliskipulagsbreytingu fyrir svæðið, þ.e. VÞ7 á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar. Skipulagsbreytinguna skal vinna í samræmi við 2.mgr. 43 gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi:
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.2. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð var auglýst í samræmi við skipulagslög á tímabilinu 6.maí til og með 17.júní 2021. Umsagnir lagðar fram til umfjöllunar.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð var auglýst í samræmi við skipulagslög á tímabilinu 6.maí til og með 17.júní 2021. Umsagnir lagðar fram til umfjöllunar. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Minjastofnun Íslands og HS veitum.
Þær viðbætur/breytingar sem eru gerðar við greinagerð og deiliskipulagsuppdráttinn eftir auglýsingartíma deiliskipulagstillögunar lauk eru eftirfarandi.
- Tengibygging á milli Víðihlíðar og félagsheimilisins má vera 2.hæðir.
- Hámarkshæð félagsheimilis er breytt úr 7 m í 9 m frá botnplötu.
- Heimilt verður að byggja tæknirými m.a. fyrir loftræstisamstæðu ofan eða undir félagsheimili.
Sviðsstjóra er falið að svara umsagnaraðilum.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi fyryr Víðihlíð með þeirri breytingum sem gerðar eru á henni eftir auglýsingu. Tillögunni er vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.3. Hverfisskipulag Stíga- og Vallahverfis í Grindavík
Greinagerð og uppdráttur hverfisskipulags fyrir Stíga- og Vallahverfið lagt fram til umræðu.
Greinagerð og uppdráttur hverfisskipulags fyrir Stíga- og Vallahverfið lagt fram.
4. Deiliskipulagsbreyting í Laut
Hugmyndir um deiliskipulagsbreytingu í Laut til umræðu. Engin fylgiskjöl fylgja dagskárlið.
Breytingar á deiliskipulagi í Laut ræddar. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram og minnka byggingarmagn á óbyggðum lóðum innan deiliskipulagssvæðisins.
5. Breytingar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar - lýsing verkefnis
Umsagnir við skipulagslýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar lagðar fram til umfjöllunar.
Umsagnir við skipulagslýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar lagðar fram til umfjöllunar.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.6. Bakkalág 21 - Umsókn um byggingarleyfi
Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir stækkun Bakkalág 21A og 21B. Stækkunin er fyrir fiskvinnslusal og er hún við matshluta 1, umfang stækkunar er 486 m2.
Staðarþurrrkun ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir stækkun Bakkalág 21A og 21B. Stækkunin er fyrir fiskvinnslusal og er hún við matshluta 1, umfang stækkunar er 486 m2.
Byggingaráformin eru í samræmi við deiliskipulag.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.7. Hafnargata 9a - Umsókn um byggingarleyfi
Grindin ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á Hafnargötu 9a, þar sem grindin er með innréttingarframleiðslu.
Grindin ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á Hafnargötu 9a, þar sem fyrirtækið er með innréttingarframleiðslu.
Byggingaráformin eru í samræmi við deiliskiuplag.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.8. Hafnargata 4-6 - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynningu vegna byggingarleyfisumsóknar við Hafnargötu 4 og 6 er lokið á án athugasemda.
Grenndarkynningu vegna byggingarleyfisumsóknar við Hafnargötu 4 og 6 er lokið á án athugasemda.
Byggingaráformin eru í samræmi við deiliskipulag.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.9. Ægisgata 2a - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt eru byggingarleyfi til að setja upp kaffistofu á 1.hæð og skrifstofur fyrir ofan í 2 geymslubilum að Ægisgötu 2a. Gluggum er bætt við byggingu.
PVC sækkir um byggingarleyfi til að setja upp kaffistofu á 1.hæð og skrifstofur fyrir ofan í 2 geymslubilum að Ægisgötu 2a. Gluggum er bætt við byggingu.
Byggingaráformin eru í samræmi við deiliskipulag.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.10. Fyrirspurn vegna lóða í Efrahópi
Óskað er eftir að fá að byggja fjöbýlishús eða tvíbýli við Efrahóp.
Óskað er eftir að fá að byggja fjöbýlishús eða tvíbýli við Efrahóp.
Skipulagsnefnd er andvíg tillögu að gerð fjölbýlishúss við Efrahóp en er til í að skoða betur hugmynd af tvíbýli.11. Fyrirspurn um stækkun og sameiningu lóða við Hafnargötu 29 og 31.
Ósk um umsögn vegna fyrirspurnar um lóðarstækkun og breytingar á deiliskipulagi lóðanna Hafnargata 29 og 31.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið um lóðarstækkun og heimilar fyrirspyrjanda að vinna deiliskipulagsbreytingu á sinn kostnað.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi:
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.12. Austurvegur 49 - umsókn um gististað
Grenndarkynningu vegna umsóknar um gististað fyrir Austurveg 49 er lokið án athugaemda.
Grenndarkynningu vegna umsóknar um gististað fyrir Austurveg 49 er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið.
Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.13. Umferðaröryggismál í Grindavík
Tillaga að stefnu Grindavíkurbæjar í umferðaröryggismálum lögð fram ásamt aðgerðaráætlun fyrir árið 2021.
Tillaga að stefnu Grindavíkurbæjar í umferðaröryggismálum lögð fram ásamt aðgerðaráætlun fyrir árið 2021.
Skipulagsnefndar sendir drög að umferðaröryggisstefnu Grindavíkurbæjar til umsagnar fastanefnda Grindavíkurbæjar. Aðgerðaráætlun lögð fram.14. Umsókn um hesthúsalóð - Hópsheiði 11 og 13
Sótt er um lóðirnar Hópsheiði 11 og 13 í hesthúsahverfinu í Grindvík. Jafnfram er óskað eftir að vinna deiliskipulagsbreytingu á lóðinni, þ.e. að færa byggingareiti lóða fram um 5 metra.
Sótt er um lóðirnar Hópsheiði 11 og 13 í hesthúsahverfinu í Grindvík. Jafnfram er óskað eftir að vinna deiliskipulagsbreytingu á lóðinni, þ.e. að færa byggingareiti lóða fram um 5 metra.
Skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðunum Hópsheiði 11 og 13 til Jóhanns Þórs Ólafssonar. Þá er umsækjanda heimilað að vinna deiliskipulagsbreytingu þar sem byggingarreitir á lóðunum eru færðir fram um 5 metra. Deiliskipulagsbreytinguna skal vinna í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi:
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.