Skipulagsnefnd - 119. fundur
- 03.05.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 119
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 7. mál: Fyrirspurn - Spóahlíð 12-20 - 2305002
Samþykkt samhljóða.
1. Seljabót 1-3 - umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Grenndarkynningu vegna umsóknar um deiliskipulagsbreytingu fyrir Seljabót 1-3 er lokið án athugasemda.
Tekin er fyrir tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Seljabót 1-3. Grenndarkynningu er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.
Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagfulltrúa er falið að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.2. Spóahlíð 5 og 9 - umsókn um skipulagsbreytingu
Grenndarkynningu vegna umsóknar um deiliskipulagsbreytingu fyrir Spóahlíoð 5 og 9 er lokið án athugasemda.
Tekin er fyrir tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóahlíð 5 og 9. Grenndarkynningu er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.
Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagfulltrúa er falið að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.3. Deiliskipulag iðnaðarsvæðis í Svartsengi
Skipulagsfulltrúi óskar eftir umræðu um deiliskipulagsmál í Svartsengi. Til umræðu er hvort ekki sé komin tími til að hreinsa upp þær breytingar sem hafa verið gerðar ásamt því að skilgreina nýjar lóðir á svæðinu í samráði við HS orku.
Engin gögn fylgja dagskrárliðnum en hægt er að skoða gildandi deiliskipulag og þær breytingar sem hafa verið gerðar á vefsjá skipulagsstofnunar.Skipulagsfulltrúa falið að ræða við HS orku um deiliskipulag iðnaðarsvæðisins í Svartsengi.
4. Hafnargata 26 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Eldhamar sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á Hafnargötu 26. Sótt er um að byggja við eldra hús til austurs, einnig 2 hæðir, þar sem hótelið er stækkað og bætt við 12 hótelherbergjum ásamt rýmum sem tengjast þeirri starfsemi. Nýbygging er byggð upp á sama hátt og eldra hús þar sem 1. hæð er steypsteypt og 2. hæð er léttbyggt timburhús. Stærð nýbyggingar samkvæmt umsókn er 898,2 fermetrar.
Eldhamar sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á Hafnargötu 26. Sótt er um að byggja við eldra hús til austurs, einnig 2 hæðir, þar sem hótelið er stækkað og bætt við 12 hótelherbergjum ásamt rýmum sem tengjast þeirri starfsemi. Nýbygging er byggð upp á sama hátt og eldra hús þar sem 1. hæð er steypt og 2. hæð er léttbyggt timburhús. Stærð nýbyggingar samkvæmt umsókn er 898,2 fermetrar.
Skipulagsnefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag.
Þar sem byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu þá er um fullnaðarafgreiðslu skipulagsnefndar að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.5. Borgarhraun 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Grenndarkynningu vegna byggingarleyfisumsóknar við Borgarhraun er lokið. Ein athugasemd barst.
Grenndarkynningu vegna byggingarleyfisumsóknar við Borgarhraun er lokið. Ein athugasemd barst.
Skipulagsnefnd frestar erindinu og felur byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa að ganga úr skugga um hvort Borgarhraun 1 sé í raun einbýli eða fjölbýli.6. Seljabót 2a - Umsókn um byggingarleyfi
Grindavíkurbær sækir um byggingarleyfi fyrir dælustöð á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar við Seljabót 2a. Birt flatarmál stöðvarinnar er 50,1 m2. Einnig er sótt um leyfi fyrir aðliggjandi lögnum í götu sem tengjast dælustöðinni.
Grindavíkurbær sækir um byggingarleyfi fyrir dælustöð á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar við Seljabót 2a. Birt flatarmál stöðvarinnar er 50,1 m2. Einnig er sótt um leyfi fyrir aðliggjandi lögnum í götu sem tengjast dælustöðinni.
Skipulagsnefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag.
Þar sem byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu þá er um fullnaðarafgreiðslu skipulagsnefndar að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.7. Fyrirspurn - Spóahlíð 12-20
Fyrispurn frá lóðarhafa við Spóahlið 12-20 um að lóðir fari úr 9 m á breidd í 7 m á breidd ásamt því að óskað er eftir því að lóðum fjölgi úr fimm í sex.
Fyrirspurn frá lóðarhafa við Spóahlið 12-20 um að lóðir fari úr 9 m á breidd í 7 m á breidd ásamt því að óskað er eftir því að lóðum fjölgi úr fimm í sex.
Skipulagsnefnd hafnar fyrirspurninni. Nefndin vill ekki breytta því skipulagi sem er í gildi fyrir raðhúsalóðina, þ.e. 5 íbúðir og að breidd bygginarreita sé 9 m.8. Fundargerðir 2023 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 36. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja þann 30. mars 2023 lögð fram til kynningar.
Fundargerð 36. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja þann 30. mars 2023 lögð fram til kynningar.
9. Sorpflokkun við heimili - Borgað þegar hent er, innleiðing
Innleiðing á breyttu tunnukerfi og flokkun heimilissorps er á næsta leiti. Ýmis gögn lögð fram til umræðu. Fyrirhugað er að halda íbúafund í annarri viku maí.
Farið yfir innleiðing á breyttu tunnukerfi og flokkun heimilissorps. Íbúafundur verður haldinn fimmtudaginn 11. maí kl. 17:30 í Gjánni.
Fyrirhugað er að deila út tvískiptri tunnu á hvert heimili nú í lok maí eða byrjun júní ásamt því að merkja þær tunnur sem fyrir eru. Skipulagsnefnd tekur vel í aukna sorpflokkun.10. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 71
Fundargerð 71. fundar afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmál þann 19. apríl 2023 lögð fram til kynningar.
Fundargerð 71. fundar afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmál þann 19. apríl 2023 lögð fram til kynningar.