Skipulagsnefnd - 32. fundur
- 18.09.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 32
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Örn Sigurðssonvaramaður
- Anton Kristinn Guðmundssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Staður: Fyrirspurn um smáhýsi
Forsvarsmenn arkitekta Laugavegi 164 ehf. mættu á fundinn og kynntu áætlanir sínar með smáhýsi á Stað, vestan Grindavíkur.
Forsvarsmenn arkitekta GlámaKím mættu á fundinn og kynntu áætlanir sínar með smáhýsi á Stað, vestan Grindavíkur. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila GlámaKím að hefja skipulag á svæðinu skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd bendir á að Grindavíkurbær er ekki landeigandi og þarf vinnan að vera í samráði við hann.
2. Deiliskipulag Víkurhóp: Breyting.
Erindi frá Grindinni kt. 610192-2389. Í erindinu er óskað eftir að fá að vinna breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Tillagan tekur til Víkurhóps 30 og 32. Breytingarnar eru þær að byggingarreitir verði sameinaðir og færðir norður ásamt stækkun á lóð. Erindinu fylgja gögn unnin af JEES arkitektum dagsett 24.8.2017.
Erindi frá Grindinni kt. 610192-2389. Í erindinu er óskað eftir að fá að vinna breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Tillagan tekur til Víkurhóps 30 og 32. Breytingarnar eru þær að byggingarreitir verði sameinaðir og færðir norður ásamt stækkun á lóð. Erindinu fylgja gögn unnin af JEES arkitektum dagsett 24.8.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila Grindinni að hefja breytingu á skipulagi á svæðinu skv.2 mgr. 38 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3. Vindmælingar: Vindorka í landi Staðar
Erindi frá HS Orku kt. 680475-0169 í erindinu er óskað er eftir heimild til að reisa allt að 80 metra hátt mastur til að styðja við frekari vindorkurannsóknir á svæðinu í landi Staðar.
Erindi frá HS Orku kt. 680475-0169 í erindinu er óskað er eftir heimild til að reisa allt að 80 metra hátt mastur til að styðja við frekari vindorkurannsóknir á svæðinu í landi Staðar. Skipulagsnefnd bendir á að ekki er búið að marka stefnu um vindmyllur í Grindavík. Unnið er að stefnumörkuninni í yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags. Erindinu er hafnað.
4. Skilti í Grindavíkurbæ: Reglugerð
Drög að reglugerð um skilti fyrir Grindavík ásamt verkteikningum af nýrri skiltaborg við innkomuna í þéttbýlið í Grindavík um Grindavíkurveg.
Drög að reglugerð um skilti fyrir Grindavík ásamt verkteikningum af nýrri skiltaborg við innkomuna í þéttbýlið í Grindavík um Grindavíkurveg. Skipulagsnefnd vísar málinu til umhverfis- og ferðamálanefndar.
5. Lóðaleigusamningar : Eftirfylgni
Hefðbundinn lóðaleigusamningur tekinn fyrir. Spurning hvort við viljum skerpa á kröfum um frágang eða tímasetningum áður en unnir verða lóðaleigusamningar fyrir Víkurhóp m.v. reynsluna að undanförnu. Stefnt er að úthlutun lóða febrúar/mars 2018
Málinu frestað.
6. Ægisgata 3: Breytt notkun á matshluta
Erindi frá Ólafi Baldri Bjarnasyni og Hirti Pálssyni. Í Erindinu er óskað eftir því að breyta hluta af Ægisgötu 3 í íþróttasal. Hafnarstjórn hefur tekið málið fyrir og gerir ekki athugasemdir.
Erindi frá Ólafi Baldri Bjarnasyni og Hirti Pálssyni. Í Erindinu er óskað eftir því að breyta hluta af Ægisgötu 3 í íþróttasal. Hafnarstjórn hefur tekið málið fyrir og gerir ekki athugasemdir. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.
7. Deiliskipulag: Húsatóftir eldisstöð.
Tekið fyrir deiliskipulag Fiskeldis á Húsatóftum á uppdrætti með Greinargerð dagsett 24.10.2017 unnið af Tækniþjónustu SÁ . Á lóðinni sem deiliskipulagið nær til hefur verið stafrækt fiskeldisstöð um árabil sbr.$line$aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2010-2030. Fiskeldið í Húsatóftum er eigu Matorku en landeigandi er ríkissjóður Íslands. Langtímaleigusamningur er um lóðina milli ríkissjóðs og Matorku. Næsta nágrenni norðan við Nesveg, á svæði i5 í aðalskipulagi, verður Matorka með samskonar starfsemi.$line$Á uppdrætti eru byggingarreitir skilgreindur. Núverandi byggingar eru innan byggingarreits.$line$Nýir byggingarreitir eru skilgreindir fyrir mögulega stækkun á fiskeldi og uppbyggingu á$line$tengdri starfsemi$line$
Tekið fyrir deiliskipulag Fiskeldis á Húsatóftum á uppdrætti með Greinargerð dagsett 24.10.2017 unnið af Tækniþjónustu SÁ . Á lóðinni sem deiliskipulagið nær til hefur verið stafrækt fiskeldisstöð um árabil sbr. aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2010-2030. Fiskeldið í Húsatóftum er eigu Matorku en landeigandi er ríkissjóður Íslands. Langtímaleigusamningur er um lóðina milli ríkissjóðs og Matorku. Næsta nágrenni norðan við Nesveg, á svæði i5 í aðalskipulagi, verður Matorka með samskonar starfsemi.
Á uppdrætti eru byggingarreitir skilgreindur. Núverandi byggingar eru innan byggingarreits.
Nýir byggingarreitir eru skilgreindir fyrir mögulega stækkun á fiskeldi og uppbyggingu á
tengdri starfsemi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skipulagsfulltrúa falið að auglýsa tillöguna og leita umsagna.8. Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
Vísað til skipulagsnefndar
Tillaga: Málinu frestað samþykkt með 3. atkvæðum. Fulltrúar S og B lista sitja hjá.
9. Skipulagsnefnd: Samþykkt
Vísað til skipulagsnefndar
Tillaga: Málinu frestað samþykkt með 3. atkvæðum. Fulltrúar S og B lista sitja hjá.
10. Breyting á aðalskipulagi: Miðbær
Tekið fyrir að beiðni formanns
Tekin fyrir tillaga formanns um að skipulagssvæðið verði minnkað. Sviðsstjóra er falið að leggja fram tillögu að skiptingu svæðisins í samræmi við umræður á fundinum. Samþykkt með þremur atkvæðum gegn einu atkvæði fulltrúa S lista, fulltrúi B lista situr hjá.
11. Deiliskipulag miðbæjarkjarna Grindavíkur.
Tekið fyrir að beiðni formanns
Tekin fyrir tillaga formanns um að skipulagssvæðið verði minnkað. Sviðsstjóra er falið að leggja fram tillögu að skiptingu svæðisins í samræmi við umræður á fundinum. Samþykkt með þremur atkvæðum gegn einu atkvæði fulltrúa S lista, fulltrúi B lista situr hjá.
12. Byggingarleyfi: Leiðbeiningar
Tekið fyrir að beiðni formanns
Nefndin ræddi um hvort leiðbeiningar um byggingarleyfi séu meira íþyngjandi hér en í nágrannasveitarfélögum. Sviðsstjóra falið að óska eftir mati Mannvirkjastofnunnar á því hvort greinagerð hönnuða sé ófrávíkjanleg regla og ef svo er hvernig er eftirliti háttað með að sveitarfélög séu að framfylgja því.
13. Umsókn um byggingarleyfi: Staðarsund 3
Erindi frá HH. Smíði. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 774,2 fermetra iðnaðarhúsnæði. Erindinu fylgja teikningar unnar af Verkfræðistofu Suðurnesja dagsettar 8.8.2017.
Erindi frá HH. Smíði. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 774,2 fermetra iðnaðarhúsnæði. Erindinu fylgja teikningar unnar af Verkfræðistofu Suðurnesja dagsettar 8.8.2017. Skipulagsnefnd leggur til viðo bæjarstjórn að samþykkja veitingu byggingaráformana.
14. Grindavíkurvegur: Vegrið og fláar
Vegagerðin sendir til umsagnar fyrirhugaðar aðgerðir á Grindavíkurvegi sem snúa að fyllingum, víravegriði ofl. Sjá hlekk neðst í tölvupósti.
Lagt fyrir áætlanir Vegagerðarinnar um framkvæmdir við Grindavíkurveg árið 2017. Framkvæmdir snúa að auknu umferðaröryggi með auknum fláum, víravegriði á köflum og fjarlægja grjót í vegköntum. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir.