Skipulagsnefnd - 9. fundur
- 07.10.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- á skrifstofu byggingafulltrúa
- Fundur nr. 9
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Pétur Már Benediktssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Fjárhagsáætlun 2016-2019: Grindavíkurbær og stofnanir
Tekið fyrir og rætt. Sviðsstjóra falið að leggja áætlunina fyrir bæjarstjórn.
2. Iðnaðarsvæði Eyjabakka: breyting á deiliskipulagi.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis á Eyjabakka. Breytingin er tvíþætt og snýr í báðum tilfellum að leiðréttingu á deiliskipulagi vegna aðstæðna. Breytingarnar eru eftirfarandi:
1. Vörðusundi er breytt í botnlanga, en gatan hefur þegar verið framkvæmd þannig.
2. Gerð er breyting á húsagerð og hæð bygginga á lóð nr. 5 við Tangarsund.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt til grenndarkynningar fyrir eigendum húsa við Vörðusund og Tangarsund skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/20103. Afgreiðslunefnd byggingamála - 6
Lagt fram.