Skipulagsnefnd - 42. fundur
- 02.07.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 42
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Umsókn um byggingarleyfi: Víkurbraut 60
Erindi frá Urtustein ehf. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breytingu á lóð við Víkurbraut 60. Forsvarsmenn Urtusteins komu á fundinn og fóru yfir málefni gagandi vegfaranda. Von er á uppfærðum gögnum. Málinu frestað.
2. Umsókn um byggingarleyfi: Stamphólsvegur 2
Erindi frá Þorláki Guðmundssyni. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Stamphólsveg 2. Erindinu fylgja teikningar unnar af verkfræðistofunni Beimur dagsettar 31.5.2018. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist.
3. Lyngrimi/Svartfell: ósk um deiliskipulag
Erindi frá Hugvirkjun slf. Í erindinu er óskað eftir heimild til þess að vinna deiliskipulag fyrir svæðið við Langrima við Svartsengisfell skv. 38 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Á svæðinu er fyrirhugað að skipuleggja afþreyingu fyrir ferðamenn, verslun, veitingasölu og verslun. Skipulagsnefnd hugnast ekki staðsetningin og hafnar því erindinu. Sviðsstjóra falið að gera nýja tillögu staðsetningu í samráði við umsækjanda.
4. Fiskeldi á iðnaðarsvæði i5: breyting á deiliskipulagi
Erindi frá Matorku ehf. í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi fiskeldis á iðnaðarsvæði i5. Breytingin felur í sér að hámarkshæð fóðursílóa og súrefnistanka hækkar úr 8m í 10m. Einnig er óskað eftir því að skilmálar fyrir framleiðslugetu verði ekki skilgreindir í fjölda tonna heldur verður vísað í starfsleyfi hverju sinni. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
5. Fyrirspurn um byggingarleyfi: viðbygging við Leynisbraut 7
Fulltrúi B lista víkur af fundi við afgreiðslu og umræðu málsins vegna fjölskyldutengsla við umsækjanda. Erindi frá Friðriki Björnssyni. Í erindinu er óskað eftir leyfi fyrir byggingu viðbyggingar við Leynisbraut 7. Erindinu fylgja ómálsettar teikningar.
Skipulagsnefnd óskar eftir nánari gögnum. Málinu frestað.6. Umsókn um stöðuleyfi: Miðgarður 2
Erindi frá Axel Ómarssyni f.h. Eyri ehf. í erindinu er óskað eftir stöðuleyfi fyrir gám við Miðgarð 2. Erindinu fylgir skissa með fyrirhugaðri staðsetningu. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
7. Umsókn um byggingarleyfi : Norðurhóp 62
Erindi frá H.H. smíði. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi við Norðurhóp 62. Erindinu fylgja teikningar unnar af Rýma arkitektum dagsettar 27.11.17. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
8. Umsókn um lóð: Norðurhóp 64
Erindi frá H.H. smíði. Í erindinu er sótt um lóðina Norðurhóp 64.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um að umsækjandi standist reglur um lóðaúthlutannir.9. Umsókn um lóð: Víkurhóp 55
Erindi frá Verkbæ ehf. Í erindinu er sótt um lóðina Víkurhóp 55.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um að umsækjandi standist reglur um lóðaúthlutanir.10. Umsókn um lóð: Vörðusund 4
Erindi frá H.H. smíði. Í erindinu er sótt um lóðina Vörðusund 4. Lóðinni hefur verið úthlutað. Erindinu er hafnað.
11. Umsókn um framkvæmdaleyfi: Einarbúð
Erindi frá minja- og sögufélagi Grindavíkur. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir könnun á forminjum á reit þar sem Einarsbúð stóð. Málinu frestað.