Skipulagsnefnd - 85. fundur
- 19.04.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 85
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Björgvin Björgvinssonvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Deiliskipulagsbreyting - Orkuvinnslusvæði á Reykjanesi
Ráðgjafar HS orku við deiliskipulagsbreytingu á orkuvinnslusvæðinu á Reykjansi mæta á fundinn til að fara yfir stöðuna á vinnunni.
Ráðgjafi HS orku við deiliskipulagsbreytingu á orkuvinnslusvæðinu á Reykjansi mætti á fundinn til að fara yfir stöðuna.
Sviðsstjóra falið að afmarka svæði fyrir lóðir á deiliskipulagssvæðinu.2. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Fulltrúi frá VSÓ Ráðgjöf mætir á fundinn og kynnir deiliskipulagsbreytinguna við Víðihlíð. Þá munu byggingarverktakar af svæðinu mæta á fundinn og greina frá sínum sjónarmiðum hvað varðar bílakjallara. Tillaga að breyttum deiliskipulagsuppdrætti lögð fram. Taka þarf ákörðun um bílakjallara. Auglýsa þarf tillögu aftur.
Fulltrúi frá VSÓ ráðgjöf, Grindinni ehf. og HH smíði mættu á fundinn undir dagskrárliðnum. Áður auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Víðihliðar tekin til umfjöllunar. Samþykkt að gera eftirfarandi breytingar á tillögunni:
- Að bygging sem fyrirhugað er að hýsi félagsaðstöðu eldri borgara í Grindavík verði gerð að tveggja hæða byggingu en var ein hæð í auglýstri tillögu.
- Að fjölbýlishús næst Víðihlíð merktar 1,2,3 og 4 hækki um eina hæð m.v. auglýsta tillögu að því gefnu að því fylgi bílakjallari.
- Að heimild verði fyrir bílageymslu undir grænu svæði milli lóða 1 og 4.
- Að bílastæðum verði bætt við á uppdrátt austan við hús nr. 3
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa og kynna framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.3. Deiliskipulagsbreyting Efrahóp 4
Óskað er eftir að stækka byggingarreit við Efrahóp 4 um 0,6 m til austurs og vesturs, þ.e. að heildarbreikkun á byggingarreit verði 1,2 m. Erindin fylgir beiðni um breytingu á deiliskipulagi.
Óskað er eftir að stækka byggingarreit við Efrahóp 4 um 0,6 m til austurs og vesturs, þ.e. að heildarbreikkun á byggingarreit verði 1,2 m.
Skipulagnefnd heimilar umsækjenda að fara umbeðna deiliskipulagsbreytingu og að það verði gert í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sviðsstjóra falið að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Efrahóps 1,2,3,5,6 og 7. Grenndarkynningartími er amk. 4 vikur í samræmi við 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi:
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.4. Vegir í náttúru Íslands - breyting á vegskrá
Lögð fram tillaga að breytingu á orðalagi í vegskrá sbr. reglugerð um vegi í náttúru Íslands samkvæmt lögum um náttúruvernd nr. 260/2018.
Lögð fram tillaga að breytingu á orðalagi í vegskrá sbr. reglugerð um vegi í náttúru Íslands samkvæmt lögum um náttúruvernd nr. 260/2018.
Sveitarfélagið hefur ekki heimild til að takmarka umferð á vegum og stígum í vegskrá umfram það sem lög segja til um.
Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna og vísar afgreiðslunni til staðfestingar bæjarstjórnar.5. Höskuldavellir 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir stækkun á bílageymslu við Höskuldavelli 1 um 18,9 m2.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir því að stækka bílageymslu við Höskuldavelli 1 um 18,9 m2.
Lóðin er á ódeiliskipulögðu svæði. Samkvæmt 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gr. 5.9.12 í skipulagsreglugerðar skal fara fram grenndarkynning á byggingaráformunum á ódeiliskipulögðum svæðum.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að grenndarkynna byggingaráformin fyrir lóðarhafa við Höskuldavellir 3.6. Víkurbraut 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi vegna breytingar á innra skipulagi bílageymslu við Víkurbraut 22. Breytt notkun?
Sótt er um byggingarleyfi vegna breytingar á innra skipulag, útliti og breyttri notkun á bílageymslu við Víkurbraut 22.
Sviðsstjóra er falið að grenndarkynna bygggingarleyfisumsóknina fyrir lóðarhöfum að Víkurbraut 17, 19 og 20.7. Framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda í tengslum við eldgos í Fagradalsfjalli
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir heimild skipulagsnefnar til að samþykkja framkvæmdaleyfi vegna nauðsynlegra framkvæmda m.a. til að tryggja öryggi gesta, innviðauppbyggingu og verndun náttúru vegna eldgos í Fagradalsfjalli. Allar framkvæmdir á svæðinu eru unnar í samvinnu við landeigendur, Umhverfisstofnun ásamt öðrum þar til bærum aðilum. Engin gögn fylgja dagskrárlið.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir heimild skipulagsnefnar til að samþykkja framkvæmdaleyfi vegna nauðsynlegra framkvæmda m.a. til að tryggja öryggi gesta, innviðauppbyggingu og verndun náttúru vegna eldgos í Fagradalsfjalli. Allar framkvæmdir á svæðinu eru unnar í samvinnu við landeigendur, Umhverfisstofnun ásamt öðrum þar til bærum aðilum.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.8. Vatnaáætlun Íslands
Vatnaáætlun íslandi 2022 -2027 ásamt aðgerðaráætlun, vöktunaráætlun og umhverfisskýrslu vatnaáætlunar eru allar komnar í 6 mánaða opinbera kynningu. Frestur til að senda inn ábendingar og athugasemdir er til og með 15.júní 2021. Erindið er lagt fram til kynningar.
Vatnaáætlun íslandi 2022 -2027 ásamt aðgerðaráætlun, vöktunaráætlun og umhverfisskýrslu vatnaáætlunar eru allar komnar í 6 mánaða opinbera kynningu. Frestur til að senda inn ábendingar og athugasemdir er til og með 15.júní 2021.
Erindið er lagt fram til kynningar.9. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 50
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingarmála nr. 50 lögð fram til kynningar.
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingarmála nr. 50 lögð fram til kynningar.