Skipulagsnefnd - 30. fundur
- 19.06.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 30
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Áningastaðir fyrir ferðamenn: kynning
Menn frá Svarinu koma og kynna áætlanir sýnar um að setja upp mannlausa aðstöðu fyrir ferðamenn á Gíghæð. Ég hef vísað þeim á að ræða málið fyrir landeigendur, það þurfi alltaf heimild þeirra til að tala málið áfram. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu og líklega þarf að vinna slíkt til þess að þetta komist í gegn.
Frestað.
2. Heiðahraun: Ósk um nýja lóð
Fyrirspurn frá Lilju Ósk Sigmarsdóttir. Í Erindinu er óskað eftir að stofnuð verði lóð undir einbýlishús vestast í Heiðahrauni. Í aðalskipulagi er gert ráð fyrir lóðum á þessum svæði
Fyrirspurn frá Lilju Ósk Sigmarsdóttir. Í erindinu er óskað eftir að stofnuð verði lóð undir einbýlishús vestast í Heiðahrauni. Í aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 er gert ráð fyrir lóðum á þessum svæði. Erindinu fylgir riss. Skipulagsnefnd óskar eftir nánari gögnum.
3. Heiðarhraun: Ósk um nýja lóð
Fyrirspurn frá Otta Rafn Sigmarssyni. Í Erindinu er óskað eftir að stofnuð verði lóð undir einbýlishús vestast í Heiðahrauni. Í aðalskipulagi er gert ráð fyrir lóðum á þessu svæði
Fyrirspurn frá Otta Rafn Sigmarssyni. Í erindinu er óskað eftir að stofnuð verði lóð undir einbýlishús vestast í Heiðahrauni. Í aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 er gert ráð fyrir lóðum á þessum svæði. Skipulagsnefnd óskar eftir nánari gögnum.
4. Vatnsþró við Grindavíkurveg: Fyrirspurn
Erindi frá Steinþóri Júlíussyni. Í erindinu er óskað eftir því að fá vatnsþró við Grindavíkurveg til afnota. Á Vatnsþrónni er listaverk eftir Vilborgu Guðjónsdóttir.
Erindi frá Steinþóri Júlíussyni. Í erindinu er óskað eftir því að fá vatnsþró við Grindavíkurveg til afnota. Á vatnsþrónni er listaverk eftir Vilborgu Guðjónsdóttir. Skipulagsnefnd bendir á að á svæðinu er Melhólabraut 1 skv. deiliskipulagi. Lóðin er 9.000 fermetrar. Skipulagsnefnd hafnar erindinu.
5. Skotsvæði: deiliskipulag
Erindi frá Skotdeild UMFG. Í erindinu er óskað eftir skotsvæði til æfinga.
Erindi frá Skotdeild UMFG. Í erindinu er óskað eftir skotsvæði til æfinga. Skipulagsnefnd hefur áður hafið vinnu við deiliskipulag fyrir skotsvæði án árangurs. Einnig hefur nefndin tekið þó nokkur svæði til skoðunar án árangurs. Í ljósi aukinnar útivistar almennings og hlutverki Grindavíkur innan Reykjanes Geopark telur skipulagsnefnd að ekki sé hægt að koma fyrir skotsvæði með góðum hætti innan svæðis sem Grindavíkurbær er landeigandi að. Erindinu hafnað.
6. Hópsheiði 2: Breyting á skipulagi
Erindi frá Hörpu Rakel Hallgrímsdóttir. Í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi hesthúsasvæðis vegna Hópsheiði 2. Núverandi skilgreining á lóðinni er hestaleiga. Árið 2014 var óskað eftir niðurrifi á mannvirki á lóðinni. Skv. lögum um gatnagerðargjöld er ekki heimilt að innheimta gatnagerðargjöld fyrr en 5 árum eftir veitingu leyfis til niðurrifs.
Erindi frá Hörpu Rakel Hallgrímsdóttir. Í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi hesthúsasvæðis vegna Hópsheiði 2. Núverandi skilgreining á lóðinni er hestaleiga. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram með umsækjanda. Málinu frestað.
7. Hafnargata 22: Breyting á deiliskipulagi.
Tekin fyrir óveruleg breyting á deiliskipulagi, hér þurfum við að ákveða hvort eigi að grenndarkynna eða ekki.
Tekin fyrir óveruleg breyting á deiliskipulagi. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún grenndarkynnt fyrir eigendum Seljabótar 1 og 3.
8. Deiliskipulag: Húsatóftir eldisstöð.
Tekin fyrir skipulags- og matslýsing sem er undanfari deiliskipulags.
Skipulag- og matslýsing er vegna deiliskipulags fyrir fiskeldi á iðnaðarreit i6 í aðalskipulagi Grindavíkur 2010- 2030 í Húsatóftum vestan Grindavíkur tekin fyrir. Tillagan er dagsett í apríl 2017. Tilgangur þessa deiliskipulags er fyrst og fremst að skilgreina núverandi starfsemi í Húsatóftum á skipulagsform og skilgreina í leiðinni mögulegar byggingar sem tengjast stoðþjónustu og tengdri starfsemi. Ekki er fyrirhuguð aukning á fiskeldi umfram núverandi leyfi. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 6.gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
9. Hafnargata 4: breyting á skipulagi
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðal- og deiliskipulagi. Við vorum búin að ákveða fyrir hverjum á að grenndarkynna.
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðal- og deiliskipulagi. Tillögurnar miðast við að skilgreiningu Hafnargötu 4 verði breytt þannig að hægt sé að reka gistiheimili. Tillögurnar eru unnar af Eflu verkfræðistofu dagsettar 16.6.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á aðalskipulagi verði samþykkt skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og tillaga að deiliskipulagi verði samþykkt skv. 2 mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún grenndarkynnt fyrir eigendum Hafnargötu 2.
10. Orkubraut 2: Umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá CRI. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu. Umrædd bygging er innan byggingarreits í deiliskipulagi.
Erindi frá CRI. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu. Umrædd bygging er innan byggingarreits í deiliskipulagi. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögnum hefur verið skilað inn.
11.
Lagt fram.
12. Tjaldsvæði: Smáhýsi
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að gerð verði breyting á samþykktri tillögu á bílastæðum vestan þjónustuhús og þau komi í framhaldi af núverandi stæðum á tjaldsvæði. Sviðsstjóra falið að vinna kostnaðaráætlun fyrir bæjarráð.