Skipulagsnefnd - 3. fundur
- 01.04.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 3
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonvaramaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Vindorkugarður á Reykjanesi: viljayfirlýsing
Fulltrúar EAB komu inn á fundinn undir þessum lið og kynntu drög að viljayfirlýsingu og áætlanir um vindorkugarð á Reykjanesi. Áætlanirnar eru á frumstigi og snúast eins og er að því hvort koma eigi upp mælitækjum til að mæla kosti vindmyllugarðs á svæðinu.
Fulltrúar EAB komu inn á fundinn undir þessum lið og kynntu drög að viljayfirlýsingu og áætlanir um vindorkugarð á Reykjanesi. Áætlanirnar eru á frumstigi og snúast eins og er að því hvort koma eigi upp mælitækjum til að mæla kosti vindmyllugarðs á svæðinu.
Skipulagsnefnd samþykkir að vinna málið áfram en vísar viljayfirlýsingu til frekari vinnslu í bæjarráði. Nefndin leggur áherslu á að íbúafundur verði haldinn áður en ákvörðun verður tekin.2. Laut: Deiliskipulag
tekið fyrir að beiðni bæjarstjóra.
Samþykkt að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi með það fyrir augum að minnka byggingarmagn þeirra lóða sem ekki hafa verið úthlutaðar innan deiliskipulagsreits. Málinu frestað.
3. Deiliskipulag miðbæjarkjarna Grindavíkur.
Tekið fyrir deiliskipulag miðbæjarkjarna Grindavíkur dagsett 19.3.2015 unnið af Alta.
Tekið fyrir deiliskipulag miðbæjarkjarna Grindavíkur dagsett 19.3.2015 unnið af Alta. Skipulagsnefnd leggur til að skipulagið verði forkynnt.
4. Umsókn um framkvæmdaleyfi: endurnýjun hitaveitulagnar við Víkurbraut
Erindi frá HS veitum hf. kt. 431208-0590. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu 290 mm DN300/450 hitaveitullögn meðfram Víkurbraut vestanverðri frá Nesvegi að Hópsbraut og tengingu inn á tvo hitaveitubrunna. Einnig er óskað eftir að fá að loka göngustíg meðfram fyrirhugaðri lögn á verktíma sem er áætlaður frá 8. Júní til 31. Júlí. Erindinu fylgja teikningar merktar 101-104 unnar af Verkís verkfræðistofu dags. 16.02.2015.
Erindi frá HS veitum hf. kt. 431208-0590. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu 290 mm DN300/450 hitaveitulögn meðfram Víkurbraut vestanverðri frá Nesvegi að Hópsbraut og tengingu inn á tvo hitaveitubrunna. Einnig er óskað eftir að fá að loka göngustíg meðfram fyrirhugaðri lögn á verktíma sem er áætlaður frá 8. Júní til 31. Júlí. Erindinu fylgja teikningar merktar 101-104 unnar af Verkís verkfræðistofu dags. 16.02.2015. Skipulagsnefnd frestar málinu.
5. Umsókn um byggingarleyfi: Sogdæluhús við Norðurljósaveg 9
Erindi frá Eldvörpum ehf. kt. 690498-2009. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 346 m2 sogdæluhúsi og verkstæði við Norðurljósaveg 9, landnr. 179478. Erindinu fylgja teikningar merktar 1404 dags. 12.02.2015 unnar af Basalt Arkitektum.
Erindi frá Eldvörpum ehf. kt. 690498-2009. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 346 m2 sogdæluhúsi og verkstæði við Norðurljósaveg 9, landnr. 179478. Erindinu fylgja teikningar merktar 1404 dags. 12.02.2015 unnar af Basalt Arkitektum. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögnum hefur verið skilað inn.
6. Auðlindastefna og Eldfjallagarður: Skýrsla
Lagt fram.
Lagt fram.
7. Skipulagsnefnd: Samþykkt
lagt fram eftir umræðu í bæjarrráði.
Málinu frestað.
8. Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
lagt fram eftir umræðu í bæjarrráði
Málinu frestað.
9. Umsókn um byggingarleyfi: Verbraut 3
Erindi frá Hópsnes ehf. kt. 470265-0199. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir u.þ.b. 600 m2 geymsluhúsnæði við óskráða eignarlóð við Verbraut. Erindinu fylgja bygginganefndarteikningar unnar af Guðna Sigurbirni Sigurðssyni kt. 250582-44 dagsettar 11.3.2015. Einnig fylgir umsókn um stækkun lóðar við Verbraut 3, lóðarblað dagsett xxxx(á von á því fyrir fund) og eignarheimildir á 1025 m2 spildu undir fyrirhugað mannvirki.
Erindi frá Hópsnes ehf. kt. 470265-0199. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir u.þ.b. 600 m2 geymsluhúsnæði við óskráða eignarlóð við Verbraut. Erindinu fylgja bygginganefndarteikningar unnar af Guðna Sigurbirni Sigurðssyni kt. 250582-4479 dagsettar 11.3.2015. Einnig fylgir umsókn um stækkun lóðar við Verbraut 3 og eignarheimildir á 1025 m2 spildu undir fyrirhugað mannvirki. Skipulagsnefnd samþykkir að útfærður verði byggingarreitur fyrir fyrirhugað mannvirki og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
10. Vatnstankur í Þórkötlustaðarhverfi: fyrirspurn um sölu.
Tekið fyrir að nýju fyrirspurn frá Arnari Frey Jónssyni sem bæjarráð vísaði til nefndarinnar til umsagnar. Í erindinu er óskað eftir kaupum á vatnstanki í Þórkötlustaðahverfi. Erindinu fylgja teikningar unnar af R.S. hönnun og ráðgjöf, upplýsingar um hluta meistara og áætlanir umsækjanda um hvað gera skal við tankinn. Einnig fylgir erindinu samþykkt frá Umhverfis- og Auðlindaráðuneytinu fyrir undanþágu frá 4 mgr. 24. gr. reglugerðar nr. 941/2002 Fyrirhugaðar framkvæmdir byggja á hugmyndafræði um Micro hús. Tankurinn er á mörkum svæða sem eru merkt íbúðabyggð/óbyggt í aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030.
Tekið fyrir að nýju fyrirspurn frá Arnari Frey Jónssyni sem bæjarráð vísaði til nefndarinnar til umsagnar. Í erindinu er óskað eftir kaupum á vatnstanki í Þórkötlustaðahverfi. Erindinu fylgja teikningar unnar af R.S. hönnun og ráðgjöf, upplýsingar um hluta meistara og áætlanir umsækjanda um hvað gera skal við tankinn. Einnig fylgir erindinu samþykkt frá Umhverfis- og Auðlindaráðuneytinu fyrir undanþágu frá 4. mgr. 24. gr. reglugerðar nr. 941/2002. Fyrirhugaðar framkvæmdir byggja á hugmyndafræði um Micro hús. Tankurinn er á mörkum svæða sem eru merkt íbúðabyggð/óbyggt í aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að stofnuð verði lóð undir mannvirkið áður en gengið verði til samninga um sölu. Hins vegar bendir Skipulagsnefnd á að taka verði erindið upp að nýju með uppfærðum gögnum til grenndarkynningar áður en samþykkt fyrir byggingaráformum verði ákveðin.
11. Umsókn um byggingarleyfi: Austurvegur 1
Erindi frá Grindavíkurbæ. í erindinu er óskað eftir breytingum á byggingarleyfi vegna tengibyggingar við Austurvegi 1. Breytingin felur í sér að frestað verði niðurrifi á austurvegi 3a til janúar 2016 og frestun á uppsetningu á hluta suðurgafli hússins. Erindinu fylgja teikningar frá Batteríinu arkitektum dagsettar 12.03.2015 og uppfærð brunahönnunarskýrsla.
Erindi frá Grindavíkurbæ. í erindinu er óskað eftir breytingum á byggingarleyfi vegna tengibyggingar við Austurveg 1. Breytingin felur í sér að frestað verði niðurrifi á Austurvegi 3a til janúar 2016 og frestun á uppsetningu á hluta af suðurgafli hússins. Erindinu fylgja teikningar frá Batteríinu arkitektum dagsettar 12.03.2015 og uppfærð brunahönnunarskýrsla. Skipulagsnefnd samþykkir erindið.
12. Umsókn um byggingarleyfi: Fiskeli á i5
Erindi frá Matorku ehf. kt. 500412-0540. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir seiðaeldiskerum á lóð nr. 1 á fyrsta hluta iðnaðarsvæði i5. Erindinu fylgja teikningar unnar af tækniþjónustu SÁ ehf. dagsettar 04.03.2015.
Erindi frá Matorku ehf. kt. 500412-0540. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir seiðaeldiskerum á lóð nr. 1 á fyrsta hluta iðnaðarsvæði i5. Erindinu fylgja teikningar unnar af tækniþjónustu SÁ ehf. dagsettar 04.03.2015. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögnum hefur verið skilað inn.
13. Iðnaðarsvæði i5: Nafnagiftir.
vantar nofn á lóðir Matorku
Málinu frestað.
14. Brimketill: deiliskipulag
Málinu er frestað.
15. Deiliskipulag fiskeldis á Stað.
Deiliskipulagstillaga ásamt umhverfisskýrslu fiskeldis á Stað unnin af AVH arkitektum dagsett í mars 2015 tekin fyrir. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagið verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.